29.03.1950
Sameinað þing: 37. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 318 í D-deild Alþingistíðinda. (3880)

109. mál, Helicopterflugvél

Pétur Ottesen:

Ég heyrði á ræðu hv. 1. þm. Rang. (HelgJ), frsm. meiri hl. fjvn., að hér hefðu orðið miklar umræður um þetta mál, er það var rætt hér á dögunum. Ég var fjarverandi, er sú umr. fór fram, og hef ég ekki frétt annað um hana en það, sem fram kom í ræðu hv. frsm. meiri hl. En ég verð að segja það, að ég undrast þau ummæli, sem hv. 2. þm. Rang. (IngJ) lét frá sér fara. Hann ræddi aðeins um það, hvort kaupa ætti helicopterflugvél til landsins eða ekki. Þessi till. til þál., sem hér liggur fyrir, fjallar ekki um nein fjárútlát af hálfu ríkissjóðs til kaupa á helicopterflugvél, heldur er hér um að ræða till. til þál. um rekstur helicopterflugvélar, að Alþingi heimili ríkisstj. að veita fé til rekstrar slíkrar flugvélar. Það finnst hvergi stafur um það, að verja eigi neinu fé úr ríkissjóði til þess að kaupa flugvél. Það hefur enginn farið fram á. Það er annar aðili, sem ræður yfir talsverðu fé og hyggst að kaupa fyrir það helicopterflugvél, en sá aðili fer ekki fram á neinn fjárstyrk til kaupanna. Hv. 2. þm. Rang. hagaði orðum sínum eins og hér væri um væntanleg kaup að ræða, og hann hafði í brýningum, hvort kaupa ætti þessa eða hina gerðina af þessum vélum, sem alls ekki felst í þessari þáltill. Hv. þm. var með brýningar, en hann hljóp nú út úr þingsalnum og er því ekki viðmælandi, en hann stóð hér og spurði eins og rannsóknardómari. Hann spyr hv. þm., hvort þeir séu háðir því fyrirtæki, sem hefur boðið til sölu ákveðna flugvél, og ávítar þá um leið fyrir offors og ofurkapp í baráttu fyrir að kaupa þessa vél. Ég hef nú verið í þeirri aðstöðu í afskiptum af þessu máli, að ég hef ekki orðið var við neitt offors í því sambandi né hinn mikla áróður, sem hv. þm. talaði um. Það kann að vera, að þessir áróðursmenn hafi vitað það, að ekki þýddi að koma til mín, en svo mikið er víst, að ég hef ekki orðið var við þennan mikla áróður. Það er bezt fyrir þá, sem flagga með slík ummæli og tala sem rannsóknardómarar, að rannsaka nýru og hjörtu sjálfs sín.

Ég ætla ekki að blanda mér mikið inn í þessar umr. að öðru leyti en því, að ég hef flutt brtt. við þáltill., sem felur það í sér, að í stað þess að ríkissjóður greiði allan rekstrarkostnað vélarinnar, þá legg ég til, að ríkissjóður greiði hann til helminga á móti Slysavarnafélagi Íslands, enda hefur það samkomulag orðið á milli Slysavarnafélags Íslands og Skipaútgerðar ríkisins, að flugvélin starfi í þágu landhelgisgæzlunnar. Þetta er það, sem felst í till. minni, og skal ég nú gera grein fyrir því, hvers vegna mér finnst sanngjarnt að skipta kostnaðinum.

Eftir þeim plöggum, sem hér liggja fyrir, finnst mér það ljóst mál, að það, sem þessi flugvél getur innt af hendi, er meira á sviði slysavarna en landhelgisgæzlu. Þó vil ég ekki gera lítið úr því, hvað hún getur gert á sviði landhelgisgæzlunnar. Vegna þessa tel ég rétt að skipta rekstrarkostnaðinum á milli þessara aðila þannig, að Slysavarnafélagið greiði helminginn, en ríkissjóður helminginn, og þykir mér ekki óeðlilegt, að ríkissjóður greiði þetta framlag, því að það er jú hlutverk ríkissjóðs að styðja og styrkja slysavarnirnar, jafnframt því sem hann mundi með þessu greiða kostnaðinn af landhelgisgæzlunni. Þetta eru ástæðurnar fyrir því, að ég flyt brtt. mína, og teldi ég því eðlilegt að hún næði samþykki í hæstv. Alþingi. Ég vil í sambandi við væntanleg not af vélinni, sem sumir eins og hv. 2. þm. Rang. (IngJ), telja að engin séu, benda á skjöl þau, sem við höfum varðandi þetta mál, og lesa upp úr þeim nokkrar setningar eins og hann, sem varpa skýru ljósi yfir þetta mál, en gefa kannske dálitið aðra hugmynd um málið en hv. þm. vildi láta þau gera.

