03.05.1950
Sameinað þing: 43. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 363 í D-deild Alþingistíðinda. (3952)
150. mál, austurvegur
Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):
Herra forseti. Það eru aðeins fáein orð um þessa þáltill., áður en hún fer til nefndar. — Það er nú svo, eins og hv. þm. vita og hv. 1. flm. benti á, að til er löggjöf um Austurveg, þar sem er heimild til þess að taka 20 millj. kr. lán til þess að leggja þennan veg. Þessi löggjöf var sett 1946. Og það hefur þess vegna ekki á þeim tíma, sem liðinn er síðan, skort heimild til þess að taka lán í þessu skyni, til þess að hefjast handa um þessa vegagerð. En þær ríkisstjórnir, sem setið hafa síðan og fram að þessu — og nú er sú þriðja þeirra setzt á rökstóla —, hafa ekki treyst sér til þess að nota þessi heimildarlög. Og það er blátt áfram af því, hvernig ástatt er nú í landinu um fjármál, sem öllum hv. þm. er ljósara en svo, að ástæða sé til að rekja það. Allir hv. þm. vita, að ríkissjóður er svo gersamlega hlaðinn skuldum, að þess eru engin dæmi í sögu landsins fyrr, og þetta er fyrir það; að Alþ. og ríkisstjórnir hafa ákveðið miklu meiri framkvæmdir á vegum ríkissjóðs eftir einstökum lögum, en ríkissjóður hefur haft nokkra möguleika á að standa undir. Og þar hefur verið lögfest að gera miklu meira en nokkrir möguleikar hafa verið á að fá lán til. Og þar af stafar það hörmulega ástand, sem orðið er raunveruleiki í þessum efnum. Og þetta eru ástæðurnar fyrir því, að ríkisstjórnirnar, sem setið hafa að völdum síðan lög um Austurveg voru samþ. á Alþ., hafa ekki treyst sér til þess að fara af stað með að framkvæma þessi lög. Og það er af þessum ástæðum, sem það er ekki hægt á þessu ári að fara af stað með að framkvæma þessi lög. Það er alveg óframkvæmanlegt að byrja á þessu verki í ár. En til þess að færa þessum orðum mínum frekari stað, verð ég að koma inn á tvö eða þrjú atriði.
Ef við litumst um í stjórnarráðinu þessar vikurnar, þá eru viðfangsefnin þar nú þau að reyna með einhverju móti að finna leiðir til þess, að allra bráðnauðsynlegustu framkvæmdir þurfi ekki að stöðvast vegna fjárskorts. Þetta vita allir hv. þm. líka, því að þeir vita, hvernig þeir þurfa að ganga á milli aðila hér í landinu til þess að reyna að útvega lán til þeirra framkvæmda, sem þeirra héruð eru með á prjónunum, og vita, hvernig það gengur. Og þeir vita líka, að ríkisstj. hefur enga möguleika til þess að hjálpa til í þessum efnum, þó að hún vildi veita ríkisábyrgðir í þessum efnum, af því að það er ekki hægt að fá lán. Þetta ástand er ekki nema eðlilegt, þegar vitað er, hvernig við höfum hagað okkur, og eftir því, hver samdráttur er orðinn í útflutningsframleiðslunni. Og þegar það er athugað, þá er hverju barninu það skiljanlegt, að svona hlýtur þetta að vera með lánsmöguleikana, eins og ég hef greint. Ég nefni til dæmis um þau vandræði, sem nú þarf að leysa, að hér fyrir austan fjall standa alllangar rafmagnslínur, þar sem aðeins eru komnir staurarnir, en þráðinn vantar, til þess að hægt sé að koma rafmagnsleiðslu þar við, og engin ráð eru til þess að koma rafmagnsþræðinum á þessa staura, vegna þess að það vantar bæði erlendan gjaldeyri og íslenzka peninga til framkvæmdanna, sem menn sjá engin ráð til þess að ná í. Það vantar ekki lánsheimild til þess að bjóða út lán til þessara framkvæmda til að greiða það, sem þarna vantar að setja upp, en það vantar möguleikana til þess að fá þessi lán. Og hv. þm. vita, að margar raforkuframkvæmdir, bæði dieselstöðvar og annars konar rafmagnsvirkjanir, eru alveg í þann veginn að stranda vegna þess, hve mikið hefur verið færzt í fang í sambandi við þessar framkvæmdir. Og því er nú svo óskaplega ástatt, að það er varla, að menn geti leyst út sem er vegna lánsfjárskorts — vélar og tæki til þessara hluta, sem liggja hér á hafnarbakkanum. Og það verður að reyna í slíkum tilfellum að fá lán, 50 þús. kr. í einum stað og 100 þús. kr. í öðrum o. s. frv., til þess að forða því, að þessar framkvæmdir stöðvist alveg. Og ég tel alveg ákveðið, að það verði að hjálpa fyrst þeim framkvæmdum, sem svo er ástatt fyrir eins og ég nú gat um síðast, áður en farið er út í að reyna að setja af stað