27.02.1950
Neðri deild: 55. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 312 í B-deild Alþingistíðinda. (693)

125. mál, gengisskráning o.fl.

Einar Olgeirsson:

Herra forseti. Það er raunar ekkert nýtt, að lagðar séu fram till. hér á Alþingi, sem fela í sér árás á lífskjör alþýðunnar í landinu. Og það er heldur ekkert nýtt, að þessi árás sé gerð með gengislækkun. Það var svo 1939 og aftur 1942, þegar nota átti gerðardóminn fræga til að halda lífskjörunum niðri, og enn 1944 átti að leika sams konar bragð. Það er sameiginlegt öllum þessum till., að þær miða að því að lækka kaup launþeganna í landinu, enda hefur ekki verið dregin nein dul á það í þeim umræðum, sem hér hafa farið fram. En þessi síðasta herferð á hendur launiþegum í landinu, þ.e. frv. hæstv. ríkisstj., er að einu leyti frábrugðin fyrri atlögum, því að hún er gerð undir vísindalegu yfirskini, og hafa tveir hagfræðingar verið fengnir til að semja þessar tillögur, og fylgir frá þeim löng og mikil greinargerð. Nú er ekki að efa, að þessir hagfræðingar eru báðir hálærðir, enda er annar þeirra ekki sóttur skemmra, en til Ameríku. Og öll þessi störf þessara vísu manna eru unnin fyrir fólkið, aðeins lagt til það, sem því er fyrir beztu. Allt á þetta að vera alþýðumönnum til góðs, bara ef alþýðan er þolinmóð, unz spádómarnir rætast.

En á hverju byggja svo þessir vísu menn frv. það, sem hér liggur fyrir? Jú, það sést fljótt, ef litið er á frv. Allir, sem að því hafa unnið, Benjamín Eiríksson, Ólafur Björnsson próf. og ríkisstj., byggja allir í sameiningu á því, að kaupið sé of hátt. Það er grunnurinn, sem allt er reist á. En nú vil ég leyfa mér að spyrja: Hvar eru sannanir fyrir því, að kaupið sé of hátt? Um það er enginn stafkrókur í greinargerðinni, sem þó er heil bók. Nei, það er sem sagt ekkert um það í greinargerðinni.

Hvernig mundu nú heiðarlegir vísindamenn fara að því að rannsaka, hvaða þættir það eru í íslenzku framleiðslunni, sem eru of dýrir, og hvar helzt sé hægt að spara. Jú, þeir mundu rannsaka, hvað margir raunverulega vinna t.d. við sjávarútveginn og hvaða laun þeir hafa, en svo hins vegar mundu þeir athuga, hvað miklar tekjur þessi atvinnuvegur hefur. Eins væru svo athugaðar tekjur bænda og svo hins vegar, hvað landbúnaðurinn framleiðir mikil verðmæti. Það er að segja, þeir mundu fyrst og fremst rannsaka, hvað þjóðartekjur okkar Íslendinga eru miklar, og síðan hvernig þær skiptust milli hinna ýmsu stétta, en þá fyrst væri skapaður grundvöllur til að leysa vanda atvinnuveganna á. En í þessu plaggi sést ekki orð um þetta grundvallaratriði. Það er ekki orð um þann gríðarstóra hlut, sem verzlunarauðvaldið, og þá ekki sízt heildsalarnir, hafa hrifsað til sín af þjóðartekjunum. Sömuleiðis er algerlega sniðgengið í þessu plaggi að gera athugun á þeim mikla kostnaði, sem fer til þess að halda uppi hinu risavaxna skrifstofubákni ríkisins, sem liggur með margföldum þunga á öllu atvinnulífinu. Sú staðreynd, að hagfræðingarnir hafa ekki gert svo mikið sem tilraun til að athuga þessi tvö grundvallaratriði málsins, þýðir það, að allar þeirra niðurstöður eru eins óvísindalegar og mest má verða og þess vegna ekkert mark á þeim takandi. Það stóð svipað á fyrir sjávarútveginum árið 1934, og þá var gerð rannsókn á ástandinu,og kom þá í ljós, að útvegurinn var kominn í tveggja millj. kr. tap, en það kom líka í ljós, að á sama tíma hafði verzlunin grætt — ekki 2 millj., heldur 5 millj. og af því einmitt 2 millj. vegna sölu til sjávarútvegsins. Við höfum glöggar upplýsingar um þá staðreynd, að fjármagnið hefur runnið úr sjávarútveginum til verzlunarinnar, vegna þess að hún hefur verið arðvænlegri, og þess vegna hefur tap sjávarútvegsins beinlínis orsakazt af gróða verzlunarinnar. Það mátti lesa það í áliti Rauðku, hvernig tekjur þjóðarinnar skiptust, en nú er það ekkert rannsakað og gengið fram hjá öllum aðalatriðum. Þetta er að reyna að dylja staðreyndir fyrir þjóðinni, að ganga fram hjá tekjuskiptingunni. Segjum, að þjóðartekjurnar séu 1.200 milljónir. Hvað gengur mikið til verzlunarauðvaldsins af þeim tekjum ? Hvar eru upplýsingar um það? Eða þá ríkisbáknið, sem allir vita, að er gífurlegt og hvílir með margföldum þunga á atvinnuvegunum, af því að það er svo vitlaust, hvernig það liggur á einstaklingum og félögum og hindrar starf í þágu heildarinnar, en gefur fjárplógsmönnum frjálsar hendur til að raka saman fé. Hvað er hér sagt um, hvað mikið rennur til þessa bákns af þjóðartekjunum? Ekki neitt sagt um það.

