23.01.1950
Efri deild: 40. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 248 í B-deild Alþingistíðinda. (555)

29. mál, aðstoð til síldarútvegsmanna

Páll Zóphóníasson:

Forseti. Ég skil ekki vel þessar umr., sem hér hafa farið fram. Þegar talað er um þessa ábyrgð samkv. 2. gr., sem ríkissjóður taki á sig, tala menn hér í d. um, að ríkissjóður ýmist láni eða leggi fram féð. Það er eins og menn geri ráð fyrir, að hér sé um að ræða styrk frá ríkinu, en ekki lán, og þá, að það endurgreiðist ekki. Nú upplýsti ráðh., að það, sem veitt hefur verið af þessu þannig, væri 1.200–1.300 þús. kr. Heimildin hefur þess vegna ekki verið notuð nema að nokkru leyti. En hví þá að láta standa sömu upphæð og ríkisstj. hélt, að mundi þurfa í sumar, þegar hún setti 21/4 milljón? Verði brbl. samþ., sé ég enga ástæðu til að láta standa í þeim aðra tölu, en á að vera, þegar þetta er svo seint gert, að maður veit vel, hvaða tölu á að setja þarna inn. Ég vil þess vegna fá upplýst, hvernig á því stendur, að menn tala sitt á hvað, ýmist um ábyrgð, sem ríkið taki á sig, eða lán, sem ríkið veiti, eða framlag, sem það leggi fram. Mér er þetta ekki ljóst. Í öðru lagi vildi ég spyrja, hvers vegna ekki má setja rétta tölu inn í 2. gr., þegar fyrir liggur, hvaða tala það á að vera. Og í þriðja lagi vildi ég fá að vita, hve mikið ríkið á að ábyrgjast í fjárl. samkv. 3. gr.