20.01.1950
Efri deild: 39. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 242 í B-deild Alþingistíðinda. (549)

29. mál, aðstoð til síldarútvegsmanna

Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):

Forseti. Ástæðan til þess, að ég tek til máls, er sú, að ég sem þingmaður þessarar deildar get ekki fallizt á þá brtt., sem hér liggur fyrir. Málið hefur ekki verið rætt í ríkisstj., og innan hennar og flokkanna, sem að henni standa, hafa menn um það frjálsar hendur. Ég túlka því ekki hennar skoðun. En eðlilegt verður að teljast; að við þm. deildarinnar látum í ljós skoðun okkar á slíkum atriðum, þótt stjórnin sem slík hafi ekki tekið afstöðu til þeirra, hvorki núverandi stjórn né hin fyrrverandi.

Það má nú segja, eins og hv. frsm. tók fram, að hér sé ekki um stórmál að ræða; þetta er ekki svo há fjárhæð í allri þeirri súpu styrkja og ýmiss konar aðstoðar, sem nú er soðin. En mér virðist, að hvort sem hér er um litla eða stóra fjárhæð að ræða, þá eigi ekki við að tengja þessa brtt. við þetta frv., — og mér sýnist það álitamál, hvort forseti ætti ekki að vísa henni frá sem óskyldu efni því frv., sem hér liggur fyrir. Sá ágæti forseti, sem er frsm. n., hefur að vísu vikið úr sæti, en ég ber fullt traust til varaforsetans í því efni að ákvarða um það, hvort honum beri ekki að vísa þessum brtt. frá. Ég vil vekja athygli á þessu, þótt það að vísu sé ekki svo ljóst mál, að ég vilji gera um það beina kröfu. Hér er um takmarkað tilfelli að ræða. Það getur alltaf verið álitamál, og geri ég því enga kröfu. En þetta tel ég eigi hægt. Það eru ekki til nógu rækilegar röksemdir fyrir því að tengja þessi atriði saman. Við skulum hugsa okkur, að ástæða hefði þótt til að veita bændum almennan styrk vegna harðinda og vegna þeirra hefði orðið fellir hjá þeim ár eftir ár og það væri um að ræða 5. árið í röð, sem fellir hefði orðið, og því hefði þótt ástæða til að gefa út brbl. Menn yrðu þá sammála um, að eðlilegt væri, að ríkisstj. hlypi undir bagga. En svo skulum við gera ráð fyrir, að einn bóndi eða bændur hefðu gert tilraunir með gróðurhúsarækt, en þær tilraunir hefðu farið út um þúfur. Það yrði þá óeðlilegt að tengja styrk til þeirra bænda, sem misheppnazt hafa tilraunir við ræktun gróðurhúsajurta, frv. til l. um almenna hallærishjálp til bænda vegna harðinda. Alveg eins er það hér, að fyrirhuguð er fyrirgreiðsla vegna síldveiðimanna, nema hér er um að ræða 5. árið í röð. Er það veigameira mál og meira virði en það, að útgerðarmenn fara að gera tilraunir með veiðar við önnur lönd, hér Grænland. Það er enginn þjóðfélagsvoði því samfara, þótt einstakir útgerðarmenn verði fyrir tapi. Maður verður að ætlast til, að þeir hafi ekki hætt meira fé, en þeir geta staðið undir. Hitt er ósambærilegt, þegar náttúruógæfu ber að höndum, ef þannig má að orði komast, eins og átt hefur sér stað varðandi síldarskortinn. Það er vegna þessa, að mér gremst, að farið sé að blanda þessum tveim atriðum saman. En út af fyrir sig skiptir engu máli, hvort upphæðin aukist um 70–80 þús. kr., sem eru þó peningar. Látum það vera. Það er hægt að ræða það mál og athuga, ef tekið er upp á réttan hátt. En það á bara ekki heima í þessu frv., sem er til staðfestingar á ráðstöfunum, sem er búið að setja í brbl., sem eigi voru sett vegna þess, að eitthvert gróðabrall hefði farið út um þúfur, heldur sökum aflabrests, ógæfu allrar þjóðarinnar. Svo á að fara að tengja þau styrkveitingu til einstakra manna, er lögðu út í eigin áhættu án þess að ráðfæra sig við kóng eða klerk. Ef mennirnir hafa ekki talið sig hafa efni á að ráðast í þetta fyrir eigið fé, gátu þeir leitað til þings eða stj. En þeir gerðu það ekki. Má segja að sönnu, að síldveiðimenn hafi ekki heldur leitað til ríkisstj. Að vísu er það rétt. En atvikin eru ólík, og ríkið hefur ýtt undir starfsemi síldarútgerðarmanna: reist síldarverksmiðjur og t.d. selt afurðir þeirra, bæði úr bræðslu og saltaða síld. Ríkið hefur hjálpað mörgum bátum o.fl., til að leggja atund á þetta. Þessir menn vita, að þeir hafa verið í fullri þökk ríkisins við þennan atvinnuveg, sem er undirstöðuatvinnuvegur allrar þjóðarinnar. Ekkert af þessu er sambærilegt við það, að menn telji sér áhag að því að sigla til Grænlands. En ríkið styrkti þá, m.a. með hluttöku í Útvegi h/f , sem leitaði styrks frá ríkinu, og er eðlilegt, að þeir, sem vilja leita inn á nýjar brautir, tryggi sér fyrir fram, hvort þeir fá styrk til þess eða ekki. Ég hjó ekki í það, að hv. frsm. n. kæmi með frekari skýringu á því, að framkvæmdastjórinn sagðist hafa verið neyddur til að selja til Íslendinga, en hefði verið skaðlaus af því að selja til útlendinga. (BSt: Það hefur sjálfsagt verið samningur.) Ja, en maðurinn hlýtur að hafa vitað, hvað hann var að gera, og getur ekki skellt tapinu á ríkissjóð, vegna þess að hann íafi gert vanhugsaðan samning eða hann hafi eigi farið nógu vel, og þá ætti að láta ríkið bera tapið. En maðurinn sannar hér, að hann á engan styrk skilið. Þótt þetta sé kölluð ábyrgð, er hún ein tegund af styrk. Þetta er ekki samtbærilegt við það, þegar síldveiðin bregzt. Ég get ekki fallizt á, að hægt sé að bera það saman. Ég er ekki að telja eftir, að sjómenn fái veð sín innleyst. En það getur ekki annað, en verið satt, að sjómennirnir hafi vitað, að þeir væru að fara til Grænlands, en ekki til síldveiða fyrir Norðurlandi. Það er misskilningur hjá hv. frsm., að á þetta hafi ekki verið litið. Sjómenn hafa gert upp við hug sinn, hvað væri vænlegast fyrir sig.

Segja má, að löngu máli hafi nú verið eytt í lítilvægt mál. En hér er um meginstefnu að ræða. Og 70–80 þús. kr. eru sú fjárhæð, að menn gleypa hana eigi þegjandi, nema full gögn séu fyrir því, að hana eigi að greiða af hendi. Ég tel slíka till. ekki eiga hér heima.