27.02.1950
Neðri deild: 55. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 290 í B-deild Alþingistíðinda. (691)

125. mál, gengisskráning o.fl.

Eysteinn Jónsson:

Herra forseti. Ég geri ráð fyrir, að mörgum hafi flogið í hug, þegar þeir sáu þetta frv., sem hér hefur verið lagt fram og mælt hefur verið fyrir af hæstv. fjmrh., að svona mundi það enda, eða eitthvað á þessa leið. Hér er á 63 blaðsíðum í þessu frv. og í grg., sem þar með fylgir, máluð nokkur mynd af því ástandi, sem nú er orðið í fjárhagsmálum landsins. Ég ætla ekki að fara hér út í að rekja svo mjög sögu þess, hvernig komið er, og ekki að metast um það við flokka eða einstaka hv. þm., hver eigi sök á þessu, og ekki fara út í það í einstöku,m atriðum. En þó vil ég aðeins benda á örfá atriði í því sambandi, áður en ég kem að sjálfu málinu.

Ég vil leyfa mér að benda á það, og ég býst við, að mönnum finnist það nokkurt vorkunnarmál, þó að ég gangi ekki fram hjá því, og að það sé ekki að troða illsakir, þó að það sé undirstrikað, að nú morar allt af álitsgerðum hagfræðinga í sambandi við þetta frv. Og í þeim öllum saman er það mjög svo undirstrikað, að það öngþveiti, sem við búum við í okkar atvinnu- og fjárhagsmálum, sé ekki sízt afleiðing af þeirri stefnu, sem nú er farið að kalla fjárfestingarstefnu. Ég veit ekki, hvers vegna hefur verið skipt um heiti í þessu sambandi. En þessi stefna var á sínum tíma kölluð nýsköpunarstefna. Og af hinum færustu mönnum í þessu sérfræðingaliði hefur það verið mjög svo undirstrikað, að í styrjaldarlokin hefði þjóðin getað valið um tvær stefnur, jafnvægisstefnuna annars vegar og hins vegar það sem nú er kallað fjárfestingarstefna, og þó að menn hlytu að vita, að hún leiddi til verðbólgu og ýmiss konar vandkvæða af því tagi, sem menn nú þurfa að glíma við. — Ég leyfi mér að minna á þetta hér, vegna þess að ég, ásamt ýmsum öðrum, hef á undanförnum árum orðið að hlýða á þungar ásakanir frá mörgum hv. þm. okkar og öðrum fyrir það, að við værum afturhaldssamari, en aðrir menn, vegna þess að við bentum á þessi atriði, þessar staðreyndir, með mjög svipuðu móti og sérfræðingarnir gera nú. Og við vöruðum við því að fara að eins og gert var, með sérstöku tilliti til þess, að þó að mönnum þætti það kannske gott á líðandi stund, mundi það draga á eftir sér alvarlegan dilk. — Nú skal ég láta þetta nægja um fortíðina, vegna þess að ég vil ekki eiga hlut að því, að þessar umr. mótist fyrst og fremst af deilum um það, sem liðið er, vegna þess að ég skoða þetta þannig, eins og hæstv. fjmrh. minntist á, að þó að það geti verið nauðsynlegt að renna huganum aftur í tímann, — og menn gera það vafalaust, hver fyrir sig, — þá er hitt þýðingarmeira, að reyna að gera sér grein fyrir, hvað gera skuli.

