01.02.1950
Sameinað þing: 22. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 407 í D-deild Alþingistíðinda. (4045)

99. mál, fólksflutningabifreiðar

Finnur Jónsson:

Hæstv. fjmrh. sagði viðvíkjandi þeirri fyrirspurn, sem ég beindi til hans, hvort greiddur hefði verið söluskattur í ríkissjóð af þeim bifreiðum, sem seldar voru í kössum, að erfitt væri að fylgjast með eignarheimild bifreiða, áður en þær væru skrásettar. Nú er vitað, að öll bifreiðaleyfi hafa verið gefin út á nöfn, og virðist vera einfalt að setja þá reglu fyrir úthlutun leyfanna, að bifreiðarnar séu skrásettar á nafn kaupenda, þegar þær eru fluttar inn í landið. Ef þær eru ekki skrásettar þannig, er auðséð, að verzlun hefur farið fram, sem ekki hefur getað farið fram annars staðar en hér á landi, því að leyfin eru gefin út á nöfn. Það virðist vera auðsætt, að Alþ. hafi ekki ætlazt til að taka stóran skatt af gömlum bílum, sem ganga hér kaupum og sölum, en sleppa þeim, sem flytja inn glænýja bíla og taka þá ekki úr kössunum. Það hefur ekki verið ætlun Alþ., enda stendur í 31. gr. þessara l., með leyfi hæstv. forseta: „Greiða skal gjald, 20% af matsverði bifreiða, sem ganga kaupum og sölum innanlands.“ Það getur engin verzlun farið fram með bifreiðarnar, fyrr en þær koma inn í landið. Mér finnst, að ef ekki hefur verið tekinn slíkur skattur, skorti hér samvinnu milli rn. og bifreiðaeftirlitsins, en ástæðan fyrir því, að ég spurði, var sú, að bifreiðaeftirlitið hafði á sinum tíma fengið fyrirskipun um það frá fjmrn. að skrásetja, enga bíla á nöfn annarra manna en þeirra, sem hefðu fengið leyfin, og vitanlega er það eðlilegt, en nokkru seinna hafði þessi fyrirskipun til bifreiðaeftirlitsins verið afturkölluð. Mér kom þetta mjög undarlega fyrir sjónir og gerði því þessa fyrirspurn.