13.01.1950
Efri deild: 32. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 202 í B-deild Alþingistíðinda. (442)

51. mál, tollskrá o.fl.

Hermann Jónasson:

Herra forseti. Ég er satt að segja undrandi yfir, að þm. Barð. skyldi ekki hafa hljótt um sig í sambandi við þetta mál, því að það er sjaldgæft, að þm. fái eins eftirminnilega ofanígjöf eins og þetta frv. veitir þm. Barð. Það er eins og meinleg örlög elti þm., því að strax og hann hefur lokið varnarræðu sinni í sambandi við það, að ég minntist á öngþveitið í fjármálastjórn Sjálfstfl., þá kemur fram frv., sem er svo glöggt dæmi máli mínu til stuðnings, að ekki verður um villzt. Það er því hann, sem ætti að biðja deildina afsökunar á sínum málflutningi.

Ég skal að vísu viðurkenna það hjá hæstv. fjmrh., að þetta er ekki stórmál, sem hér liggur fyrir, en það er bara táknrænt dæmi, að slóðaskapurinn skuli vera svo mikill, að það gleymist að framlengja tollalög eins og þessi, sem hér eru til umr. Ég vil líka algerlega neita því, að það sé til einhver venja, sem heimilar að innheimta tolla án laga, eins og hæstv. fjmrh. virtist halda fram. Það væri einkennilegt fyrirkomulag, ef Alþingi felldi lög t.d. um tolla, að hægt væri að innheimta tollana áfram eftir venju. Þó að hér sé um smámál að ræða, þá er þetta ekki elns meinlaust eins og það lítur út fyrir að vera. Það er óneitanlega nýstárleg aðferð að Láta tollalög verka aftur fyrir sig, og ég veit ekki um nokkra einustu heimild til þess. Hæstv. fjmrh. sagði nú að vísu, að þetta frv. hefði orðið út undan, þegar önnur tollal. voru samþ. fyrir áramótin, en á slíkri gleymsku ber auðvitað ríkisstj. ábyrgð og þá einkum fjmrh. Það er ómögulegt að telja það sök Framsfl., eða telja þm. Sjálfstfl., að þm. Framsfl. eigi að minna sig á, þegar þeir gleyma eða trassa það, sem þeir hafa tekið að sér? Það væri nú kannske hægt að afsaka þessa gleymsku út af fyrir sig, því að mikið var að gera fyrir áramót, ef hún væri einsdæmi. En það er langt frá því. Sá hugsunarháttur, að svona lagað geri ekkert til, er orðinn svo ríkur. Það er t.d. alveg hætt að virða ákvæði stjskr. um fjárlögin, en þar er tekið fram, að ekkert gjald megi greiða af hendi, nema heimild sé til þess í fjárlögum eða fjáraukalögum. Nú er svo komið, að fjárlög eru ekki afgreidd fyrr en margir mánuðir eru liðnir af því ári, sem þau eiga að gilda fyrir, og þar af leiðandi greitt úr ríkissjóði án fjárlaga þriðja hluta ársins. Það eru líka sérstök ákvæði í stjskr. um það, að frv. til fjárlaga skuli lagt fyrir Alþingi, þegar er það er saman komið, fyrir það fjárhagsár, sem í hönd fer. Hefur þetta verið gert? Nei, það hefur verið þverbrotið. Svona er fjármálastjórnin, og vitanlega hvílir aðalsökin á þeim, sem með þessi mál fara. Þetta hlýtur hver heilvita maður að sjá, sem á annað borð kærir sig nokkuð um að sjá það.

Ég ætla nú ekki að fara lengra út í þetta hér, en vil aðeins benda á að lokum, að það er ómögulegt fyrir þm. Barð. eða flokksmenn hans að kenna öðrum um allt, sem aflaga fer í þeirra eigin höndum. Og í sambandi við þetta mál, sem hér er til umr., þá er sökin hjá fjmrh., því að auðvitað á hann að sjá um, að málin gleymist ekki, þegar svona stendur á, og ekki síður á honum að vera það auðvelt, þegar forseti d., sem málið gleymist hjá, er úr hans eigin flokki.