25.02.1950
Neðri deild: 52. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 261 í B-deild Alþingistíðinda. (636)

123. mál, dýrtíðarráðstafanir vegna atvinnuveganna

Ásgeir Ásgeirsson:

Herra forseti. Ég býst við, að ég geti lýst því yfir f.h. meiri hl. fjhn., að áþarfi sé að senda málið í n. Því hefur tvisvar á þessu þingi verið vísað til n., þannig að álit hennar liggur fyrir um það, að þetta verði framlengt eins oft og nauðsyn krefur. Þessi framlenging gildir ekki nema um mánaðartíma, svo að ég verð að telja, að n. hafi áður sagt álit sitt um þetta mál.