17.12.1949
Neðri deild: 16. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1544 í B-deild Alþingistíðinda. (53)

Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir o.fl.

Eysteinn Jónsson:

Ef hæstv. forsrh. ætlar að sýna spegilmynd af núverandi ástandi, þá verður sú mynd aðeins afleiðing af því, sem hann lagði grundvöllinn að með þeirri stj., sem hann veitti forustu nú fyrir nokkrum árum.