nýjar framkvæmdir eins og stefnt er að með þessari þáltill. Það þýðir ekkert að ætla sér — í viðbót við öll þau vandræði vegna annarra framkvæmda, sem að því eru komnar að stöðvast — að hefja stórkostlegar nýjar framkvæmdir. Þeir, sem byrjað hafa á framkvæmdum fyrir atbeina þess opinbera, svo sem raforkuframkvæmdum, eins o ég hef getið, o. fl., eiga í raun og veru rétt á því, ef einhver lán er hægt að fá innanlands, að þeir fái að njóta þeirrar aðstoðar eða á annan hátt verði komið þeim til aðstoðar, til þess að forða frá stórskemmdum þeim framkvæmdum, sem þegar er búið að leggja í — og m. a. í sömu sveitum, sem þeir hv. þm. eru fulltrúar fyrir, sem flytja þessa þáltill. hér um Austurveg, og í þeirri sveit, sem hv. síðasti ræðumaður er fulltrúi fyrir. Þannig verður að reyna að koma í veg fyrir stöðvun og jafnvel óbætanlegt fjártjón hjá þeim, sem búnir eru að leggja í stórframkvæmdir, ef um einhverja lánsmögu1eika væri að ræða. En það getur hver maður séð, sem fylgist með hér í þinginu, að það er ómögulegt að sjá það í dag, hvernig það gæti tekizt að sjá lánsmöguleika til þess að fara nú út í þær framkvæmdir, sem hér er um að ræða í þessari till. Og það mundi engin ábyrg ríkisstjórn gera að nota það litla lánstraust — eins og nú er komið málum — , sem kynni að vera fyrir hendi, til þess að byrja á nýjum stórframkvæmdum, nema þá að um væri að ræða að komast hjá einhverju neyðarástandi, án þess að fyrst væri leyst úr því, sem ég hef tekið fram, að á sér stað um ýmsar framkvæmdir, sem þegar hefur verið farið af stað með, en eru að því er virðist að því komnar að fara í strand vegna fjárskorts. — Og hér er ekki aðeins spurning um lánsfé, hvort hægt sé að fá það, heldur líka fjárfestingarspursmál. Nú er búið að ganga frá fjárfestingaráætlun fyrir árið 1950. Og ef menn vilja fara út í að gera svona stórframkvæmdir, þá á að sækja um það til fjárhagsráðs fyrir fram. Þetta vita allir hv. þm., að þetta á að koma inn í fjárfestingaráætlun ársins, ef úr framkvæmdum á að verða. En vitanlega hefur þetta ekki verið gert. Og í þeirri fjárfestingaráætlun, sem verið er að vinna eftir, er aðeins gert ráð fyrir sams konar, og þó líklega heldur minni vegagerðum heldur en voru framkvæmdar í fyrra. — Nú hugsa menn kannske sem svo: Er ekki hægt að bæta við fjárfestingarleyfin, svo að þau verði ríflegri en áætlað hefur verið? En þá er rétt að rifja upp, að það er búið að veltast með það vikum og mánuðum saman, hvort það mundi vera hægt að bæta við fjárfestingarleyfum fyrir örfáum íbúðarhúsum manna úti á landi og hér í bænum, sem sótt hafa um leyfi til byggingar íbúða. Ef ætti að bæta almennum fjárfestingarleyfum ofan á fjárfestingaráætlunina, eins og hún liggur nú fyrir, þá er alveg útilokað, að yfirleitt nokkur slík íbúðarhúsaleyfi fáist, sem þó mikið hefur verið um rætt, að þyrftu nauðsynlega að bætast við, því að svo naumt er siglt í þessum efnum. Og það er vitanlegt, að stórframkvæmd eins og þessi þarf auðvitað að koma á sínum stað og tíma inn í fjárfestingaráætlunina.
Ég sé nú ekki ástæðu til að ræða þetta mál í einstökum atriðum, en vildi aðeins vekja athygli á þessu atriði, fjárfestingaráætluninni almennt. Og ég efast ekki um, að hv. alþm. muni athuga þau mál, sem hér eru til meðferðar. með tilliti til þess, hvernig ástatt er. Og hv. flm. og áhugamenn í þessu máli gera vitanlega sitt til þess að halda þessu máli vakandi með því að minna á málið, — jafnvel þótt erfitt sé nú um vik, — með því að flytja þessa þáltill. En ástæður eru nú eins og ég hef greint. Og ég veit, að þeir við athugun munu sjá, að það er rétt, sem ég hef sagt. Þetta er ákaflega mikið mál, eins og hv. frsm. sagði, vegna þess að flutningar á þessum svæðum gætu orðið ódýrari, ef vegur þessi væri lagður, sem till. er um, heldur en á þeim vegum, sem við höfum haft austur fyrir fjall. En við erum nú mjög hættulega staddir fjárhagslega, og ástandið er í stórum dráttum eins og ég hef lýst því. Hitt er svo annað mál, að leita verður færis til þess að koma þessum miklu framkvæmdum, sem í þessu efni áformaðar eru, í framkvæmd eins fljótt og möguleikar leyfa. En eins og nú er ástatt, er ekki hægt að finna möguleika til þess, að svo stöddu.