Ég vil því næst benda á það, sem ekki þarf löngum tíma að eyða í nú orðið, að menn hafa á undanförnum árum reynt að gera ýmsar bráðabirgðaráðstafanir, til þess að draga úr hinum óheppilegu afleiðingum þess, sem orðið var. En allar hafa þær einkennzt af því, að menn hafa hikað við að horfast í augu við það, hvernig í raun og veru var ástatt, og allar hafa þær ráðstafanir byggzt á því að greiða framleiðsluatvinnuvegunum uppbætur, sem svo var aftur aflað með sköttum frá þegnunum, sem átti að verða til þess, að þetta gæti flotið, án þess að gera verulegar meiri háttar ráðstafanir. En þessu öllu hefur það fylgt, að það hefur aldrei tekizt, allan þann tíma, sem þessar bráðabirgðaráðstafanir hafa verið gerðar, að láta þær bráðabirgðaráðstafanir vera nógu róttækar. Og það liggur í því, að allan þann tíma, sem reynt hefur verið að láta fjárhaginn og atvinnumálin fljóta svona áfram með þeim ráðstöfunum, þá hefur skort á, að nægilegs fjár hafi verið aflað til þess að laga hallareksturinn og ná hallarekstrinum af ríkissjóði. Það hefur orðið halli á rekstri ríkissjóðsins árin 1947–49. Og að framsóknarmenn voru með því að gera þær bráðabirgðaráðstafanir, sem þó reynslan hefur sýnt, að ekki hafa dugað, var af því, að þeim fannst, að þá væri það ásetningur manna að hætta að reka vísvitandi áfram þá verðbólgupólitík, sem gert hafði verið áður. Og okkur fannst, að þá væri reynt með fjárfestingarleyfaúthlutun og ýmsum öðrum ráðstöfunum að koma á meira jafnvægi í fjármálum landsins en verið hafði. Sérstaklega fannst okkur þetta koma fram haustið 1947 í sambandi við dýrtíðarlögin, sem sett voru og voru merkileg löggjöf, þó að hún reyndist ekki fullnægjandi til þess að stöðva dýrtíðarskriðuna, m.a. vegna þess, að henni fylgdu ekki nógu róttækar ráðstafanir til þess að afla fjár til að stöðva hallarekstur ríkissjóðs og til að stöðva hallann á útlánastarfsemi bankanna. Þessar ráðstafanir voru of veigalitlar og voru ekki nema til bráðabirgða. Þessar ráðstafanir virtust þó gefa von um, að menn væru að vakna. En það mátti búast við, að þær væru ekki veigamiklar, fremur en annað það, sem menn aðhafast í svefnrofunum. Afleiðinga af þessum ráðstöfunum gætti samt tvímælalaust til bóta um tíma. Þó var auðséð, að það sótti aftur í sama horfið. Og sérstaklega var auðséð á síðasta vetri, að það sótti mjög í sama horfið og áður var og að ný verðbólgualda væri í aðsigi. Þess vegna var það, að á síðasta sumri hélt Framsfl. því fram, að fram undan væru slíkir tímar í þessum efnum, að ekki yrði lengur unað við bráðabirgðaráðstafanir, heldur yrði að breyta alveg um stefnu og gera aðrar ráðstafanir í þeirra stað, sem gætti meir til frambúðar, ef menn ætluðu að forðast algert fjárhagsöngþveiti og komast hjá fjárhagslegri og atvinnulegri stöðvun. Við vildum, að sú vinnuaðferð yrði viðhöfð í þessu, að á síðasta sumri yrði strax samið um það, hvað gera skyldi nú í vetur í þessum málum. Við þóttumst sjá, að yfir þennan vetur yrði ekki hægt að komast stórslysalaust, án þess að breytt yrði um stefnu, og á því byggðum við okkar uppástungur. Við héldum því fram, að þannig væri ástatt í þessum efnum, að annaðhvort yrði að gera, fara niðurskurðarleiðina eða lækka gengið, og þá yrði jafnframt, ef gengið yrði lækkað, að gera um leið allar þær ráðstafanir, sem hugsanlegar og réttlátar væru til þess að koma í veg fyrir, að þær lentu sérstaklega á alþýðustéttum þessa lands eða yrðu til þess að skerða lífskjör manna meir en minnst væri mögulegt að gæti orðið.

Þessum uppástungum okkar á síðasta sumri var ekki þannig tekið, að nokkur niðurstaða yrði af því. Og þess vegna töldum við okkur ekki fært að halda lengur áfram starfi í fyrrv. ríkisstjórn og stungum upp á því, að alþingiskosningar færu fram á s.l. hausti. — Þetta vil ég rifja upp vegna þess, að það liggur nú alveg augljóst fyrir, að við höfðum í höfuðatriðum rétt fyrir okkur í þessum efnum, að yfir þennan yfirstandandi vetur verður ekki komizt stórslysalaust öðruvísi, en með því móti, að stefnubreyt. verði og gersamlega horfið til annarra og áhrifameiri ráðstafana, en áður hafa verið — gerðar. Það er nú lækkandi verðlag á framleiðsluvörum Íslendinga og framleiðslukostnaður hefur hækkað mjög verulega frá því, sem var í fyrra. Og hækkun hefur orðið allveruleg á ýmsum erlendum vörum, sem notaðar eru til framleiðslunnar. Þetta kom glöggt í ljós, þegar hagur bátaútvegsins var athugaður nú í haust. Þá sýndi sig, að það yrði að verða hækkun á verðlagi á framleiðsluvörum bátaútvegsins, til þess að hann gæti gengið. Og það sýndi sig, að rekstrarkostnaður frystihúsanna hafði stórhækkað og allur framleiðslukostnaður yfir höfuð. Enn fremur hefur komið í ljós, að togurum hefur gengið miklu verr, en áður að selja afurðir sínar, og er álitið, að mikill hluti togaraflotans hafi verið rekinn með tapi nú um nokkra hríð. Þetta kemur ofan á það, sem fyrir var, að áður en þessir atburðir skeðu, sem ég nú hef lýst, þá var bátaútvegurinn þannig staddur, að hverrar skuldakreppunnar hafði orðið að stofna til eftir aðra fyrir síldveiðiflotann, og mjög var tæpt, að hægt væri að reka bátaflotann á þorskveiðum með sæmilegum árangri, áður en það kom til, sem ég lýsti. Allt staðfestir þetta þá grundvallarskoðun, sem komið hefur fram fyrr og síðar af hendi Framsfl. og ég þarf ekki að hafa mörg orð um að rifja upp.

