11.12.1949
Efri deild: 11. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 258 í B-deild Alþingistíðinda. (620)

21. mál, kosningar til Alþingis

Frsm. (Lárus Jóhannesson):

Herra forseti. Allshn. hefur athugað frv. þetta, og voru á fundi hennar allir nm. nema 1. landsk. þm. (BrB). Frv. er þess efnis að gera greiðari aðgang til kosninga fyrir þá menn, sem staddir eru erlendis, þannig að vararæðismenn Íslendinga erlendis, sem skilja eða mæla á íslenzka tungu, geti leyft slíkum kjósendum að greiða hjá sér atkvæði. Er þessi breyting til frambúðar, gagnstætt því, sem var um það frv., sem ég ræddi hér um síðast. Nefndin telur, að hér sé um að ræða breytingu til bóta, og leggja nm. til, að frv. verði samþ., allir nema sá maður, sem ég gat um áðan, að ekki var á fundinum.