04.05.1950
Sameinað þing: 44. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 354 í D-deild Alþingistíðinda. (3933)
138. mál, læknabifreiðar
Kristín Sigurðardóttir:
Herra forseti. Ég hef komið með brtt. við þáltill. hv. þm. — Ég skil vel, að læknar hafa mikla þörf fyrir bifreiðar, en þó að þeir hafi mikla þörf fyrir að fá fluttar inn bifreiðar, þá er þó ekki síður þörf að flytja inn sjúkrabifreiðar. Það er kunnugt, að Reykjavík á aðeins tvær sjúkrabifreiðar, sem eru í gangi og eru þó svo miklir garmar, að ekki er hægt að senda þær út á land. Þær hafa annazt svo að segja alla sjúkraflutninga sunnan- og vestanlands. Nú eru þær svo úr sér gengnar, að ekki er hægt að senda þær út á land, hvað sem við liggur. Það eru að vísu til sjúkrabifreiðar á Selfossi og í Hafnarfirði, en þær geta bilað líka, og þá er í óefni komið. Það hefur verið sótt um leyfi fyrir sjúkrabifreiðum fyrir Rauða krossinn, en það hefur ekki fengizt. Þess vegna kom ég nú með till. um, að svo framarlega sem hægt er að veita leyfi fyrir læknabifreiðum, þá verði veitt leyfi fyrir sjúkrabifreiðum, því að allir sjá, hvílík nauðsyn það er.