13.04.1950
Sameinað þing: 38. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 269 í D-deild Alþingistíðinda. (3829)

100. mál, lóðakaup í Reykjavík

Gísli Jónsson:

Ég vil út af þessu máli leyfa mér að gera fyrirspurn til hv. frsm. um það, hvort það beri þá að skilja afgreiðslu þessa máls þannig, að með því hafi ríkisstj. fengið heimild til að gera kaup á þessum lóðum, eða hvort hér sé aðeins um að ræða heimild fyrir ríkisstj. til að leita fyrir sér um söluverð, því ef skilja ber till. þannig, að með henni hafi ríkisstj. heimild til að kaupa lóðirnar, þá væri ákaflega fróðlegt að fá upplýst, hvað mikla fjárhæð er hér um að ræða. En ég sé ekki, að það komi fram í ræðu hv. frsm., en vildi fá þetta upplýst áður, en ég greiði atkv. um till.