12.01.1950
Sameinað þing: 18. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 197 í B-deild Alþingistíðinda. (422)
81. mál, ríkisábyrgð á útflutningsvörum bátaútvegsins o.fl.
Skúli Guðmundsson:
Herra forseti. Þetta er þegar orðið allrætt mál frá ýmsum hliðum, og talað er um erfiðleika við framkvæmd á þessu frv., sem ekki er nú orðið að l. enn þá, og þeim breyt., sem fram eru bornar. Hæstv. atvmrh. talaði mjög um það, að erfitt mundi vera að reikna út, hvað eigi að borga mikla uppbót á lýsisverðið samkv. þessari breyt., ef samþ. verður við frv., til þess að þeir, sem eiga lifrina og leggja hana inn, geti fengið einnar kr. og þrjátíu aura verð á hvern lítra, og þetta segir hann þrátt fyrir það, þótt ríkisstj. eigi yfir að ráða starfskröftum hinna færustu sérfræðinga á þessu sviði. En nú hefur hæstv. atvmrh. gefið upp, að verði till. hans samþ., þá muni ríkisstj. setja lýsi á frílista. Ég hef áður haldið því fram í neðri deild, að hæstv. ríkisstj. hafi enga heimild til að setja vörur á frílista, en nú skulum við segja, að lýsið sé sett á frílista. Er þá allur vandinn leystur? Útflytjendur leggja vissar prósentur á gjaldeyrinn, en sú álagning á vitanlega að koma til útgerðarmanna og hlutarsjómanna. En geti hæstv. ríkisstj. ekki reiknað út, hve mikið þurfi að leggja á lýsið til að greiða kr. 1,30 pr. lítra af lifur, hvernig ætlar hún þá að reikna út, hve miklu útflytjendur eiga að skila til útgerðarmanna og sjómanna, og þá getur orðið vafasamt, að álagið komi til réttra aðila, og gætu menn þá haft efasemdir um þetta. Ef þetta ætti að framkvæma samvizkusamlega, þá yrði ekki komizt hjá að reikna þetta út, og væri þá hægt að láta hina reikningsfróðu koma þar til skjalanna. En þeim getur auðvitað skjátlazt, og komu fram athyglisverðar upplýsingar um það hjá hv. þm. Snæf. (SÁ). Hann gat um það, að félag við Breiðafjörð, sem hefði keypt fisk 1947, hefði tapað miklu á því, að verðið var ekki reiknað rétt. Sama verð var ákveðið á hráefninu á öllum stöðunum, en varan var misjafnlega góð á hinum ýmsu stöðum. Á einum staðnum fæst minna magn af saltfiski og hraðfrystum fiski, miðað við þunga hráefnisins, en á öðrum stað, og þannig fór fyrir félagi þessu og beið það mikið tjón af. Ég tel það siðferðislega skyldu ríkissjóðs að bæta þeim það upp. Það mun vera verðminni lifur við Breiðafjörð en t.d. í Vestmannaeyjum, svo að Breiðfirðingar fá tiltölulega meira verð fyrir lifur sína með þessu móti, en þeir eru vel að því komnir, vegna þess hve illa hefur verið með þá farið í sambandi við fiskkaupin áður.