10.03.1950
Efri deild: 70. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 268 í B-deild Alþingistíðinda. (685)

84. mál, skipamælingar

Frsm. (Gísli Jónsson):

Herra forseti. Þann 30. júní 1939 varð samkomulag í Genf milli allmargra þjóða, sem þangað höfðu sent fulltrúa, um mælingu á skipum. Þann 10. júní 1947 var þetta samkomulag endurnýjað í Osló og ákveðið, að skip skyldu mæld upp eftir Genfarsamþykktinni. Þar sem við Íslendingar höfum gerzt aðilar að þessari samþykkt, þá liggur fyrir að breyta l. um skipamælingar til samræmis við það, enda er sú löggjöf okkar orðin harla gömul og úrelt, eða frá 1869. Það var samþ. hér í þessari hv. deild frv. um þetta efni á síðasta Alþingi, en það náði ekki samþykki hv. Nd., og var þá ágreiningur í sambandi við brtt., sem sjútvn. þessarar d. hafði gert og flutt var á þskj. 474 frá því ári. Nú liggur frv. um þetta mál hér fyrir og er flutt sem stjfrv., og hefur náðst samkomulag um áðurgreind ágreiningsatriði. Og þar sem svo er, leggur n. elndregið til, að frv. verði samþ. óbreytt. Ég sé svo ekki ástæðu til að ræða þetta nánar, en vænti, að málið fái skjóta afgreiðslu, svo að það geti orðið að lögum á þessu þingi.