10.05.1950
Sameinað þing: 47. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 422 í D-deild Alþingistíðinda. (4091)
907. mál, lán byggingarsjóðs af gengishagnaði
Fyrirspyrjandi (Rannveig Þorsteinsdóttir) :
Herra forseti. Ég þarf ekki að hafa mörg orð um þessa fyrirspurn. Hún skýrir sig í raun og veru sjálf. Í 2. gr. l. um gengisskráningu, launabreytingar, stóreignaskatt, framleiðslugjöld o. fl. sé ég, að gengishagnaður sá, sem myndast við það, að hrein gjaldeyriseign íslenzkra banka verður eftir gengislækkunina seld hærra verði en áður, skuli renna í ríkissjóð og skuli síðan varið til lánveitinga. 1/3 gengishagnaðarins skal varið til íbúðabygginga samkvæmt I. og III. kafla l. nr. 44 frá 1946, en I. kafli þeirra l. er um byggingu verkamannabústaða. Fyrirspurnin hljóðar um það, hvort byggingarsjóður verkamanna hafi fengið þau lán, sem samkv. þessu er skylt að veita honum. Mér er kunnugt um, að byggingarsjóður verkamanna hefur mikla þörf fyrir fé, m. a. af skýrslu, sem ég hef í höndum, sem sýnir það, að beiðnir um lán liggja fyrir sjóðnum, sem nema ekki minna en nálega 12 millj. kr. Þar af er útborgað af lofuðum lánum um 3 millj. kr. og rúmlega 1 millj. kr., sem er upp í byggingar, sem þegar er byrjað á, þ. e. a. s. viðbót. Það lítur ekki út fyrir það eftir þessari skýrslu, að byggingarsjóður verkamanna hafi nýlega fengið mikið fé til umráða, heldur að það hafi staðið í stað nú um skeið; og liggur þá líka ákaflega nærri í því væntanlega svari við þessari fyrirspurn, að það upplýsist, hvort og hvenær yrði t. d. búið að fullnægja þeim beiðnum, sem nú liggja fyrir hjá sjóðnum og eru að upphæð nálægt 12 millj. kr., eins og áður er fram tekið.