03.05.1950
Sameinað þing: 43. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1554 í B-deild Alþingistíðinda. (66)
Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir o.fl.
Finnur Jónsson:
Herra forseti. Út af því, hver hafi hafið umr., vil ég geta þess, að fyrirspurn mín var borin fram í minni deild um mál, sem þar voru, en hæstv. ráðh. svarar þeim hér, þar sem þær voru ekki bornar fram. Ég held ekki, að hæstv. ráðh. hafi eins miklar áhyggjur út af þessu og hann sagði. Ég held, að þær 17½ millj., sem búið er að veita, svífi ekki allar í lausu lofti, þar sem nokkuð af því hefur verið tekið á fjárl., en nokkuð svífur enn í lausu lofti, og getur hæstv. ráðh. haft áhyggjur af því. Ég sé ekki, að Alþ. geti nema einu sinni svipt sjómenn sjóveðsréttinum án þess að bæta það. Nú er nærri liðið ár, og aðeins 1½ millj. hefur verið tekin til að bæta sjómönnum tapið, og munu nú sjómenn fara að efast um gildi sjóveða.