Nú hefur hæstv. ríkisstj. flutt hér frv. um stórfellda gengislækkun og nokkrar ráðstafanir í því sambandi. Hæstv. ríkisstj. stingur upp á því að lækka gengi íslenzku krónunnar um 42,6%. — Ég ætla fyrst, áður en ég kem að þessu máli almennt, en ég mun ekki ræða það í einstökum atriðum við þessa umr., að minnast nokkuð á málsmeðferð hæstv. ríkisstj. Fyrst læt ég í ljós undrun mína á því, að hæstv. ríkisstj. skuli hafa valið þann kost að leggja þetta frv. fram í þinginu án þess fyrir fram að geta tryggt sér meiri hluta fyrir því, að það yrði samþ. Ég hygg, að mér sé óhætt að segja, að slíkt sé með öllu óvenjuleg aðferð um mál eins og þessi, þar sem lagt er til að gera stórfellda lækkun á íslenzkri krónu. Ég læt í ljós undrun mína á því vegna þess, að svo slæmt ástand sem við höfum átt við að búa á síðustu mánuðum og missirum í fjárhagsmálum landsins, þá mun það sönnu næst, að með því að kasta fram slíku frv. sem þessu, án þess að fyrir fram sé vitað um örlög þess, sé innleitt fullkomið hernaðarástand í fjárhagsmálum landsins og að mikil hætta sé á, að þessi málsmeðferð geri varanlegan skaða.

Ég vil þá einnig sérstaklega gera grein fyrir því, hvaða málsmeðferð ég tel, að hæstv. ríkisstj. hefði átt að hafa í þess stað á málinu. Það er rétt, sem hæstv. fjmrh. gat um, að hæstv. ríkisstj. hefur nú undanfarið leitað fyrir sér um afstöðu til málsins. Í þessum umleitunum hefur það mjög greinilega komið fram, þannig að hæstv. ríkisstj. gat ekki farið neitt vill vegar í því, að þessari hæstv. ríkisstj. var ekki mögulegt að tryggja málinu framgang fyrir fram og að það var ekki heldur unnt að veita þessu máli þá forustu, sem það krafðist. Þetta var vafalaust öllum þeim, er um þetta mál fjölluðu, ljóst. Og þá álít ég, að hæstv. ríkisstjórn hefði átt að viðhafa þá aðferð að beiðast lausnar, í stað þess að fleygja málinu inn í þingið. Og þá, ef hæstv. ríkisstjórn hefði beiðzt lausnar, þá hefði komið fram, hvort á þinginu hefðu getað myndazt samtök um að afgreiða þá málið, eða yfirleitt um afgreiðslu vandamálanna, þannig að það yrði fyrir fram vitað, að það, sem fram yrði lagt um þessi efni, ef það yrði gengislækkun a.m.k., það yrði raunverulega samþ. En það er höfuðatriði, þegar gengislækkunarleiðin er farin, að leggja ekki annað fram í þeim efnum, ef menn vilja ekki hafa stórkostlegan glundroða til viðbótar því, sem fyrir er, heldur en það, sem fyrir fram er tryggt, að gangi fram. Á þennan eina hátt er hægt að leiða það mál svo, að fullnægjandi sé. Það er ekki hægt að leiða það mál, svo að verjandi sé, með því að fleygja því inn á þing, án þess að vita um afstöðuna til þess í þinginu. Og þegar hæstv. ríkisstj. komst að þeirri niðurstöðu, að hún gat ekki leitt málið á þennan hátt, sem hún þurfti, þá átti hún að afhenda þinginu umboð sitt. — Hæstv. fjmrh. segir, að ríkisstj. hafi ekki talið sig eiga annars úrkosta, en leggja málið fram. Og þá er rétt að taka það fram — sem nánar verður rætt í sambandi við vantrauststill. —, að Sjálfstfl. hafði á sínu valdi að mynda ríkisstj. með Framsfl. án málefnasamnings — og sú ríkisstj. léti það þá verða sitt fyrsta verk að ganga úr skugga um það innan sinna vébanda, hvort hún gæti staðið saman um nauðsynlegar ráðstafanir í fjárhagsmálunum og tryggt þeim fyrir fram fylgi í þinginu. En Sjálfstfl. komst að þeirri niðurstöðu, að hann teldi slíkt ekki fært, og valdi í þess stað þá leið að varpa málinu inn í þingið. Ég álít, að hæstv., ríkisstjórn og Sjálfstfl. hafi farið alveg skakkt að í þessum efnum og hafi gert málinu ekki gagn, heldur skaða með því að halda þann veg á, í stað þess annaðhvort að afhenda þinginu umboð sitt, þegar hæstv. ríkisstjórn fann, að hún gat ekki leitt málið á fullnægjandi hátt, eða þá að mynda þá ríkisstjórn, sem unnt var að mynda, eftir því sem fyrir lá eftir þessum viðtölum, ríkisstjórn, sem ekki hefði fleygt málinu fram án þess að vita, hver endalokin yrðu, heldur hefði athugað, hvort hún gæti ekki staðið saman um till. til úrbóta. En ef ríkisstj. hefði ekki getað myndað samkomulag um þetta, þá hefði hún átt að afhenda þinginu umboð sitt, og var þá engu glatað. En það er höfuðatriðið, úr því sem komið er, að þessi málsmeðferð, sem orðin er í þessu efni, verði ekki til þess á nokkurn hátt að spilla fyrir því, að þetta mál geti fengið, eftir sem áður, eðlilega afgreiðslu í þinginu.

