26.04.1950
Sameinað þing: 40. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 359 í D-deild Alþingistíðinda. (3945)

145. mál, sauðfjársjúkdómar

Flm. (Finnur Jónsson) :

Herra forseti. Ég hef leyft mér ásamt tveim öðrum hv. þm. að flytja till. þessa, í trausti þess, að hún fái skjóta afgreiðslu. Ég ætla ekki að eyða tíma þingsins í það að rekja sögu sauðfjársjúkdómanna hér á landi. Hún er öllum kunn, og mikið hefur verið gert til að ráða bót á þeim. Það má vera, að eitthvað hafi verið leitað til útlanda um hjálp í þessum efnum, en lítið mun það hafa verið á seinni árum, en nú er vitað, að bæði sameinuðu þjóðirnar og stjórn efnahagssamvinnustofnunarinnar í Washington hafa á að skipa hinum færustu sérfræðingum í sjúkdómum manna, dýra og jurta og láta þessa sérfræðikunnáttu í té meðlimum sínum, þegar nauðsyn krefur, með litlum eða engum tilkostnaði, eftir samkomulagi milli þessara stofnana. Það má vera, að þetta beri engan árangur, en við erum nú að leggja út í kostnaðarsamar aðgerðir á þessu sviði, svo að við flm. töldum rétt að athuga þetta jafnhliða öðrum ráðstöfunum. Ætlunin er því ekki að hindra neitt, sem nú er verið að gera í þessum efnum hér innanlands, heldur að reyna að fá ráðleggingar erlendis frá. Gera má ráð fyrir, að þetta kosti okkur lítið sem ekkert, en vænta má árangurs, og mikið er í húfi. Því vænti ég, að till. verði samþ. og verði að umr. lokinni send til síðari umr. og fjvn.