16.05.1950
Sameinað þing: 50. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 434 í D-deild Alþingistíðinda. (4128)
911. mál, áburðarverksmiðja
Landbrh. (Hermann Jónasson) :
Herra forseti. Þessum atriðum er að nokkru leyti svarað í þeim umr., sem hér hafa farið fram nýverið, en það eru þó tvö atriði, sem hér er sérstaklega spurt um. Hv. 2. þm. Reykv. staðhæfði, að áform okkar um byggingu áburðarverksmiðju sætti mótspyrnu, og spurði, hvort sú mótspyrna væri yfirunnin. Ég hef ekki sérstaklega kynnt mér, hvernig þessari mótspyrnu er háttað, en það er vitað mál, að þeir, sem framleiða sams konar vöru og aðrir ætla að hefja framleiðslu á, eru á móti slíkri samkeppni, og gegn fyrirætlunum okkar um byggingu áburðarverksmiðju mun hafa verið andstaða á fundunum í París haustið 1948. Samt sem áður hefur fyrrv. landbrh. staðhæft, að fulltrúi okkar í Bandaríkjunum hafi sagt sér, að þrátt fyrir þessa andstöðu, þá mundi leyfið fást, ef eftir því væri gengið, en það hefur ekki verið gert enn, af því að það var fyrst nú fyrir nokkrum dögum, að ríkisstj. hafði ákveðið að virkja Laxá og Sogið fyrir Marshallfé og ráðast síðan í byggingu áburðarverksmiðjunnar. Það verður því fyrst nú, að gengið verður eftir þessu leyfi, og hef ég þegar látið undirbúa það. — Þá er spurt um það, hvort vélar hafi verið pantaðar, en það er vitanlega ekki gert, fyrr en fengið er samþykki fyrir því að nota Marshallfé til verksmiðjubyggingarinnar, og þótt kostnaðaráætlanir liggi fyrir, þarf að fara yfir þær aftur, áður en vélarnar eru boðnar út.