Ég skal þá koma nokkuð að fjárhagsmálunum almennt í framhaldi af þessu. Það er þá fyrst spursmálið um þær aðferðir, sem velja skuli í sambandi við þann vanda, sem við erum staddir í. Ég gat um það áðan, að menn hefðu talað um tvær leiðir aðallega í þessu sambandi, annars vegar niðurfærslu og hins vegar gengislækkun. Um niðurfærsluleiðina er það að segja, að þegar svona lengi er búið að standa verðlag og kaupgjald eins og hefur verið hér á landi og þegar svo mikið er búið að höggva í krónuna íslenzku, þá er ekki hægt að hugsa sér slíka niðurfærslu án þess að hafa um leið niðurfærslu á skuldum og innstæðum. Þetta verður að hafa í huga, þegar menn velja um mismunandi leiðir í þessu sambandi. Það er ekki hægt að hugsa sér þá aðferð, eins og hefur verið ástatt hér um mörg missiri, að hægt sé að færa niður kaupgjald og afurðaverð, en láta skuldir standa með nafnverði. Og sé það ekki hægt um skuldirnar, þá er ekki hægt heldur að láta innstæður standa með nafnverði. Og ég tel, að þessi mál séu þannig vaxin, að af tvenns konar neyðarúrræðum þá sé gengislækkunin framkvæmanlegri og því líklegri til þess að velja hana, en ekki niðurfærsluleiðina. — Ég sé nú ekki ástæðu til að fara lengra út í samanburð á þessum tveimur leiðum, sem til greina geta komið eða út í þennan þátt málsins, heldur en þetta, því að þetta hefur verið nokkuð mikið rætt í seinni tíð. En ég vil aðeins geta um það, að það sýnist vera svo, líka af athugunum þeirra manna, sem verður að trúa í þessu, að það sé hægt að ná fyrr árangri fyrir framleiðsluna með gengislækkuninni og að það snerti launastéttirnar minna sami árangur, sem hægt er að ná með gengislækkunaraðferðinni, heldur en með niðurfærsluaðferðinni. Hins vegar verður það aldrei nægilega undirstrikað í sambandi við þessi málefni, að allsherjarniðurfærsla eða gengislækkun eru ekki nema einn þáttur þessara mála. Og það er líka rétt að benda á það, að þetta er yfirleitt undirstrikað hjá þeim fræðimönnum, sem láta í ljós álit sitt um þessi efni. Því er nefnilega þannig háttað, að gengislækkun eða niðurfærsla gæti orðið til þess að koma á jafnvægi í fjárhagslífi landsins, ef vel tekst. En gengislækkun ein sér yrði hins vegar annaðhvort ein eða nokkrar veltur á dýrtíðarhjólinu áfram, ef illa tekst til. Þetta er höfuðatriði, sem gildir bæði um gengislækkun og niðurfærslu eða hvað annað, sem gert væri, sem er aðeins einn liður í því, sem gera þarf. Til þess að gengislækkun komi að gagni, svo að jafnvægi fáist, þarf margt annað að gera um leið og ýmis skilyrði að vera fyrir hendi, eins og kunnugt er. Og vil ég aðeins rifja það nokkuð upp, sumpart í sambandi við frv. þetta, sem hér liggur fyrir, og sumpart í sambandi við þá stefnu í landsmálum, sem nauðsynlegt er að framkvæma, ef gengislækkun er gerð, ef hún á að verða að notum, en ekki til þess, að dýrtíðarhjólið fari nokkrar veltur áfram. Þess vegna er ekki hægt að skoða gengislækkun út af fyrir sig sem bjargráð, því að það er ekki hægt að slíta gengislækkun eða gengislækkunarráðstafanir frá ýmsum öðrum höfuðatriðum í ráðstöfunum, sem gera þarf, og ekki heldur frá því, hvaða stjórnarstefnu er fylgt eða hvernig framkvæmdarvaldinu er fyrir komið. Þetta er allt keðja, sem ekki verður sundur slitin, og gengislækkun er aðeins einn hlekkur í þeirri keðju. Þetta er nauðsynlegt, að menn hafi í huga í sambandi við þetta mál, því að það hlýtur að móta afstöðu manna til málsins mjög verulega og koma fram á ýmsum stigum þess.

Ég ætla fyrst að minnast á atriði, sem eru grundvallaratriði og þýðingarmikil, en tæpast er hægt að gera ráð fyrir, að hægt sé að gera skil í því frv., sem fjallar um gengisbreytinguna. Það er þá fyrst, að það verður að tryggja hallalausa afgreiðslu fjárlaga. Ef það mistekst, ef það er ekki gert alveg örugglega, þá er mjög hætt við, að gengislækkunin verði nokkrar veltur áfram á verðbólguhjólinu, í stað þess að skapa jafnvægi. Ég skal ekki fara langt út í almennar hagfræðilegar hugleiðingar um þetta, vegna þess að ég býst við, að mönnum sé þetta yfirleitt ljóst. En það er ekki nóg, að mönnum sé þetta ljóst. Menn verða líka að vera reiðubúnir til þess að gera ráðstafanir þær, sem með þarf, til þess að þetta verði eitthvað meira en í orði. Í þessu sambandi verður að vekja athygli á því, að ráðstafanir, sem koma til leiðar lækkun á innflutningi, minnka tolltekjurnar. En þetta sýnir kannske betur en nokkuð annað sambandið á milli gengisbreytingar annars vegar og svo aftur ríkisframkvæmda hins vegar, hversu ómögulegt er að líta aðeins á einn hlekkinn í keðjunni og hversu óhjákvæmilegt það er að í heild verði mótuð stefnan um slíkar framkvæmdir eins og þessa, ef hún á að koma að verulegu liði.

