03.05.1950
Sameinað þing: 43. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 416 í D-deild Alþingistíðinda. (4070)

904. mál, endurheimt handrita og forngripa

Fyrirspyrjandi (Pétur Ottesen):

Það mun vera fjórum sinnum, sem Alþ. hefur gert ályktanir um að skora á ríkisstj. að beita sér fyrir því, að endurheimt yrðu handrit og önnur skjöl og skilríki, embættismannabækur og enn fremur forngripir, sem fyrr á öldum bárust til Danmerkur og eru nú þar í söfnum, það af þeim, sem ekki hefur farið forgörðum fyrir fullt og allt. Það er vitað, að Íslendingar hafa goldið mjög mikið afhroð við það, að þessir dýru fjársjóðir hafa verið fluttir til Danmerkur, bæði í sambandi við brunann mikla, þar sem mikið af handritum Árna Magnússonar fórst, og oftar. Talið var af kunnugum, sem á þeim tíma unnu við björgun úr brunanum, að ekki hefði bjargazt nema 1/3 eða helmingur safnsins. Þá fórust líka fornminjar á vegum Hannesar Þorleifssonar, sem Kristján V. hafði gert að konunglegum fornfræðingi, og hafði hann látið safna miklu af slíkum verðmætum hér á landi, sem átti að flytja til Danmerkur. Skipið, sem flutti þessi verðmæti, fórst í hafi. Nú er ekki neinn ágreiningur um það hér innanlands, að Íslendingar eigi þau handrit, sem bjargazt hafa og enn eru í vörzlum Dana, þrátt fyrir það að enn hafi ekki tekizt að fá þessi handrit og annað slíkt flutt til landsins aftur. Sá eini árangur, sem orðið hefur af samþykktum Alþ. í þessum efnum, er sá, að 1930 tókst fyrir milligöngu ríkisstj. og Hannesar Þorsteinssonar þjóðskjalavarðar, sem sendur var í þessum erindum til Danmerkur, að fá flutt hingað heim nokkur slík handrit úr Árnasafni, sem fyrir lágu skilríki um, að hefðu verið þangað lánuð. En það var ekki nema örlítið brot af þeim mörgu og merkilegu handritum og öðrum minjum íslenzkum, sem þá tókst að fá aftur til landsins. Danakóngar og sérstaklega Friðrik III. lögðu mjög fast að háttsettum mönnum hér á landi í sinni tíð að safna handritum og senda til Danmerkur. Lét hann í veðri vaka, að hann mundi gefa þessi rit út, sem þó aldrei var gert. Fyrir þessa ásælni konungs er vitað að mikið var flutt út af handritum, og þar á meðal seldi Brynjólfur biskup Sveinsson konungi í hendur mikið af dýrmætum handritum, af því að hann bjóst við, að þeim yrði með því fyrr komið í prentun, sem ekki varð þó. Eitt af þeim handritum var hið merka handrit af Flateyjarbók. Og í hugum Íslendinga getur enginn vafi leikið á því, að það sé fullkomlega réttmætt að gera kröfur um að endurheimta þessar dýrmætu minjar til landsins, því að það er vitanlegt, að það, sem barst í hendur konungunum og nú er geymt á Konunglega bókasafninu í Kaupmannahöfn, barst í hendur einvaldskonungum og gat því ekki skapað dönsku þjóðinni eignarrétt á þessum dýru minjum, heldur leiddi það að sjálfsögðu af sjálfu sér, þegar breyting varð á sambandi ríkjanna, að þessi handrit yrðu flutt til Íslands aftur. Ég skal svo ekki ræða þetta frekar, en ég vildi vita, hvað hæstv. núverandi ríkisstj. hefur gert eða hugsað sér að gera til þess að hrinda þessu máli áfram.