Þegar fjvn. ræddi þetta mál á sínum tíma, komu á fund hennar tveir sérfræðingar. Annar er björgunarfræðingur, eða hefur lært um björgun í Ameríku. Hinn er flugmaður, sem kynnt hefur sér meðferð slíkra véla í Ameríku og hefur mikinn áhuga á hagnýtingu þeirra hér á landi. Sá heitir Karl Eiríksson og starfar á sviði flugstarfseminnar. Lagði hann mikla áherzlu á þetta, sem ég hef hér rakið, og sérstaklega á margvísleg not vélarinnar í sambandi við björgunarstarfsemi í mörgum myndum. Skal ég viðurkenna, að sannfæringarkraftur hans, en ekki offors, duldist engum. Ég vil enn fremur í sambandi við þetta benda á það, sem fram kemur í skjölunum, þ. á m. í bréfi flugráðs, þar sem formaður þess, Agnar Kofoed-Hansen, segir, eftir að hann er búinn að telja upp ýmsa annmarka á vélinni, að þessi flugvél geti innt af hendi landhelgisgæzlu og ýmsa björgunarstarfsemi. Hann dregur ekki dul á, að starfshæfni þessarar flugvélar er að mörgu leyti ábótavant, en annars segir hann, og þykir mér rétt að lesa það upp, með leyfi hæstv. forseta:

„Þótt flugráði hafi þótt rétt að benda á ofangreind atriði“ (þ. e. a. s. um ýmis atriði í sambandi við landhelgisgæzlu og björgun á sjó), „vill það engan veginn gera lítið úr möguleikum Bell-47 helicopterflugvélarinnar til sjúkraflutninga, í leit að mönnum eða hópum, sem týnzt hafa, við póstflutninga og ekki sízt, ef koma þarf vistum, hjúkrunargögnum og lækni til fólks, sem hefur slasazt vegna nauðlendingar í öræfum. Undir slíkum kringumstæðum er líklegt, að vélin geti lent á sjálfum slysstaðnum, og er þá mun hægara um vík en yfir siglutoppum á skipi, sem kastast til á strandstað í úfnum sjó. Þá má og benda á, að umrædd Bell-47 helicopterflugvél ,er mjög heppileg til að þjálfa flugmenn vora í meðferð helicopterflugvéla, en sú þjálfun tekur alllangan tíma, þar eð helicopterflugvélar eru vandasamar í meðferð.“

Þarna eru talin upp mjög mörg og mikilsverð atriði, sem flugráð eða form. þess bendir á, að einmitt þessi flugvél geti komið að miklum notum. Tel ég þetta vera ákaflega mikilsverða viðbót við þá slysavarnatækni, sem við höfum fyrir í landinu. Ég minnist þess enn fremur, að þeir sérfræðingar, sem mættu á fundi n., eða sérstaklega Karl Eiríksson, upplýstu, að einmitt þessi gerð ein hefði viðurkenningu og leyfi til að hafa flotholt í stað hjóla, en allar hinar tegundir helicoptervéla ekki. Taldi hann það mikið öryggisatriði fyrir flugvélar, sem fljúga ættu mikið yfir sjó, að hafa ekki hjólin ein. Við höfum ekki annað á að byggja okkar skoðanir í þessu máli en álit sérfræðinga, og sé ég ekki ástæðu til að vefengja, að þessi sérfræðingur fari rétt með. Þetta finnst mér allt vera svo mikilsverð atriði í sambandi við okkar björgunarstarfsemi, að varhugavert sé að slá hendinni á móti því að leggja fram helming rekstrarkostnaðar slíkrar flugvélar. Af þessu einu er mótuð afstaða mín til þessa máls, og hef ég því skrifað undir nál. meiri hl. með þeim fyrirvara, að ég áskil mér rétt til þess að flytja brtt., sem nú er komin hér fram. Ég sé, að komin er fram brtt. við hana frá þremur hv. þm., og get ég vel fallizt á þá brtt., ef það yrði samþ., sem þeir leggja til. En ástæðan til þess, að mín till. er miðuð við þessa ákveðnu flugvél, er sú, að þegar við sendum svör okkar til hæstv. ríkisstj., var ekki annað fyrir hendi að miða við en rekstur þessarar flugvélar. En ég get sem sagt eins og ég hef lýst, greitt þessari till. atkv. — Um brtt. minni hl. þykir mér rétt að fara nokkrum orðum, því að hún er svo mjög í ósamræmi við það, sem hv. 2. þm. Rang. talaði um áðan, og raunar um allt annað, því að í henni felst alls engin heimild til að leggja fram fé til kaupa á flugvél, það er beinlínis girt fyrir það með till. En till. hljóðar svo, með leyfi hæstv. forseta: ,;Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að leita samvinnu við Slysavarnafélag Íslands um kaup á 4 manna helicopterflugvél af öruggustu gerð og heimilar fé úr ríkissjóði til þess að starfrækja slíka flugvél hér við björgunarstarfsemi og landhelgisgæzlu á þann hátt, sem hentugast þykir, í samráði við Slysavarnafélagið.“ Heimildin er hér einungis bundin við, að ríkisstj. megi leggja fram fé til starfrækslu flugvélarinnar, og girðir það auðvitað fyrir, að ríkisstj. megi leggja fram fé til kaupa á helicopterflugvél. Ég veit nú ekki, hvernig í þessu liggur og hver meiningin er með þessu orðalagi, en mér finnst, að hv. flm. verði að breyta orðalagi till., ef tilgangurinn er sá, sem hv. 2. þm. Rang. lýsti hér áðan að mótaði flutning þessarar till. Þetta vil ég aðeins benda hv. flm. á. Nú vil ég enn fremur í sambandi við þá hörðu dóma, sem hér hafa verið felldir um gagnsleysi þessarar flugvélar — en ég hef að vísu ekki hlustað á nema það, sem hv. 2. þm. Rang. sagði hér áðan, að einskis væri í fengið, þótt þessi flugvél væri keypt, en ölIu borgið, ef stærri vél væri keypt —, benda á bréf flugráðs, en eftir að búið er að telja nokkra ókosti þessarar flugvélar í sambandi við landhelgisgæzluna, þá segir þar, með leyfi hæstv. forseta:

