11.01.1950
Sameinað þing: 16. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 381 í D-deild Alþingistíðinda. (3996)

78. mál, skipun læknishéraða

Fyrirspyrjandi (Gísli Jónsson) :

Herra forseti. Hinn 11. marz 1945 var samþ. á Alþ. svo hljóðandi þál. — með leyfi hæstv. forseta:

„Alþ. ályktar að fela ríkisstj. að skipa þriggja manna nefnd til að athuga, hverjar breytingar kunna að vera nauðsynlegar á skipun læknishéraða og þátttöku ríkissjóðs í kostnaði við byggingu og rekstur læknabústaða og sjúkraskýla, svo og hverjar aðrar ráðstafanir væri nauðsynlegt að gera til þess að tryggja sveitahéruðum sem bezta læknisþjónustu.

Einn nefndarmanna skal skipaður samkvæmt tilnefningu heilbrigðis- og félagsmálanefnda Alþingis, annar samkvæmt tilnefningu Læknafélags Íslands og hinn þriðji án tilnefningar, og er hann formaður nefndarinnar.

Kostnaður við störf nefndarinnar greiðist úr ríkissjóði.“

Síðan þessi þál. var samþykkt, hefur verið gerð breyting á læknaskipunarlögunum, þegar Hveragerði var gert að sérstöku læknishéraði, og enn fremur breyting á lögunum um læknisbústaði og sjúkrahús. Virðist sem þetta hafi verið gert án þess að nefndin kæmi þar nærri eða till. hafi komið frá henni í nokkru formi. En tillagan um skipun hennar kom fram, er læknishérað á Snæfellsnesi var klofið í tvennt og stofnað nýtt læknishérað, sem hefur verið þjónustulaust síðan af öðrum en þeim, sem þjónuðu því áður, en ríkissjóður greitt þeim læknislaunin.

Ég hef leyft mér að flytja um það fsp. á þskj. 162, hvað líði störfum þessarar milliþinganefndar og hvenær vænta megi skýrslu um þau störf, í þriðja lagi, hverjir eigi sæti í n., og í fjórða lagi, hver kostnaður hafi orðið við nefndarstörfin. Vænti ég þess, að greið svör fáist við þessu.