23.01.1950
Efri deild: 40. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 248 í B-deild Alþingistíðinda. (556)

29. mál, aðstoð til síldarútvegsmanna

Gísli Jónsson:

Forseti. Ég vildi aðeins benda á, að þessi ræða hv. 1. þm. N–M. er byggð á hreinum misskilningi. Hann hefur ekki tekið eftir því, sem ráðh. sagði, eða því, sem ég upplýsti hér í ræðu, minni um þetta mál. Ráðh. tók skýrt fram sem svar við þeirri spurningu, er ég beindi til hans, hve há sú fjárhæð væri samtals, sem bankarnir hafa lánað í þessu skyni gegn ríkisábyrgð og hve mikið af þeirri fjárhæð yrði endurgreitt bönkunum fyrir 31. þ. m., að hann teldi ekki ástæðu til að segja frá því, hver upphæðin hafi verið, sem lánuð var, og er mér því ekki kunnugt um það, hve mikil upphæðin hefur verið — hún getur hafa verið 21/2 millj. —, en hann tók það skýrt fram, að rúm 1.200 þús. væri enn ógreitt, útistandandi, og skildist mér á ráðh., að útlánin hefðu verið miklu hærri, en þetta er það fé, sem hann taldi þörf á að taka inn á fjárl., ef ekki næðist samkomulag um greiðslufrest, en taldi ekki tímabært að gera það fyrr en sá dagur kæmi, eins og hann komst að orði. Hann tók fram, að þetta þýddi ekki neinn styrk, heldur ábyrgð fyrir ríkissjóð, sem ekki ætti að greiða aftur.

Þetta vildi ég láta koma fram. Hins vegar getur náttúrlega n. leitað sér frekari upplýsinga um þetta mál.