11.01.1950
Sameinað þing: 16. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 392 í D-deild Alþingistíðinda. (4013)
900. mál, lánveitingar til skipakaupa o.fl.
Hermann Jónasson:
Herra forseti. Af því að ræðutíminn er hér takmarkaður við 5 mínútur, mun ég verða að láta mér nægja að minnast hér aðeins á eina hlið þessa máls, það atriði, sem hv. 1. þm. N-M. minntist hér á og svarað var af ríkisstj. með þjósti. Um það langar mig til að bera þessa spurningu upp fyrir þingið: Hvar er heimild fyrir því, að ríkisstj. taki lán, og hvar er heimild fyrir því, að ríkisstj. geti veitt lán, án þess að sérstök lög komi til? — Ég sem lögfræðingur þekki ekki þau lög. (Atvmrh.: Það er mikið sagt.) — Já, það er mikið sagt. En er það rangt? Eru lög fyrir þessu? Væntanlega getur þessi hæstv. ráðh. svarað því. — En það, sem hér er um að ræða, er eitt aðalatriðið í þessu máli. Hvað frystihúsin snertir, hefur verið farið rétt að. Ríkisstj. getur beitt sér fyrir lánum. Hin heimildin veit ég ekki til að sé til staðar. Þó hafa hér verið veittar 25 millj. kr. í lán. Var þá ekki alveg eins hægt að veita t. d. 100 milljónir? Hvar eru takmörkin? Og hvar er Alþingi statt á þessari braut?
Það virðist fullkomlega ástæðulaust af hendi stj. að svara af þjósti fyrirspurnum um þetta mál. Það virðist vera vafasamt, að hægt sé að ganga fram hjá þessu atriði. — Hvar eru lagaheimildirnar? Og ef farið er út fyrir þær — hvar eru þá takmörkin? Hér er sannarlega umhugsunar- og áhyggjuefni fyrir þessa stofnun, Alþingi.