15.02.1950
Sameinað þing: 26. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 413 í D-deild Alþingistíðinda. (4133)
114. mál, erlendar fréttir útvarpsins
Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):
Herra forseti. Það væri út af fyrir sig vert að ræða starfsemi útvarpsins, en ég mun ekki gera það af þessu tilefni, heldur svara fyrirspurnum þessum, sem hér liggja fyrir til ríkisstj. og eru tvær. Og er sú fyrri: „Hefur ríkisstjórnin fyrirskipað fréttastofu útvarpsins að taka fréttir eingöngu frá ákveðnum útvarpsstöðvum?“ Svar er nei. Og sú síðari: „Ef svo er ekki, hefur þá ríkisstj. bannað fréttastofu útvarpsins að birta fréttir frá ákveðnum útvarpsstöðvum?“ Svar er nei. Ríkisstj. hefur engin afskipti haft af fréttaflutningi ríkisútvarpsins.