Það væri hægt að taka hér allan atvinnurekstur og birta útreikninga og rannsóknir, t.d. varðandi landbúnaðinn, eða svara spurningunni: Hvað kostar það þjóðina að gera út, og hvernig á að ráða fram úr vandanum? Þetta var gert 1934, þegar menn voru að gera sér ljósa kreppuna, hvernig komið var, og hvað var helzt til ráða. En nú er vandlega þagað yfir þeirri staðreynd, hvernig þjóðartekjurnar hafa skipzt á undanförnum árum og eignir hlaðizt upp á örfáum höndum, svo að 200 hlutafélög og einstaklingar í Reykjavík eiga um 500 millj. kr. í eignum. Nú er reynt að dylja þetta, að nú sé til rík auðmannastétt í landinu. Nú er talað eins og ekkert sé til nema verkalýður með of hátt kaup, sem þurfi að lækka. Það er talað um ríkisskuldir, en það er ekki talað um þær eignir, stóreignir, sem á sama tíma hafa myndazt á örfáum höndum. Það er talað um tap sjávarútvegsins, en vandlega þagað yfir því, að bankarnir græða 30 millj. kr. á ári. Landsbankinn á yfir 100 millj. kr. í hreinni eign og græðir 17–18 millj. á ári. Það er verið að dylja þjóðina þess, að á undanförnum árum hafa skapazt tekjur og auður hjá ríkri auðmannastétt og sumpart hjá ríkisstofnunum eins og Landsbankanum. En allt þetta er dulið og prédikað sí og æ um fátækt og um að lækka þurfi laun almennings og rýra lífskjör hans.

Svo er hitt alveg sérstakt, hvernig hagfræðiálitið dregur upp blekkjandi mynd af ástandinu, t.d. sjávarútveginum. Hvaða rannsókn hefur verið gerð á rekstrarkostnaði hans? Hvað er hægt að spara? Hvað hefur verið gert til þess að sundurliða kostnað útvegsins og sjá, hvað hægt er að lækka? Allir útvegsmenn þurfa að greiða fyrir það, sem keypt er inn. En verð á öllum aðfluttum vörum til útvegsins er miklu hærra, en það þarf að vera. Hvar er minnzt á það í þessu plaggi? Hvergi. Það er ekkert reynt til að vernda útveginn gegn eða fyrir því okri. Það dregur meira fyrir útveginn að fá lækkaða vexti, en lækkað kaup. Er minnzt á þá hluti? Nei. Það er ekki minnzt á, hvernig ríkisvaldið hefur með ýmsu móti á valdi sínu að minnka útgerðarkostnaðinn. Það á að halda áfram að íþyngja þessum atvinnuvegi með álögum frá auðhringum og bönkum og þeim, sem mest hafa grætt. Þessi gróði er heilagur, hann má ekki snerta. En ef verkalýðurinn hefur möguleika á að fá sæmileg kjör, þá á að rýra þau.

