13.02.1950
Efri deild: 54. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 257 í B-deild Alþingistíðinda. (612)
115. mál, samkomudagur reglulegs Alþingis 1950
Fjmrh. (Björn Ólafsson):
Herra forseti. Ég er að mörgu leyti sammála hv. 1. þm. N-M. um það, sem hann sagði um afgreiðslu fjárlaganna. Hún hefur undanfarin ár ekki verið Alþingi til mikils sóma, en það má segja, að margt valdi því, að Alþingi gegni ekki þeirri sjálfsögðu skyldu að afgreiða fjárlög fyrir áramót, og er þar fyrst að nefna hina sívaxandi efnahagsörðugleika, sem við eigum við að búa. Ég bar einu sinni fram um það till., að fjárhagsárinu yrði breytt eins og hv. 1. þm. N-M. minntist á, því að ég taldi eðlilegra, að þingið kæmi saman eftir nýár og fjallaði þá um fjárlög, sem ættu að taka gildi t.d. 1. júní. Þessi till. mín fann ekki náð fyrir augum þingsins, hver sem ástæðan hefur verið. Eins má ná því sama með því að breyta samkomudeginum, t.d. með því að færa hann fram til haustsins, þannig að Alþingi fjallaði um fjárlög nokkrum mánuðum fyrir áramót, en ég tel það nokkuð sama, hvernig þessu er háttað, ef þingið á annað borð er þannig saman sett, að það geti gengið frá fjárlögum á tiltölulega stuttum tíma og ef menn eygja lausn á efnahagsvandamálunum, svo að yfirleitt verði séð, hvernig á að afgreiða fjárlögin. Ef það er til staðar og heilbrigð samvinna á Alþingi um afgreiðslu fjárlaga, þá má auðveldlega afgreiða fjárlög fyrir áramót, þótt Alþingi komi ekki saman fyrr en 10. okt. Þó má fyllilega taka brtt. hv. þm. N–M. til athugunar, en ég efast um, að með henni sé þetta mál leyst, nema áður verði aðrir hlutir til staðar, svo sem ég hef bent á.