„Fjögurra sæta helicopterflugvél, t. d. S-51, er jafnvel ekki algerlega fullnægjandi, og efast flugráð um, að á markaðinum sé í dag til helicopterflugvél, er geti leyst umrætt verkefni“ (þ. e. a. s. landhelgisgæzlu og björgunarstarfsemi á sjó) „af hendi, svo að sæmilega öruggt sé, enda eru helicopterflugvélarnar enn á frumstigi. S-51 hefði þó að mörgu leyti mun meiri möguleika en Bell-47, t. d. meira flugþol, meiri flughraða og vinduútbúnað til þess að draga skipbrotsmenn upp í vélina.“

Þannig standa þá sakir, að allar þessar helicopterflugvélar, sem verið er að reyna, eru meira og minna ófullkomnar við hin erfiðari verkefni, t. d. að aðstoða við björgun úr strönduðum skipum, því að flugráð segir, að enn sé engin flugvél til, sem geti innt það fullkomlega af hendi. Þetta er því allt á tilraunastigi, líka með hinar stærri tegundir, þótt þær hafi að vísu yfirburði á sumum sviðum yfir hinar minni. Það er því mjög athugandi, ef við Íslendingar kaupum slíka vél og gerumst þar með athugendur á þessu sviði, hvort heppilegra sé að kaupa flugvél, sem er þrisvar sinnum dýrari að stofnkostnaði og þá væntanlega líka að rekstrarkostnaði en sú, sem við höfum hér vö1 á. Það getur því verið álitamál, hvar heppilegt sé að byrja. Það er sjálfsagt hægt að finna bæði rök með og móti, en ég vil ekki gera mig að dómara í þessu efni. Ég hef gert hér grein fyrir afstöðu minni. Hún er í stórum dráttum sú, að ég tel möguleika litlu vélarinnar vera meiri á sviði björgunar en landhelgisgæzlu og tel því rétt að skipta kostnaðinum að jöfnu milli ríkissjóðs og Slysavarnafélagsins. En Alþingi hefur ekki í sínu valdi, hvort flugvélin er keypt eða ekki, heldur eru það aðrir aðilar. Það, sem hér er farið fram á, er einungis þátttaka ríkissjóðs í rekstri flugvélarinnar. Nú kann það vel að vera vegna hins mikla dráttar, sem orðið hefur á afgreiðslu þessa máls, fyrst á afgreiðslu þess til fjvn., en síðan varð á því talsverður dráttur, að vísu ekki mikill, að hún skilaði málinu til hæstv. ríkisstj., og svo hefur málið legið í meðförum þingsins um langan tíma, — að öll þessi atvik og svo gengisbreytingin, sem nýverið var ákveðin, hafi þau áhrif, að það fjármagn, sem Slysavarnafélagið hefur nú í sjóði og verja á til kaupa á slíkri flugvél, hrökkvi ekki til að inna kaupin af hendi. Þá strandar auðvitað málið og vélin verður þá send út aftur. Er þá ekki hægt um það að segja, hvað langur tími kann að líða, þar til þessi eða einhver önnur helicopterflugvél verður keypt, en á meðan erum við sviptir möguleikunum, sem við þessa vél eru tengdir.

Ég ætla svo ekki að orðlengja þetta frekar, þótt ástæða hefði verið til vegna brýninga þeirra, sem hv. 2. þm. Rang. var hér með gagnvart þm. Ég hef hér skýrt mína afstöðu til þessa máls, og hv. 2. þm. Rang. og aðrir, sem það vilja, mega fella eins þunga dóma yfir hana sem þeir vilja, en ég tel mig allt að einu standa föstum fótum á þeirri afstöðu minni, sem ég hef hér lýst.