12.01.1950
Neðri deild: 28. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 200 í B-deild Alþingistíðinda. (432)

51. mál, tollskrá o.fl.

Fjmrh. (Björn Ólafsson):

Vegna þess, að gert var ráð fyrir, að þessi lög tækju gildi 1. janúar, en orðið hefur út undan, að þau næðu gildi fyrir þann tíma, tel ég nauðsynlegt, að til viðbótar verði gerð önnur breyt. en sú, sem n. leggur til, þ.e. að í staðinn fyrir orðin „Á árinu 1950 skal innheimta“ í upphafi 1. gr. komi: Frá 1. janúar 1950 skal innheimta. — Þessir tollar hafa verið í innheimtu frá áramótum, og mundi það gefa mönnum lagalegan rétt til að krefja ríkissjóð skaðabóta um þann tíma, ef þessu væri ekki breytt. Þetta hefur komið fyrir áður, og er bezt að setja undir þann leka. Mun ég því bera fram skriflega brtt., sem hnígur í þessa átt.