12.01.1950
Efri deild: 30. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 188 í B-deild Alþingistíðinda. (408)

81. mál, ríkisábyrgð á útflutningsvörum bátaútvegsins o.fl.

Hermann Jónasson:

Herra forseti. Þessi ræða hæstv. atvmrh. gefur ekki tilefni til langrar svarræðu. Hann sagðist ekki hafa fundið að því, að þessum tíma væri eytt í að láta málið fara á milli deilda, sem hann talaði um í sinni fyrri ræðu.

Það er sjálfsagt rétt, að þetta, sem fram er boríð í brtt. hv. 2. þm. S-M., er ekki að vilja allra útvegsmanna. Okkur, sem flytjum þetta mál, sem brtt. er um, virðist þeir vera vel tryggðir, og við viljum láta þá vera vel tryggða á þann veg, sem þeir eru með þessari brtt. En sjómenn eru líka vel tryggðir með þessari till., og ég er ekki viss um, að þeir, sjómennirnir, hafi verið spurðir jafngreinilega og hæstv. atvmrh. vill, að þeir útvegsmenn, sem hlut eiga að máli, séu spurðir, eða útvegsmenn, sem koma hingað og eiga að koma sínum verðmætum í peninga. Ég er ekki viss um, að sjómennirnir hafi verið spurðir mjög af hæstv. atvmrh. í þessu efni. — Mínir allra beztu umbjóðendur og sterkustu umbjóðendur í mínu kjördæmi eru sjómenn og formenn, og ég vildi, að einhver gæti sagt mér um þau hlunnindi, sem þeir hafa fengið fyrir setningu frílistans. Þeir eru ekki komnir upp á það lag að geta notað sér hlunnindi frílistans, hvorki að því er viðkemur hrognum né öðru. Þess vegna eru þar útgerðarmenn og sjómenn, sem vilja heldur hafa þetta á hreinu með verðábyrgðina. Þeir hafa ekki aðstöðu til að nota sér frílistann eins og aðrir. Þess vegna viljum við, að sjómennirnir og þessir menn allir séu tryggðir. Við viljum líka, að þeir, sem eru hér syðra, séu tryggðir. Og ég hef um þetta mál fullt samráð við þá útgerðarmenn og sjómenn, sem hlut eiga að máli, en eru ekki hér á næstu grösum.

Ég sé ekki ástæðu til að ræða frekar um þetta mál.