Ég hefði gaman af að fá útskýringu á 5. gr. Er meint með henni, að verkamenn búi nú við ofrausn og lifi betur, en fyrir stríð, sbr. vísitöluna? Ég mun bera fram brtt. í þessu sambandi og sýna fram á, að þjóðartekjurnar hafa aukizt hlutfallslega síðan fyrir stríð margfalt á við kaup á sama tímabili, af því að allir hafa fengið vinnu og unnið með góðum. og mikilvirkum tækjum eins og menn. Hér í þessu frv. er hins vegar ekki minnzt á að reikna út og bera saman aukningu þjóðarteknanna og hækkun kaupgjaldsvísitölunnar. Og af hverju er verið að dylja, að kaupgjaldsvísitalan hefur ekki hækkað í hlutfalli við margföldun þjóðarteknanna? Það er vegna þess, að aðrir hafa grætt, en launamenn og hrifsað til sín þjóðartekjurnar, og því á að reyna að leyna. 5. gr. er aðeins til áróðurs og á að vinna gegn því, að lífskjör almennings haldist.

Hvað eftir annað hefur það verið undirstrikað af ráðamönnum þjóðarinnar, undirstrikað í orði og skálaræðum, að þeir, sem vinna að framleiðslunni, þurfi að fá sem bezt kjör. En hvað segja hagfræðingarnir á bls. 43:

„Í rauninni er svo komið, að sjómennirnir fá of stóran hlut aflaverðmætisins í sinn hlut, og að löggjafarvaldið og ríkisstjórnin hafa neyðzt inn á þá braut að greiða útgerðinni talsvert af öðrum framleiðslukostnaði af almannafé beint eða óbeint. Með þessu riðlast um leið sjálft hlutaskiptafyrirkomulagið.“ Seinna á sömu bls. segir:

„Við teljum, að hag útgerðarinnar þurfi og megi bæta með breytingum á hlutaskiptunum.“

Hér er m.ö.o. lagt til, um leið og sagt er, að hlynna þurfi að útveginum, að minnka hlut sjómanna, og ef sjómenn ganga ekki inn á það, á að stöðva útgerðina með vinnudeilum. Þeir virðast halda, að aðrir en sjómenn rói. Kannske hagfræðingar?

Hvar er í álitinu minnzt á verzlun með olíu og veiðarfæri og hverjir fái ágóðann af henni? Þar fleyta útlendir auðmenn rjómann af íslenzkum sjómönnum. En lagt er til, að kjör verkamanna og sjómanna séu skert. Þannig er allt á eina bókina lært, fyrir fram ákveðin ein niðurstaða eftir pöntun, að því er virðist, og sú niðurstaða er: of hátt kaupgjald. Hér er á ferð auðvald landsins, íklætt gervi vísindanna, það smeygir sér inn í stéttabaráttuna og lætur sem treysta megi þessu svo kallaða hagfræðingaáliti eins og formúlu. Það hefur verið vitnað í það hér eins og óskeikulan grundvöll. En þetta álit er hlutdrægt. Ég skal ræða það og rökstyðja við hvaða hagfræðing sem er. Hagfræðingarnir hafa aðeins eina afsökun, ef maður vill vera góður við þá, og hún er sú, að þeir séu eins og börn á skólabekk. Þeir stagast á þeirri firru, að tillögur þeirra skapi frjálsa verzlun og hún sé aftur grundvöllur þess, að öllum vegni vel. Þess vegna er það alltaf viðkvæðið, að þegar búið sé að lækka kaupið, verði verzlunin frjáls og allt lagist. Þetta er sá vöggusöngur, sem á að svæfa íslenzka alpýðu.

En hvernig eru staðreyndirnar í þessu máli? Þær eru þær, að vöruskortur mun halda áfram þrátt fyrir niðurstöður hagfræðinganna, og það er viðurkennt af þeim, sem hafa talað hér á undan mér, meira að segja af hv. 1. þm. S-M., að vöruskorturinn muni haldast áfram. Þessi hv. þm. er þó ekki hagfræðingur, en hann lítur raunsýnum augum á málið eins og við og grefur ekki höfuðið í sand frjálsrar verzlunar. Þingmenn treysta ekki á þessi úrræði. Hv. 8. landsk. tók hið sama fram, það virðast allir sammála um það, nema hagfræðingarnir. Hver einasta bollalegging þeirra lýtur að frjálsri verzlun. Þeir ganga m.ö.o. út frá falskri forsendu, enda gerir ríkisstj. ekki tilraun til þess, í samræmi við söng þessa frv. og álits, að koma á frjálsri verzlun. Þvert á móti hefur verzlunin aldrei verið fjötraðri, en nú. Stjórnin hefur sem sé ekki trú á, að álit hagfræðinganna sé rétt. Hún anzar ekki þessum blessuðum börnum, hagfræðingunum. Viðkvæði þeirra er trú á frjálsa verzlun, sem ekki styðst við neinn raunveruleika.

