26.04.1950
Sameinað þing: 40. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 359 í D-deild Alþingistíðinda. (3946)
145. mál, sauðfjársjúkdómar
Páll Zóphóníasson:
Herra forseti. Ég hef verið að brjóta heilann um það, hvað ætti að fást með þessari till., en ekki komizt að neinni niðurstöðu. Það eru einstök atriði, sem ég vildi vekja athygli n. á, áður en hún fær málið til afgreiðslu. Í fyrsta lagi, að veikir þær, sem hér er um að ræða, eru taldar þrjár. Tvær þeirra eru þekktar erlendis, en ein er óþekkt alls staðar nema hér. Mæðiveikin svonefnda er til erlendis, og er víða erlendis búið að verja millj. kr. til að rannsaka hana, en án niðurstöðu. Ég vildi biðja hv. n. að athuga þetta, og getur hún séð á skýrslum hjá erlendum þjóðum, á hvaða stigi málið er hjá þeim og hvaða niðurstöðu sé vænzt. Hin veikin, garnaveikin, er þekkt um allan heim, og er talið, að hún drepi 1–3% þar, sem hún er búin að vera nokkurn tíma, en drepur meira í byrjun, en engin þjóð lítur samt á hana sem vágest. Hvað sameinuðu þjóðirnar eiga að segja um þetta, veit ég ekki. Þessi veiki er einnig í kúm, og var farið að bólusetja við henni í Frakklandi 1928 og í Englandi 1932, þar sem 1.000 kálfar voru bólusettir og 1.000 voru ekki bólusettir, og drapst nokkuð af þeim, en ekkert af hinum. Hér var gerð tilraun á 100 lömbum, og af lömbunum, sem voru ekki bólusett, eru 6 dauð, en ekkert af hinum. Ég vildi því vita, hvað ætti að gera með að leita til sameinuðu þjóðanna í þessum efnum. Ef það hefði átt að leita til þeirra um styrk til fjárskiptanna, þá hefði ég skilið það, en í till. er ekkert farið fram á slíkt, en ég get ekki séð, að hvaða gagni getur komið að samþ. hana svona. Ég vil biðja hv. n. að athuga vel, hvað fyrir liggur í málinu, og væri gott, ef hún gæti skýrt þm. frá athugunum sínum í nál. Ég geri ráð fyrir, að bæði hér í þinginu og eins utan þess séu margir, sem ekki gera sér ljóst, að veikir þessar vinna einnig tjón erlendis. Um þingeysku mæðiveikina vita menn fátt, og væri það þá helzt um hana, sem hægt væri að fá leiðbeiningar, en þó býst ég varla við því. En ég vona, að hv. n. kynni sér þetta vel og afli upplýsinga, sem ég held þó að séu af skornum skammti, áður en hún gengur frá till.