03.05.1950
Sameinað þing: 43. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 417 í D-deild Alþingistíðinda. (4075)
905. mál, störf Grænlandsnefndar
Fyrirspyrjandi (Pétur Ottesen):
Það mun hafa verið í nóvember 1948, sem skipuð var 3 manna n. til þess að rannsaka réttarstöðu Íslendinga til Grænlands, og vildi ég nú mega spyrjast fyrir um, þar sem komið er á annað ár, frá því að n. þessi hóf sín störf, hvað henni hafi sótzt verkið enn sem komið er og hvort ekki megi vænta þess, að hún geti bráðlega lokið störfum, ef hún hefur ekki nú þegar lokið störfum, sem ég veit ekki um. Mér skilst, að nú sé af hálfu Dana litið svo á, að þeir séu að reka endahnútinn á uppgjörið á viðskiptum Íslendinga og þeirra, sem leiddi af því pólitíska samstarfi, sem var á milli þessara landa, — þá er ekki einasta rétt, heldur sjálfsagt, að Íslendingar láti ekki á sér standa að gera upp þessar sakir frá sínu sjónarmiði og geri kröfur til þeirra hluta, sem þeir líta svo á, að séu óefndir af hálfu danskra stjórnarvalda. Væri þess vegna æskilegt, að það gæti orðið mjög samtímis, að við gerðum kröfur frá okkar sjónarmiðum, og einn þátturinn í því er vitanlega kröfur Íslendinga til réttar og yfirráða á Grænlandi, sem mjög hafa, eins og kunnugt er, verið rökstuddar og standa að áliti bæði innlendra og erlendra fræðimanna mjög föstum fótum í fornri löggjöf, sem rás viðburðanna hefur ekki haggað að þeirra dómi að neinu leyti. Ég vildi þess vegna taka það fram, þar sem það þótti á sínum tíma rétt að láta fara fram nána athugun fróðra manna á þessu atriði, að ég teldi nauðsynlegt, að þessu verki yrði lokið sem fyrst, svo að hægt væri að koma á framfæri kröfum af hálfu Íslendinga í þessu efni sem allra fyrst og láta til skarar skriða, ef ekki tekst samkomulag milli ríkjanna, um að fá úr þeim ágreiningi skorið á vettvangi alþjóðadómstóls.