Svo er í 2. gr. frv. gengið út frá, eftir að búið er að lækka gengið, að ríkisstj. og Landsbankinn skuli hafa samráð um að ákveða gengið héðan í frá. Þar þykjast þessir herrar hafa fundið óbrigðult ráð til að halda kaupgjaldi niðri. Það er beinlínis ýtt undir alla atvinnurekendur að halda niðri kaupgjaldi, látið vofa yfir, að ella hætti bankarnir að lána til atvinnurekstrarins. Það á að píska verkamenn með svipu yfirvofandi. atvinnuleysis til að beygja sig undir alræðisvald ríkisstj. og Landsbankans.

Því stærri og betri atvinnutæki og því betri nýting þeirra, því hærra kaup er hægt að borga. Það er ekki verið að hugsa um að stækka framleiðslutækin og nýta þau betur, sem fengin voru á nýsköpunartímabilinu, svo að þau geti staðið undir hærra kaupgjaldi. Þvert á móti á að refsa þeim atvinnurekendum, sem geta borgað hærra kaup, þeim, sem hafa hagkvæmastan atvinnurekstur. Hækkandi kaupgjald er eðlilegasta hreyfing í þjóðfélagi, sem er á framfarabraut. Skyldi ekki mega byrja á því að spara heildsala og þjóðnýta Coca-cola, áður en sagt er við alla hlutarsjómenn: Það verður að lækka ykkar kaup.

Varðandi 2. gr. frv. má segja, að þar sé um hreina svikamylnu að ræða, því ef t.d. verkamenn fá kauphækkun, þá á bankavaldið að hafa það í hendi sér, með tilstuðlan ríkisstj., að gengið sé fellt. Slíkt sem þetta nær ekki neinni átt í þjóðfélagi, sem tryggja á atvinnuréttindi verkamanna og annarra launþega. Hins vegar gætu atvinnurekendur og verkamenn unnið að því með samstilltu átaki að bæta afkomu útgerðarinnar. En hér er um að ræða ráð skammsýnna manna, sem eru að brugga pólitísk ráð. (Forseti: Ég vil beina þeim tilmælum til hv. þm., að hann geri hlé á ræðu sinni nú.) Já, það passar mér vel, því að einmitt nú eru eins konar þáttaskil í ræðu minni. [Fundarhlé.]

Herra forseti. Ég hafði þar lokið máli mínu, þar sem ég hafði sýnt fram á, að í þessu frv. og allri greinargerð þeirri, sem fylgir því frá hagfræðingunum, er einvörðungu miðað við lækkun kaupgjaldsins, en ekkert rannsakað annað í þjóðfélaginu. Það er því ekki óeðlilegt, að verkalýðshreyfingin segi, er hún er spurð, hvort hún vilji taka á sig byrðar þær, sem greinir í frv., að það séu of margir milljónamæringar á Íslandi, of mikill verzlunargróði á Íslandi, of margir skriffinnar á Íslandi og embættismenn á of háum launum, sem fyrst ætti að leggja byrðarnar á, áður en skorið er niður við verkalýðinn. Þetta er síður en svo óeðlilegt svar, eftir þann undirbúning og aðfarir, sem haft hefur verið við þetta frv. Allur undirbúningur þessa máls er ekki réttur og heiðarlegur, ef leitast ætti við að lækna meinsemdirnar á þjóðarlíkamanum. Ég álít bæði frv. og greinargerð hagfræðinganna plagg, sem ætlað er til þess að blekkja með og til áróðurs, enda þurfti ekki annað en að hlusta á ríkisútvarpið í kvöld, þar sem einn frambjóðandi Sjálfstfl. frá kosningunum í haust hélt því fram, að þetta frv. væri undirbúið af lærðum hagfræðingum og því væri allt satt og rétt, sem í því stæði. Það er því viðbúið, að eftir slíkan undirbúning verði svör verkalýðshreyfingarinnar þau, að þeir, sem breiðust hafi bökin og ríkastir eru í þjóðfélaginu, taki fyrst sínar byrðar, áður en verkalýðshreyfingin færi sínar fórnir. Alþýðan hefur aldrei neitað að leggja að sér, en hún segir, að þeir, sem auðinn hafa og hátekjurnar, verði fyrst að taka á sig sínar kvaðir. Það er enn fremur rétt í sambandi við þetta að benda á það, sem tekið er fram í 2. gr. frv., þar sem ríkisstj. er fengið vald til þess að breyta genginu hvenær sem er, að þá er raunverulega verið að svipta verkalýðshreyfinguna og atvinnurekendur samningsrétti sínum um kaup og kjör. Svo framarlega sem verkalýðurinn gæti samið við atvinnurekendur um hærra kaup, gætu bankaráð Landsbankans og hæstv. ríkisstj. svipt hann þeim hækkunum með því aðeins að lækka gengið. Hér er því verið að stofna svikamylnu.

