19.01.1950
Efri deild: 38. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 226 í B-deild Alþingistíðinda. (533)

29. mál, aðstoð til síldarútvegsmanna

Haraldur Guðmundsson:

Forseti. Ég kvaddi mér hljóðs á síðasta fundi vegna ummæla, sem hér komu fram frá hæstv. atvmrh. En hann er hér ekki viðstaddur nú. Mér skildist á honum, að hann vildi hugsa um það, hvort mögulegt væri að greiða fyrir þeim einum eða tveimur bátum, sem brtt. fjallar um, þó að heimild til þess væri ekki sett í það frv., sem hér liggur fyrir. Og ætlaði ég að leita eftir svari hjá hæstv. atvmrh. við því, hvort hann sæi sér það fært, því ef svo væri, þá skilst mér, að hugsanlegt væri að taka brtt. aftur, ef skýlaus yfirlýsing lægi fyrir um þetta efni. En þar sem hæstv. ráðh. er hér ekki viðstaddur, sé ég mér ekki fært að fara langt út í umr. um málið.