24.11.1949
Sameinað þing: 4. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 84 í D-deild Alþingistíðinda. (4140)
16. mál, Evrópuráðið
Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):
Herra forseti. Þingheimi er nú sjálfsagt kunnugt um þá stofnun, sem hér er um að ræða, hið svo kallaða Evrópuráð, sem komið var upp á s. l. sumri. Aðdragandi þess er sá, að einkanlega eftir styrjöldina, þó að um það hafi verið hreyfingar áður, hefur vaknað ríkur skilningur hjá ýmsum um það, að ef vel ætti að fara, þyrftu Evrópuríkin að hafa nánara samstarf sín á milli, heldur en áður var. Þetta hefur í senn verið til athugunar hjá ríkisstjórnum, sérstaklega í vesturhluta álfunnar, og eins hjá félagsskap, sem ýmist hefur áður verið til og tekið þetta upp á stefnuskrá sína, eða þá félagsskap eða hreyfingum, sem sérstaklega hafa verið stofnaðar til þess að ýta þessu máli áleiðis, og er þar helzt að geta hins mikla fundar, sem vorið 1948 var haldinn í Hollandi, þar sem Churchill og ýmsir aðrir meiri háttar stjórnmálamenn voru aðalforgöngumenn, og einnig a. m. k. tveir íslenzkir stjórnmálamenn, Ólafur Thors og Finnur Jónsson, tóku þátt í.
Það hefur verið nokkur ágreiningur milli þeirra, sem mestan áhuga hafa haft fyrir þessu máli, um það, hversu valdamikil þessi stofnun, Evrópuráðið, skyldi vera í upphafi, og er greinilegt, að ríkisstjórnirnar, og þá ekki sízt ríkisstjórn Stóra-Bretlands, vilja fara varlegar, heldur en sá félagsskapur, sem beitt hefur sér fyrir framgangi þessarar hugmyndar. En niðurstaðan varð sú, að á síðasta vori komu ríkisstjórnir þessara ríkja, eða flestra þeirra, saman á fundi í London og stofnuðu sterk samtök um þetta Evrópuráð. Og skyldi fyrsta þing þeirrar stofnunar vera haldið í ágúst í sumar s. l. Íslenzku ríkisstjórninni var ekki boðið til þessa fundar í London í vor, og vakti það furðu sumra, bæði hér á landi og annars staðar, og mun raunar strax hafa komið til tals á þessum fundi í London og í sambandi við þennan fund, að eðlilegt væri, að Íslandi væri boðin þátttaka. Og er þess sérstaklega að geta, að ríkisstjórnir Norðurlandanna þriggja, Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar, létu sér mjög umhugað um, að Íslendingar gerðust aðilar að þessu ráði, og raunar var líka vitað, að írska ríkisstjórnin hafði fyrir því mikinn áhuga og sjálfsagt fleiri. Eftir forgöngu Norðurlanda-ríkisstjórnanna, og þó einkum dönsku ríkisstjórnarinnar, varð það svo úr, að ríkisstjórn Íslands var boðið um það leyti sem ráðið kom saman til þings í Strassburg að gerast aðili að þessari stofnun. En íslenzka ríkisstj. taldi ekki fært fyrir sig að taka ákvörðun um það, heldur yrði í því efni að liggja fyrir um málið samþykkt Alþ. Og þó að það e. t. v. væri ekki formleg nauðsyn, vegna þess að þessari stofnun eru ekki samfara slíkar skyldur, að það sé stjórnskipuleg nauðsyn, að Alþ. fjalli um málið, þá þótti það bæði eðlilegast og málið hins vegar ekki það aðkallandi, að ástæða væri fyrir ríkisstj. að taka um það ein ákvörðun, heldur var þakkað fyrir boðið og sagt, að málið mundi verða lagt fyrir Alþ., strax og það kæmi saman, jafnframt því sem þess var getið, að allar líkur væru til þess, að boðið yrði þegið. Og voru þau skilaboð látin fylgja með, eftir að ríkisstj. hafði haft samráð við þá flokka, sem hana studdu, að þeir væru þeirri stefnu vinsamlegir, að íslenzka ríkisstj. tæki þátt í þessari stofnun.
