15.12.1949
Efri deild: 14. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1535 í B-deild Alþingistíðinda. (40)
Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir o.fl.
Forsrh. (Ólafur Thors):
Herra forseti. Vegna fyrirspurnar hv. þm. Str. vil ég upplýsa það, að ríkisstj. mun að sjálfsögðu leitast við að leggja einhverjar till. einmitt til úrlausnar úr þessum vanda, sem mest kallar að í bili, fyrir Alþ. sem allra fyrst. Það er mjög skiljanlegt, að þessi fyrirspurn komi fram. Eins og hv. þm. sagði, fara nú jólin að nálgast, og sannarlega væri æskilegt, að hægt væri að veita eitthvert jólafrí, ekki sízt vegna þeirra hv. þm., sem eiga heima utan Reykjavíkur. Hins vegar er það staðreynd, sem mig langar til að leiða athygli hv. fyrirspyrjanda og annarra hv. þdm. að, að fundi Landssambands ísl. útvegsmanna, sem hófst 8. des., lauk ekki fyrr en nú snemma í morgun, kl. 5 til 6, og það hafa þess vegna verið mjög lítil tækifæri fyrir ríkisstj. að kynna sér till. útvegsmanna um þessi efni fram að þessu. Ég vil þó að gefnu tilefni upplýsa það, að þrátt fyrir það, að aðalforráðamenn útvegsins hafa verið mjög önnum kafnir við störf á þessum aðalfundi, hafa þó einstakir ráðh. í ríkisstj. átt nokkra fundi með sumum aðalleiðtogum útgerðarinnar, og var slíkur fundur haldinn í morgun og verður haldið áfram í dag.
Ég treysti mér ekki að svara því hiklaust, hvenær ríkisstj. geti lagt fram till. um bráðabirgðalausn þess vanda, sem hv. þm. gerði sérstaklega að umræðuefni, en ég segi það hins vegar, að ríkisstj. er alveg eins ljóst og hv. þm., að það er ákaflega æskilegt, að þetta gæti orðið sem allra fyrst. Það er ekki margra daga völ, ef það á að vera hægt að veita þinghlé fyrir jólin, það er ljóst. Meira treysti ég mér ekki til að segja á þessu stigi málsins.