14.12.1949
Sameinað þing: 10. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 379 í D-deild Alþingistíðinda. (3990)
57. mál, hlutatryggingasjóður bátaútvegsins
Fyrirspyrjandi (Vilhjálmur Hjálmarsson):
Herra forseti. Á síðasta Alþingi voru sett lög um hlutatryggingasjóð bátaútvegsins. Í þeim l. var svo ráð fyrir gert, að sjóðurinn gæti starfað frá 25. maí n. k. Það liggur í hlutarins eðli, að til þess að framkvæmdir geti orðið svo sem til var ætlazt, þá er nauðsynlegt, að rækilegur undirbúningur fari fram, t. d. þarf að setja tvær reglugerðir varðandi sjóðstofnunina og skipa sjóðstjórn. Enn fremur skiptir það höfuðmáli, hversu til tekst um fjáröflun til sjóðsins, því að oft er það svo, því miður, að góð lög verða pappírsgagnið eitt, ef framkvæmdin er ekki sem skyldi. Ég vil taka það fram, að það er ekki af því, að ég vantreysti hæstv. ríkisstj. í þessu máli, að ég ber þessa fyrirspurn fram, heldur er tilgangur minn sá einn, að málið megi liggja sem ljósast fyrir og upplýsingar komi frá réttum aðilum um það, hvað framkvæmdinni líður. Það er mikill áhugi um þetta mál meðal þeirra, sem hér eiga hlut að, og hefur hann t. d. komið greinilega í ljós í skýrslu fiskimálastjóra til síðasta fiskiþings. Einnig hefur sama fiskiþing gert ályktun um málið, sem sýnir ljóslega, hve mikill áhugi er fyrir því og hve mikils virði þetta mál getur orðið fyrir bátaútveginn, sé það vel og skynsamlega framkvæmt. Sé ég svo ekki ástæðu til að fara um þetta fleiri orðum að sinni.