10.02.1950
Efri deild: 53. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 254 í B-deild Alþingistíðinda. (600)
115. mál, samkomudagur reglulegs Alþingis 1950
Páll Zóphóníasson:
Herra forseti. Ég viðhafði þau orð hér um daginn, að stjórnin gerði sér ekki far um að vera við til þess að hafa framsögu á stjfrv. Nú sýna stólarnir sig. Enginn ráðh. og engin framsaga. Það þýðir víst ekki að spyrja tóma stólana, hvort menn séu ánægðir með það, að landinu er stjórnað fjárlagalaust helminginn af árinu. Þetta sýnir, að stjórnin ætlar þinginu að koma saman svo seint, að ekki sé hægt að koma saman fjárl. fyrir áramót. Ég geri ráð fyrir, að málið fari til n. og að hún fái upplýsingar hjá ríkisstj. Auðvitað hefur stjórnin heimild til þess að kalla þingið saman fyrr, en hún kærir sig sýnilega ekki um að slá því föstu í l. að hafa fjárl. tilbúin fyrir það ár, sem þau eiga að gilda fyrir. Mér finnst þessi framkoma vera fyrir neðan allar hellur, að hafa ekki framsögu á sínum málum hér og vera ánægð með það sleifarlag, sem er á þessum m álum, og ætla að viðhalda því með löggjöf framvegis.