Það er í samræmi við þetta, að þessi till. er nú lögð hér fram, og tel ég eðlilegt, að málið verði sent til hv. utanrmn. að lokinni þessari umr., og geri ég það að till. minni. Og n. gefst þá kostur á að íhuga bæði málið í heild og einstakar gr. Og verður hæstv. Alþ. þá að taka afstöðu til málsins að því loknu.
Eins og ég sagði áður, þá eru nú í þessum samningi, sem hér liggur fyrir ekki lagðar mjög miklar skyldur á þátttakendur. Þetta eru meira og minna laus samtök, sem meir lýsa vilja þátttökuríkjanna til samstarfs heldur en fram sé tekið, hversu því samstarfi skuli háttað eða hversu víðtækt það skuli vera. Og skuldbindingar getur þessi stofnun ekki lagt á þátttökuríkin, nema þau hverju sinni gefi samþykki sitt til þess. Hitt er annað mál, að við verðum að borga okkar hlutfall í kostnaðinum sem þátttakendur í þessu ráði, sem verður við þessa stofnun, — endanlega er hann ekki ákveðinn, en mér skilst, eftir bráðabirgðaupplýsingum, sem utanrrn. hefur gefið mér að fengnum upplýsingum frá þessari stofnun, að það yrði innan við 50 þús. kr. á ári heildarkostnaður okkar af þessari stofnun, — og þar að auki verðum við að standa undir ferðalögum þeirra manna, sem sitja ráðherrafundina, sem verða í sambandi við þessa stofnun, og eins þingin. En stofnunin skiptist í tvennt: Annars vegar eru ráðherrafundirnir, þar sem annaðhvort mæta ráðherrar þeirra ríkja, sem þátt taka í stofnuninni, eða fulltrúar þeirra, og svo hins vegar þingin, sem ráðgert er, að haldin séu einu sinni á ári suður í Strassburg og standi mánaðartíma venjulega. Og þar eru misjafnlega margir fulltrúar frá hverju landi. Ráðgert er, að Íslendingar hafi þar þrjá fulltrúa, jafnmarga og Luxemburg. Stórveldin hafa vitanlega mun fleiri fulltrúa.
Tilætlunin mun vera sú, hvernig sem þetta reynist í framkvæmdinni, að á þingum þessum komi fulltrúarnir fram ekki sem sérstaklega fulltrúar síns lands, heldur, ef svo má segja, góðir Norðurálfumenn, en aftur á móti í ráðherranefndinni séu þeir fulltrúar ríkjanna sem slíkir. Allt er þetta meira og minna í mótun. Og þess hefur sérstaklega verið getið og það komið fram í almennum fregnum, að nokkur ágreiningur er á milli þingsins annars vegar og ráðherranefndarinnar hins vegar um það, hvernig störfum skuli háttað, hversu þingið skuli hafa mikið vald og af hvaða málum það skuli skipta sér. Hvernig þeim málum muni ljúka, skal ég ekki segja, enda skiptir það ekki öllu máli á þessu stigi. Það, sem menn nú taka afstöðu til, er, hvort þeir telji, að slíkt samstarf Evrópuríkjanna — í því eru nú flest ríki í Vestur-Evrópu, en ekki Austur-Evrópuríkin — sé æskilegt að sé nánara en verið hefur, sem er ekki hernaðarsamstarf, og hvort Íslendingar telja heppilegt fyrir sig, úr því að til þess hefur verið stofnað af öðrum ríkjum, og það eðlilegt, að þeir taki þátt í því. Ríkisstj. lítur svo á, að það samstarf, sem hér hefur verið stofnað af öðrum, sé heppilegt, og úr því að það sé til, eigi Ísland að taka þátt í því. Og þess vegna er þessi till. flutt. — Ég geri það að till. minni, að henni verði vísað til síðari umr. og utanrmn.