13.04.1950
Sameinað þing: 38. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 269 í D-deild Alþingistíðinda. (3830)
100. mál, lóðakaup í Reykjavík
Frsm. (Finnur Jónsson) :
Ég sé ekki ástæðu til að vera að lesa till. upp fyrir hv. þm., en þar er m. a. tekið fram, að ef það komi í ljós, að Reykjavíkurbær hafi ekki í hyggju að gera ráðstafanir til að eignast þessar lóðir og hús, þá fái ríkisstj. heimild til að leitast við að fá keyptar lóðirnar, í því skyni að síðar verði hægt að reisa þar opinbera byggingu eða hagnýta þær á annan hátt. Nú held ég ekki, að neinn úr allshn. muni gera tilraun til þess á þessu stigi að nefna neina fjárhæð í þessu sambandi, og efalaust er þetta ekki annað en nauðsynlegur undirbúningur undir það að koma þessu máli þannig fyrir, að á þessum stað, sem margir Íslendingar mundu álíta helgan stað, verði ekki reistar tómar mangarabúðir. Það má vera, að það mundi kosta landið eitthvert fé, og ég álít, að þetta mál sé þannig vaxið, að hver sú ríkisstj., sem fengi þessa heimild, mundi, ef hún teldi sig hafa fjármuni til þess að framkvæma þessa till., eflaust gera það, en ef hún teldi sig ekki hafa fjármuni til þess, þá mundi hún leita til Alþ. um nauðsynlega heimild.