10.02.1950
Efri deild: 53. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 255 í B-deild Alþingistíðinda. (606)

115. mál, samkomudagur reglulegs Alþingis 1950

Bernharð Stefánsson:

Ég get að vísu fyllilega fallizt á það, sem hv. þm. Str. (HermJ) sagði, að það þarf að koma nýrri skipun á þetta. Það gengur ekki þetta ár eftir ár, að ákveða alltaf með nýjum og nýjum l., hvenær Alþ. skuli koma saman. En ég tel engar líkur til, að þd. geti ráðið við það mál til mánudags, en fyrir þann dag þarf málið að fá afgreiðslu, og segi ég þess vegna nei.