17.01.1950
Efri deild: 37. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 251 í B-deild Alþingistíðinda. (569)
95. mál, dýrtíðarráðstafanir
Atvmrh. (Jóhann Jósefsson):
Herra forseti. Það er að vísu hæstv. fjmrh., sem eðlilega ber að hafa framsögu í þessu máli, að svo miklu leyti sem þess er þörf. En mér er að vísu kunnugt um, hvers vegna þarf framlengingu, eins og segir í athugasemdum við frv. Þannig er ástatt í framtalsnefnd, að þar hafa ekki staðizt allar tímaákvarðanir, og þarf því að framlengja tímatakmörkin, en það ber ekki að saka nefndina að öllu leyti fyrir það, að starf hennar hefur ekki gengið jafnhratt og ætlazt var til, vegna þess að framtöl utan af landi, sem hún þarf að byggja á, hafa borizt misjafnlega fljótt. Ég hygg, að hv. deild fallist á þau rök, sem fyrir þessu liggja, og veiti málinu góðan og hraðan gang í gegnum deildina og vísi því að þessari umr. lokinni til 2. umr. og hv. fjhn.