29.03.1950
Sameinað þing: 37. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 353 í D-deild Alþingistíðinda. (3926)

132. mál, ljósviti og skýli á Faxaskeri

Flm. (Jóhann Jósefsson):

Herra forseti. Ég hef hlustað á ræður hv. þm. Hafnf. og hv. þm. Barð. um þetta mál. Ég vil geta þess, að það var engan veginn ætlan mín með flutningi þessarar tillögu, að gengið yrði fram hjá löglegum aðilum, er dómbærastir teljast um þessa hluti, svo að þeir mættu segja af eða á um þessa vitabyggingu. Ég vissi, að það liggur í höndum fjvn. að beina málinu inn á þessar brautir. En ég tel ástæðu til þess, að ég ber þessa till. fram fyrir þingheim, fremur en aðrar tillögur um vitabyggingar, þar sem hér er ekki aðeins um byggingu vita að ræða, heldur og byggingu skýlis fyrir sjóhrakta menn. Ég vona, að tillit til þessa verði tekið af þeim háu aðilum, sem um þetta mál fjalla.