13.01.1950
Efri deild: 32. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 203 í B-deild Alþingistíðinda. (443)
51. mál, tollskrá o.fl.
Fjmrh. (Björn Ólafsson):
Herra forseti. Út af þeim umr., sem hér hafa orðið, vil ég minna á, að svipuð frv. og hér er á ferð voru afgreidd í flýti fyrir jól, en þá hafði þetta orðið eftir hjá fjhn. Nd. og ekki verið athugað í tíma, hversu aðkallandi afgreiðsla þess var. Það má vel vera, að mér hafi borið skylda til að sjá um, að frv. væri afgreitt, en hver svo sem sök á, þá er það viðurkennt, að hér er um yfirsjón að ræða, og hér er frv. til meðferðar til þess að bæta úr þeirri yfirsjón, eftir því sem hægt er. Ég sé nú ekki, að það hafi neitt voðalegt skeð, þó að það sé auðvitað leiðinlegt að afla slíkrar heimildar eftir á. En úr því að svona er komið, þá finnst mér engin frágangssök að samþ. frv. nú. — Um hitt atriðið, hvort endurgreiða eigi þann toll, sem innheimtur hefur verið eftir gömlu lögunum frá áramótum, er auðvitað hægt að ræða. Annars virðist mér, að það mundi verða mjög erfitt í framkvæmd, vegna þess að sú vara, sem um er að ræða, mun í mörgum tilfellum komin út til neytenda, og yrði því að endurgreiða tollinn til þeirra. — Ég sé svo ekki ástæðu til að fjölyrða um þetta. Það er viðurkennt, að mistök hafa átt sér stað, en þm. er kunnugt, hvað olli þeim, þ.e.a.s. það flaustur, sem var á afgreiðslu mála fyrir jól, til þess að þm. kæmust í jólaleyfi, og þar sem enginn stór skaði hefur skeð, sé ég ekki ástæðu til, að gert sé meira veður út af þessu máli.