Ég vil minnast á það sem nr. 2, að framkvæmdir verði hæfilega miklar, þannig að menn brenni sig ekki aftur á sama soðinu og áður, þegar allt of mikið var tekið fyrir. Og þá verða menn að sjálfsögðu að hætta þeim leik, sem hefur undanfarið verið leikinn, að kalla hverjir aðra ýmsum ónöfnum, af því að þeir vildu ekki viðurkenna, að ekki sé hægt að gera allt, sem menn langar til, í einu. En það var gert hér fyrir nokkrum árum, þegar menn vildu helzt gera allt í einu. Og því fór sem fór. Með öðrum orðum, gætileg fjárfestingarstefna er undirstaða þess, að gengislækkun verði annað, en nokkrar veltur áfram á hjólinu.

Enn fremur er í þessu sambandi vert að undirstrika, að ríkisfjárhagur kemst ekki í lag, ef bankarnir rækju ábyrgðarlausa útlánapólitík og settu þannig út í umferð fjármagn, sem ekkert stæði á bak við, og eyðilegðu þann árangur, sem næðist á Alþingi. Og í því sambandi þarf vitanlega að athuga það, hvort ekki þarf beinlínis að setja frekari skorður en enn er orðið, hvers konar útlánapólitík bankarnir geti rekið, eða a.m.k. nánara samband milli bankanna en enn þá hefur tekizt að skapa, því að hér er ekki aðeins um það að ræða, hvað miklir peningar séu í lánum, heldur í hvað sé lánað, því að það tvennt, að lána of mikið í heild og lána í annað en það, sem nauðsynlegast er, það má ekki ske. M.ö.o., lánapólitíkina verður að taka nýjum tökum framvegis, ef allt á að fara eins og vera þarf.

Þá er það loks fjórða atriðið, sem ég vil nefna, launapólitíkin, sem rekin er í landinu. Það er náttúrlega augljóst mál, að þótt fjármálapólitík ríkisins væri í lagi og bankapólitíkin væri í lagi, að ef það væri rekin ábyrgðarlaus pólitík í launamálunum, þá mundu hinar beztu ráðstafanir geta orðið að engu gerðar, og í þessu sambandi þarf, eins og menn þekkja, að treysta á hollustu launasamtakanna, því að till. hafa ekki komið fram um að binda kaup hjá einum eða neinum. Verður þá að treysta á þegnskap launasamtakanna í því efni, að þau geri sér grein fyrir, hvað óhætt er að fara í þessu efni.

Ég hef minnzt á nokkur atriði, sem snerta þetta mál og eru alveg undirstöðuatriði, og mest af þeim er komið undir framkvæmd ríkisstj. á hverjum tíma, undir afgreiðslu þingsins á hverjum tíma og undir afgreiðslu í bönkum landsins, sem allir eru þjóðnýttir, eins og við þekkjum, en sumpart komið undir þegnskap þeirra samtaka, sem þetta snertir, eins og launasamtakanna. Ég vil benda á þetta til að sýna sambandið hér á milli og að við erum hér aðeins með hlekk í stórri og þýðingarmikilli keðju, til að undirstrika, að þetta mál er ekki hægt að skoða eitt út af fyrir sig, heldur verður að íhuga það í sambandi við þá stefnu, sem almennt er tekin. Svo mikið veltur á þessu, að það getur oltið á því, hvort það verður gagn að gengislækkuninni.

Þá kem ég að atriði, sem ekki er þýðingarminna en þau atriði, sem ég hef rakið hingað til, hin beinu atriði, sem snerta sjálft frv. Nú gefur auga leið, að ef á að reyna gengislækkun, þá fer gagnsemi hennar mest eftir því, hvernig tekst að halda verðlaginu niðri. Ef verðlagið hækkar mjög mikið eða mistekst um framkvæmdina í þeim efnum, þá má búast við því, að árangur af gengisbreytingunni verði lítill, og þá gæti vel svo farið, að mistök í þessum efnum yrðu til þess að kalla á ráðstafanir úr öðrum áttum, sem gerðu gengislækkunina að engu. Nú munu ýmsir segja, að hér komi til hjálpar ráðstafanir, sem af gengislækkuninni leiði. Það er rétt að vissu leyti, að því leyti sem það leiðir af gengislækkuninni nokkru meira samræmi, en áður, milli kaupgetu og vöruframboðs. Þetta er því miður ekki nema að litlu leyti vegna þess, hve sérstaklega er ástatt hjá okkur, sem ég kem að síðar. Enn fremur má segja, að ef tækist verulega vel um afgreiðslu fjármála ríkisins og bankamálastefnuna, þá hjálpar það líka mikið til í þessu efni, en samt sem áður verður hér við stórkostlega erfiðleika að etja, og þeir erfiðleikar eiga rætur sínar að rekja til þess, að Íslendingar eru svo ógæfusamir, — ef út í það er farið, — að ráðast í gengisbreytingu á sama tíma sem óvenjulegur vöruskortur er í landinu og fram undan er tímabil, sem hlýtur að ríkja óvenjulegur vöruskortur. — Allt málið hefði verið miklu skárra viðfangs, ef hægt hefði verið að gera ráð fyrir því, ég tala nú ekki um, ef við hefðum átt gjaldeyrisvarasjóð, sem hefði verið hægt að nota til að auka vöruframboðið, en í þess stað drögum við á eftir okkur óreiðuhalann, — ef það hefði verið hægt að gera ráð fyrir því, að sæmilegar vöru,birgðir yrðu í landinu. En það er ekki því að heilsa, og fyrir þetta verður miklu erfiðara um framkvæmdina, en ella hefði verið. Einmitt á því ríður svo stórkostlega, hversu til tekst um ráðstafanir til að bjargast út úr þeirri verðhækkun, sem tilhneiging verður til að koma fram í sambandi við gengislækkunina.

