12.01.1950
Efri deild: 30. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 189 í B-deild Alþingistíðinda. (411)
81. mál, ríkisábyrgð á útflutningsvörum bátaútvegsins o.fl.
Bernharð Stefánsson:
Ég hef engin rök heyrt nú á þessum fundi, sem sannfæri mig um það, að þessari hv. d. beri að beygja sig fyrir hv. Nd. sérstaklega í þessu máli.
Út af ummælum, sem hér hafa fallið við þessa umr., vil ég minna á það, að deildir Alþingis eru gersamlega jafnréttháar og jafngilt það, sem hvor þd. samþykkir fyrir sig, og ef þeim ber á milli, þá verður að útkljá það í Sþ. Ég tel það því ekki nokkurn leik, þó að þessi hv. þd. haldi við það, sem hún hefur samþ. og talið rétt, og víki ekki frá því. Ég segi því já.
Frv., svo breytt, samþ. með 14 shlj. atkv. og afgreitt til Sþ.