29.03.1950
Sameinað þing: 37. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 315 í D-deild Alþingistíðinda. (3879)
109. mál, Helicopterflugvél
Ingólfur Jónsson:
Herra forseti. Ástæðan til þess, að ég tek til máls við 2. umr. um þessa till. til þál., er sú, að þm. hafa ekki komið að kjarna málsins. Hv. frsm. minni hl. flutti mjög ýtarlega ræðu um þetta mál hér á dögunum. Þrátt fyrir það hef ég komizt að því, að hv. þm. virðast ekki hafa gert sér glögga grein fyrir því, hvað hér er um að ræða. Hv. þm. virðast ekki hafa kynnt sér þau gögn og þau rök, sem minni hl. hefur lagt fram í þessu máli. Það er allra hluta vegna mjög nauðsynlegt, að þm. kynni sér vandlega þau gögn, sem liggja fyrir í þessu máli, en leiði hjá sér einhliða áróður og móti afstöðu sína af staðreyndunum einum saman.
Hv. þm. virðast ljúka upp einum munni um það, að flugvél af helicoptergerð kæmi að góðu gagni hér á landi. Það er engum vafa undirorpið, en það er deilt um það, hvort kaupa eigi þá vél, sem legið hefur hér á landi undanfarið, eða aðra stærri og að okkar dómi í minni hl. hentugri vél. Ef menn vilja nú gera sér grein fyrir, hvort heppilegra er í þessu tilfelli, þá verða menn að gera sér fulla grein fyrir þeim gögnum, sem fyrir liggja, en ekki láta það hafa áhrif á sig, þótt einstakir menn sæki fast, að einmitt þessi eina vél verði keypt, jafnvel þó að með því væri peningum á glæ kastað. Ég á hér við það, hvernig reynslan talar af tilraunum með þessa vél, og skýrslur flugráðs og skýrslu Þórarins Björnssonar skipherra, en hvort tveggja er prentað sem fskj. með áliti minni hl. fjvn. Ef hv. þm. lesa þessar skýrslur, komast þeir að raun um, að viturlegra og heppilegra væri að festa kaup á annarri gerð helicopterflugvélar en hér hefur verið til reynslu. Og hvað segir þá Þórarinn Björnsson í skýrslu sinni? Hann segir orðrétt, með leyfi hæstv. forseta:
„En þá er galli á þessari flugvél, að hún tekur aðeins tvo, flugmann og einn til. Þegar skip eru tekin í landhelgi, eru ávallt tveir, sem mæla samtímis, og tekur þá hvor um sig sitt horn og athugar svo hvor hjá öðrum, hvort rétt sé mælt. Skal ég ekki segja um, hvort tekið yrði gilt í rétti, að einn maður gerði staðarákvörðun.“
Þetta segir Þórarinn Björnsson, en nú mundi einhver segja, að hægt væri að kenna flugmanninum að taka horn. Það er nú ekki víst, að það fari alltaf saman að kunna að fljúga og kunna að taka hornmælingar. — Þórarinn Björnsson segir enn fremur í skýrslu sinni: „En að mínu áliti er sú flugvél, er við höfum til reynslu, of lítil, þyrfti að vera minnst 4 sæta, enn fremur með
1. útbúnað til ljósmyndatöku,
2. hurð, sem hægt er að opna, ef eitthvað þarf að setja niður í skip (skothurð),
3. Hydraulic-spil, eins og notuð eru á helicopterbjörgunarflugvélum,
4. vopnuð,
5. hátalara,
6. talstöð.“
Þetta segir nú Þórarinn Björnsson. Ég las þetta orðrétt upp úr skýrslu hans, og þarf ekki að vera í neinu orðaskaki hér á Alþingi, hvað í skýrslu hans hafi staðið um nothæfni þessarar helicoptervélar eða hvort í skýrslu skipherrans fellst eitthvað annað. Ég tel þennan dóm mjög mikilvægan, og er vart hægt né sæmandi fyrir Alþingi að ganga fram hjá honum, en til landhelgisgæzlunnar kæmi þessi vél að mjög takmörkuðum notum. Hins vegar virðist undravert kapp vera á það lagt, að þessi vél verði keypt, en engin önnur tegund af helicoptergerð. Þetta ofurkapp verður vart skiljanlegt eftir þeim yfirlýsingum, sem hv. meiri hl. hefur látið hér frá sér fara, því að hann virðist vilja festa kaup á þeirri vélinni. sem komi að mestum notum, og að fé verði ekki á glæ kastað. Almenningur hefur lagt mikið fé fram til kaupa á helicopterflugvél, og hann á heimtingu á því, að þessu fé verði þannig varið, að það komi að sem beztu gagni.