Ég tek eftir því, að í þessu frv. er yfirleitt gert ráð fyrir, að sá grundvöllur, sem nú er í verzlun og iðnaði, sé sá, sem byggt verði á í þessu efni. Ég vil vara við þessum hugsunarhætti. Ég reikna að vísu með því, að álagningin á almenna verzlunarvöru sé ekki meiri en svo, að hún þurfi að vera svipuð og verið hefur. En það verður að fara fram endurskoðun á íslenzkum iðnaði í sambandi við þær ráðstafanir, sem hér eru gerðar, sem miðaðar séu við það blátt áfram að reyna að koma í veg fyrir, að þessi verðhækkun, sem af gengislækkuninni leiðir, þurfi að koma fram í útsöluverði. Þessi verðlækkun verði gerð með því að athuga iðnaðinn yfir nauðsynlegustu vörurnar og vita, hvort ekki er hægt með því að greiða fyrir hráefnainnflutningi hjá beztu fyrirtækjunum, — hvort ekki er hægt með því að eyða verulega þeirri verðhækkun, sem annars þyrfti að koma fram. M.ö.o., ég er þeirrar skoðunar, að í sambandi við þetta, sem nú á að gera, verði að fara fram mjög ýtarleg athugun á því og gengið með atorku að því að gera sér grein fyrir því, að hve miklu leyti þessi erlenda verðhækkun þarf að koma fram í hækkuðu útsöluverði á einstökum vörum. Menn ættu ekki fyrir fram að slá neinu föstu um slíkt, heldur athuga allt sem nákvæmlegast. Ég er sannfærður um, að það er mikil hætta á því, að verðhækkunin verði mikil, og það virðist, að menn verði að una því hlutskipti á næstunni að búa við mikinn vöruskort. Ég hygg, að það þurfi að athuga mjög vel þann kafla frv., sem að þessu lýtur, og má þó ef til vill segja, að mest sé undir framkvæmdinni komið, hvernig til tekst um þessi efni.

Þá er annað atriði, sem ég vil minna á, sem nokkuð er minnzt á í frv. Það er gert ráð fyrir, að ríkissjóður losni við allar útflutningsuppbætur, og hins vegar eru till. miðaðar við þá, sem verst eru settir. Þess vegna er það, að þeir, sem bezt eru settir, fá óeðlilega mikinn hagnað af þessum ráðstöfunum. Það er gert ráð fyrir að jafna nokkuð um þetta. Það er sjálfsagt að jafna metin í þessu efni. Ég treysti mér ekki til að segja neitt um það, hvort þær till. eru réttlátar, sem settar eru hér fram um það, sérstaklega vegna þess, að það fylgir ekki í grg. neitt um það, hvernig hefur verið komizt að þeirri niðurstöðu um þetta efni, sem í frv. greinir. Það er ekki greint frá því, hvernig menn hafa rakið sig að þeirri niðurstöðu, sem þar er fengin.

