13.01.1950
Efri deild: 33. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 206 í B-deild Alþingistíðinda. (450)
51. mál, tollskrá o.fl.
Gísli Jónsson:
Ég vildi aðeins gera grein fyrir afstöðu minni með örfáum orðum. Ég tók það fram áður, að ég greiddi þessu máli atkv. til þessarar umræðu, en nú get ég greitt því atkvæði áfram. Það er upplýst hér og viðurkennt af hæstv. fjmrh., að það sé af hreinni vangá, að mál þetta hefur ekki komið fyrr hér til afgreiðslu. Það er upplýst, að því var útbýtt hér 7. des., og það er ljóst, að ríkisstj. hafði ekki ástæðu til að ætla, að málið næði ekki fram að ganga, enda hefði hún ekki getað sætt sig við að það yrði fellt. Hér er aðeins um framlengingu á fyrri tekjuöflun að ræða, og ég sé ekki, enda þótt ég fylgi þessu frv., að ég ljái þeirri stefnu lið að leggja á tolla eftir á. Það er aðeins af vangá, að þetta mál hefur ekki verið afgr. áður. Hér er ekki um neinar nýjar álögur að ræða, og stj. hafði aldrei ástæðu til að ætla, að frv. yrði fellt. Ég er því með þessu frv, og viðurkenni ekki, að með samþykkt þess sé verið að leggja á tolla eftir á.