13.01.1950
Efri deild: 33. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 206 í B-deild Alþingistíðinda. (451)
51. mál, tollskrá o.fl.
Steingrímur Aðalsteinsson:
Herra forseti. Ég skal nú ekki lengja hér umræður, en leyfi mér að bera fram skriflega brtt. við 4. gr. varðandi gildistíma laganna, á þá leið, að í stað orðanna „ársloka 1950“ komi: 1. marz 1950. Rökin fyrir þessari brtt. færði ég fram áðan. Það hefur verið boðað af ríkisstj., að í næsta mánuði verði lögð fyrir Alþ. úrræði, sem eigi að vera til úrbóta í atvinnu- og fjármálum, og er því ástæðulaust að binda þetta til lengri tíma en 1. marz.
Hæstv. fjmrh. vildi ekki viðurkenna, að hann hefði lýst því yfir, að ríkisstj. gæti innheimt tolla án laga. Hann lýsti því nú samt yfir í fyrri ræðu sinni, og hvað sem öllum yfirlýsingum líður, þá er það staðreynd, að stj. hefur innheimt þessa tolla án lagafyrirmæla síðan 1. jan. Hún hefur þótzt geta þetta án þess að spyrja Alþ. Þessu hefur hæstv. fjmrh. lýst yfir, og ég tel þetta svo merkilegt, að ástæða sé til að vekja á því athygli hér á Alþ. — Ég ætla svo ekki að fjölyrða um þetta, en leyfi mér að afhenda hæstv. forseta hina skriflegu brtt. mína.