Þá vil ég í þessu sambandi minna á það, að ef við lítum á það, hvaða atriði það eru og hvað það er, sem ég ætla, að hafi átt drýgstan þátt í því að reka áfram þá áheillaþróun, sem hefur verið undanfarið, þá má ýmislegt til nefna, en eitt er það, sem hefur gert menn mjög aðþrengda, en það er ástandið í húsnæðismálunum. Það er áreiðanlegt, að ástandið í húsnæðismálunum hefur gert menn mjög aðþrengda. Þar hefur átt talsverðan þátt óheppileg launapólitík. Ég held, að það sé ekki hægt að líta fram hjá þessu atriði í sambandi við þetta mál, og þegar það er skoðað, hvernig ætti að reyna að tryggja, að gengislækkunin yrði raunverulega til að skapa jafnvægi, en ekki til að hjólið snerist nokkra hringi í viðbót, þá sé óhjákvæmilegt að skoða málið í því sambandi og veita því úrlausn í því sambandi. Í því sambandi vil ég minna á tvennt, því að ég vil ekki gera einstök atriði að umtalsefni. Ég vil minna á, að það þarf að finna leið til að lækka húsaleiguna frá því, sem hún er, og létta þannig byrðar þeirra, sem bera þær þyngstar, og þar kreppir skórinn erfiðast að mönnum, því að það er einmitt hin gífurlega húsaleiga, sem gerir hvað mest til að rýra lífskjör manna. Það verður að finna leið til að lækka hina háu húsaleigu og enn fremur finna úrræði til þess, að áfram geti haldið, þrátt fyrir samdrátt í fjárfestingunni, bygging hentugra íbúða, blátt áfram að taka upp þá stefnu að stöðva allar framkvæmdir, sem ekki eru bráðnauðsynlegar, og reyna heldur að auka byggingu íbúðarhúsnæðis, sem væri haganlega byggt, þannig að það væri snúið sér að því um tíma, til þess að það yrði eitthvert átak, sem um munaði, að byggja aðeins tveggja herbergja íbúðir og þriggja herbergja íbúðir í kaupstöðum og kauptúnum og haganleg hús í sveitum. Þetta sýnist mér vera svo þýðingarmikið atriði, því að ef menn sjá, að það er eitthvað í þessu gert, sem markar spor, eitthvað, sem markar nýja stefnu frá því, sem verið hefur, þá gefur það mönnum von um, að eitthvað nýtt sé að gerast í þá átt, og það getur aukið líkurnar fyrir því, að ráðstafanir eins og gengisbreytingin geti komið að gagni, að menn hafi aukinn skilning á því og lofi þeim ráðstöfunum að sýna sig í framkvæmdinni, sem verið er að gera. Í þessu sambandi yrði líka að finna leið til þess í sambandi við þessar fjárhagsáætlanir að draga saman eitthvað fé til að setja inn í þessi viðskipti. Það yrði að reyna að finna leið til þess að taka eitthvað af því fé, sem hægt er að ráðstafa í fjárfestingu, og setja inn í þessi viðskipti.

Ég vil einnig í þessu sambandi minna á annað, sem er líka liður í því kerfi og snertir þetta mál sérstaklega. Það verður líka að finna leið til þess, að landbúnaðurinn geti fengið nauðsynlegt fé til starfsemi sinnar. Við vitum, að eitt af því, sem hefur verið mjög erfitt við að eiga, er straumurinn úr sveitunum og til Rvíkur. Þar af stafa húsnæðisvandræðin að verulegu leyti. En nú vitum við, að ef ráðizt er í mál eins og gengislækkun, þá er það gert til þess að efla framleiðsluna, og við vitum líka, að það þarf að færa fólk úr öðrum greinum og beina því til framleiðslunnar. Í þessu sambandi er það brennandi spursmál, sem ómögulegt er að líta fram hjá og snertir þetta mál meira, en í fljótu bragði virðist. Það verður að finna leið til að fá aukið fjármagn í landbúnaðinn, til þess að það fólk, sem vill vera í sveitunum, geti verið þar kyrrt, en fari ekki burt, af því að það fái ekki lán til að byggja yfir höfuðið á sér eða til að byggja gripahús og önnur hús, sem nauðsynlega þarf að koma upp á sveitabæ og verða að vera fyrir hendi, ef landbúnaðarframleiðslan á að geta verið rekin með nægilega miklum myndarskap og hæfilega ódýr. Þess vegna er það, að eitt, sem líka verkar stórkostlega til að auka skilning bændastéttarinnar á þeim ráðstöfunum, sem þarf að gera almennt og gerir mönnum léttara í huga, þó að þeir þyrftu einhverjar byrðar að bera út af því um stundarsakir, að eitthvert átak sé gert í þessu efni, einmitt í sambandi við þetta mál, á sama hátt og ég gat um áður í sambandi við húsnæðismálin, því að menn verða að gera sér grein fyrir, að það er ekki hægt að skoða gengislækkun sem eitthvert einangrað fyrirbrigði út af fyrir sig. Árangurinn af gengislækkuninni fer mjög eftir því, að þjóðin finni, að það er verið að taka upp heilbrigðari stefnu og að eðlilegar vonir séu vaktar, að menn sjái ekki erfiðleikana eina, heldur séu eðlilegar vonir vaktar og að nauðsynlegustu framkvæmdir séu styrktar af fullum myndarskap og þar reynt að laga, sem skórinn kreppir harðast að.