Ég ætla nú að athuga bréf flugráðs og með leyfi hæstv. forseta lesa upp úr því orðrétt, en ég vorkenni þeim hv. þm. meiri hl., ef þeir nú segja, að ég hafi lesið rangt. Flugráð segir:
„Flugráð er þeirrar skoðunar, að til þess að bjarga skipbrotsmönnum úr sjávarháska hvar sem er á landinu, þurfi helicopterflugvél, er hafi að minnsta kosti flugþol til 800 km. flugs samanlagt eða 400 km. „actionsradius“, þar eð gera verður ráð fyrir, að strand geti átt sér stað á ólíklegustu stöðum á landinu og nauðsynlegt sé að komast fljótt á staðinn. Hafi flugvélin minna flugþol, þyrfti að koma upp eldsneytisbirgðum víðs vegar um land allt og þær að vera tiltækilegar fyrirvaralaust. Þótt slíkt sé engan veginn frágangssök, liggur í augum uppi, að slík vinnubrögð hlytu að tefja björgunarstarfið, auk þess sem erfiðleikar gætu verið á að birgja vélina eldsneyti, t. d. í stormi og við erfið skilyrði.“
Ég þarf ekki að lesa lengra, því að þm. hafa þessa skýrslu fyrir framan sig og geta kynnt sér efni hennar, en ég undirstrika það, sem þar er sagt, sökum þess, að ég komst að því, að tveir hv. þm., sem ég hitti að máli í dag, höfðu ekki kynnt sér þær forsendur, sem við í minni hl. byggjum skoðun okkar á. Það kann að vera, að fleiri hv. þm. hafi ekki lesið þessar skýrslur, en í þeim felast staðreyndir, sem varpa fram nokkuð öðru ljósi en hv. frsm. meiri hl. fjvn. vildi vera láta í ræðu sinni hér áðan. Hv. þm. sagði einnig í ræðu sinni hér áðan, að ekki væri unnt að fá fjögra sæta helicoptervél, en það hefur einmitt verið bent á, að hægt væri að fá fjögra sæta vél af gerðinni S–51, sem mun vera mun öruggari en Bell-47. Það mun vera hægt að fá vél af gerðinni 5–51 með tiltölulega stuttum fyrirvara. Sú vél mun að vísu verða nær helmingi dýrari í innkaupi en Bell-47, en rekstrarkostnaður hennar mun ekki verða að sama skapi meiri. Ég held fyrir mitt leyti, að þetta sé þess virði, að málið sé athugað nánar og hér sé ekki flanað að neinu og ekki sizt vegna þeirrar reynslu, sem fengin er af þeirri vél, sem hér er og Þórarinn Björnsson hefur þegar lýst í grg. sinni og kemur fram í dómum flugráðs. Þessi reynsla er þannig, að enginn vafi getur leikið á því, að við eigum að kaupa 4 sæta vél, en ekki að gera þau kaup að kasta fé á glæ, sem þjóðin hefur safnað saman til kaupa á helicopterflugvél, svo að meira öryggi skapist í björgunarmálum landsmanna. Til þess að þetta megi verða, verður að kaupa tæki, sem uppfyllir kröfur tímans, en það gerir S–57. helicopterflugvélin, sem Þórarinn Björnsson hefur minnzt á í áliti sinu. Ég endurtek það, að ég á erfitt með að skilja, hversu hv. meiri hl. er það mikið áhugamál, að þessi litla og ófullkomna vél, sem hér er, verði keypt. Ég býst ekki við, að þeir séu neitt skuldbundnir í því efni. Vél þessi var boðin hingað til lands til reynslu, og hún hefur nú verið reynd. En hún hefur ekki staðizt prófið. Við getum því hæglega svarað: Við höfum reynt þetta flugtæki við okkar skilyrði, en það hefur ekki staðizt prófið, og við verðum að fá stærri og öruggari vél. Þess vegna eigum við ekki að kaupa þessa vél. Ég reikna ekki með því, að hv. alþm. séu í þessu efni það skuldbundnir, að þeir þurfi þess vegna að kaupa þessa vél. Ég býst við, að þeir séu ekki skuldbundnir fyrirtæki því, sem vill selja Íslendingum vélina. Það er óskiljanlegt það kapp, sem á það er lagt að vilja kaupa fyrir það fé, sem safnað hefur verið saman af mikilli fórnfýsi hjá þjóðinni, ónýtt tæki, sem kemur ekki að hálfum notum, þegar annað fullkomið flugtæki er á boðstólum, sem uppfyllir kröfur tímans. Minni hl. fjvn. vil] kaupa 4 sæta helicopterflugvél af fullkomnustu gerð, í samvinnu við Slysavarnafélag Íslands, eins og fram kemur í breytingu þeirri, sem minni hl. n. vill gera á tillgr. á þskj. 371. Það er einhver munur á þeirri vél og þessari blikkdós, sem nú er verið að leggja að mönnum að kaupa. Ég geri ráð fyrir, að stjórn Slysavarnafélags Íslands vilji fallast á að kaupa það björgunartækið, sem fullkomnara er, þótt það verði dýrara. Slysavarnafélagið á ekki nægt fé í helicoptersjóði eins og sakir standa til þess að kaupa fullkomna vél. Hins vegar hefur íslenzka þjóðin jafnan sýnt mikla fórnfýsi, og menn munu enn halda áfram að skjóta saman til kaupa á stærri og fullkomnari vél, unz markinu er náð. Hv. frsm. meiri hl. sagðist ekki efast um það, að ef sú vél yrði keypt, sem hér liggur, væri verið að gera góð kaup. Ég segi: Við höfum ekki efni á því að eyða fjármunum í ónýtt tæki, en við eigum að halda áfram að safna saman, þar til við getum fest kaup á góðri og öruggri helicopterflugvél.