Ég skal þessu næst minnast á málefni, sem hefur ekki hvað minnsta þýðingu í þessu sambandi. Eitt af því, sem valdið hefur mestri óánægju að undanförnu í landinu, það er ástandið í verzlunarmálunum, það er það ólag, sem er á vörudreifingunni, og það er það misrétti, sem menn hafa átt við að búa í þessu efni. Vöruskorturinn hefur verið svo mikill, að erfitt hefur verið undir að búa. En þó hefði það verið þolanlegt, ef hægt hefði verið að dreifa vörunni svo, að sómasamlegt væri, — ef vörudreifingin væri í lagi. En það hefur ekki tekizt. Þar hefur verið við ramman reip að draga, en ég ætla ekki að draga dæmi af þessu, því að það yrði allt of langt mál, og skal ég því ekki ræða það í einstökum atriðum, en ég vil aðeins undirstrika þetta. Ýmsir munu segja, að úr þessu muni fljótt rætast, ef menn hverfa að því ráði að koma á auknu jafnvægi í þjóðarbúskapnum, því að þá muni í landinu, verða frjáls verzlun. Ég vildi óska, að svo yrði, að það gætu orðið frjáls viðskipti í landinu. En það er ómögulegt að grafa svo höfuðið niður í sandinn að sjá ekki, hvað fram undan er á næstunni í þessu efni. Við skulum vona, að gengisbreytingin, ef gerð yrði, hafi veruleg áhrif á framleiðsluna í landinu og hún fjörgi og örvi og útflutningur gæti aukizt úr landinu, jafnvel þó að erfiðlega horfi með verð. En þótt svo vel tækist til, þá er því miður þannig ástatt, eins og ég gat um áðan í öðru sambandi, að á næstunni verður sýnilega í landinu mikill vöruskortur. Í þessu sambandi er rétt að greina frá því, að útflutningsáætlunin fyrir 1950 ráðgerir 300 millj. kr. útflutning, en á síðasta ári var hann 280 milljónir. Það lítur áreiðanlega út fyrir, að það sé vel í lagt. Að vísu er síldin varlega áætluð, en það er það eina, sem er varlegt. Innflutningurinn á síðasta ári var um 424 millj., eða 140 millj. kr. meiri en útflutningurinn. Innflutningurinn á síðasta ári var um 120 millj. hærri en áætlunin,, sem ég gat um, og yrði þá innflutningurinn á þessu ári að minnka sem því næmi. Í þessu eru einstök atriði, sem þyrfti að taka fram, ef myndin ætti að vera glögg. Í því sambandi verð ég að geta þess, að ýmsar vörur, sem þarf til framleiðslunnar, hafa hækkað svo, að milljónatugum nemur yfir árið, og gerir það málið enn geigvænlegra viðureignar. Það er augljóst, að við verðum að gera ráð fyrir, að innflutningurinn á því ári, sem nú er að byrja, verði stórum minni en 1949. Og þó að dregið verði úr fjárfestingunni, eins og svo mikið er talað um og að sjálfsögðu verður að gera frá því, sem verið hefur, þá er það því miður, að sú sorglega staðreynd blasir við, að annar innflutningur verður líka að vera minni. Menn neyðast til þess nauðugir viljugir að horfast í augu við það. Þess vegna verður vörudreifingarvandamálið nú til staðar í ríkara mæli, eða a.m.k. ekki minna mæli á næsta ári, en verið hefur. Það er því mjög þýðingarmikið atriði í sambandi við þessi mál, að það væri hægt að leysa það mál á viðunandi hátt, því að það er alveg áreiðanlegt, að það mundi að sínu leyti eins og skynsamlegar ráðstafanir í húsnæðismálum og öðrum málum, sem ég hef áður rætt, skapa jarðveg, sem einn er fullnægjandi tilefni til þess, að gengislækkun verði annað en nokkrar veltur áfram á hjólinu.

Þá vil ég aðeins minna á eitt til viðbótar þeim ráðstöfunum, sem nauðsynlegt er að gera til að koma jafnvægi á þjóðarbúskapinn og er höfuðnauðsyn, en það er, að þeir, sem hafa safnað sér miklum auði á undanförnum uppgangstímum, sumpart vegna verðbólgunnar beinlínis, sem átt hefur sér stað í landinu, leggi fram sinn skerf til viðreisnarinnar, sumpart til þess að koma í lag því öngþveiti, sem nú er í landinu, og sumpart til að létta undir með þeim nauðsynlegustu framförum, sem verða að eiga sér stað og ég hef lítillega gert að umtalsefni. Um þetta mál er að nokkru leyti einn kafli í frv. stj., en hann er frá sjónarmiði okkar í Framsfl. ófullnægjandi og ekki á þá lund, sem við mundum vilja og munum leggja til og sér í lagi munum stinga upp á í sambandi við þann stighækkandi skatt, sem þar er um að ræða.

Ég skal svo, því að nú er að verða lokið þeim tíma, sem venjulega er notaður til fundarhalda fyrir kaffihlé, ekki þreyta menn með lengri ræðu, enda hef ég nú nefnt flest, sem ég hefði viljað drepa á.

Að lokum vil ég segja, að afstaða Framsfl. til þessa frv. á síðara stigi fer eftir því, hvernig þeim viðaukum og breyt. verður tekið, sem hann mun flytja, og eftir því, hvort flokkurinn telur þannig séð fyrir framkvæmd löggjafarinnar og öllu því, sem höfuðmáli skiptir, að góðar líkur séu á því, að viðunandi árangur náist af þeim ráðstöfunum, sem í frv. felast.

Ég vil svo að endingu segja, að það er höfuðatriði, að þetta mál fái að sjálfsögðu vandlega íhugun. Þjóðin er stödd í miklum vanda. Það er oft sagt, og áreiðanlega ekki, því miður, ófyrirsynju. Það er því nauðsynlegt að taka á þessum málum æsinga- og öfgalaust og engar tilraunir séu gerðar af neinna hendi til að koma af stað deilum eða illindum. Höfuðatriðið er, að þingviljinn um þetta mál fái að koma í ljós, og fyrir því munum við í Framsfl. greiða og reyna að eiga okkar hlut að því, að það fái sem heppilegasta niðurstöðu frá okkar sjónarmiði.