Ég hef nú rætt aðalatriðið í þessu frv., gengislækkunina og hvernig verkalýðshreyfingin lítur á hana. Þá kem ég að öðru atriði þessa frv. og öllum rökstuðningi fyrir því, þ.e.a.s., að of mikil fjárfesting á undanförnum árum sé rót meinsemdarinnar og eigi sök á því, hvernig komið er. Ég vil taka það fram, að ég álít þessa skilgreiningu ranga, en mun að öðru, leyti ræða það síðar. Ég vil nú rekja það álit, að of mikil fjárfesting sé orsök þess, að þjóðin búi nú illa. Ég ætla að sýna, hvernig þessi kenning kemur við einstakt dæmi, og síðan hvernig hún kemur við okkar þjóðfélagsþróun. Hagfræðingarnir segja á bls. 11, — og vitnaði hv. 1. þm. S-M. í það sem stoð fyrir sínu máli, — þeir segja svo, með leyfi hæstv. forseta, hvernig farið hafi verið að í stríðslok:

„Það ráð var hins vegar tekið að hverfa að nýsköpunarstefnunni og því skotið á frest að koma jafnvægi á þjóðarbúskapinn.“ Ég get skotið því hér inn, að það er alveg rétt hjá hv. 1. þm. S-M. að kalla þessa stefnu nýsköpunarstefnu. Siðan segir svo: „Hefði verið horfið að því að láta jafnvægi þjóðarbúskaparins ganga fyrir öðru, þá hefði innlenda fjárfestingin orðið að vera í samræmi við það, sem til var til slíkrar fjárfestingar innanlands, einkum vinnuaflið. Fjárfestingunni hefði þá verið haldið innan eðlilegra takmarka og beint inn á réttar brautir með lánastarfsemi bankanna og hóflegri þátttöku ríkisins. Á þann hátt hefði einnig orðið sneitt hjá ýmsum mistökum í framkvæmdunum. Til þess að afla fjár til hinna öru framkvæmda hefur orðið að auka óeðlilega mikið útlán bankanna og reka búskap ríkisins með miklum halla. Af þessu leiddi einnig, að sala gjaldeyrisforðans tók ekki úr umferð eins mikið laust fé og hún hefði átt að gera.“

Þetta er það, sem hinir vísu hagfræðingar segja í sínu áliti að gert hafi verið í stríðslok, og hér höfum við prófstein á, hvað þessir hagfræðingar hefðu ráðlagt ríkisstj., hefðu þeir verið kvaddir ráða 1945. Hvað þýðir þetta nú á réttri íslenzku, ef horfið hefði verið að jafnvægiskenningu hagfræðinganna? Ef ráðum þessara hagfræðinga hefði verið fylgt, þá hefðu einstaklingarnir verið látnir ráða, hvað gert hefði verið og framkvæmt, en ríkisstj. ekki verið látin gripa þar inn í. Sparifjáreigendurnir hefðu þá raunverulega ráðið, hvað gert hefði verið við gjaldeyrinn og hvernig hann hefði verið notaður. M.ö.o., þeir eiga við, að þörf hefði verið að koma í veg fyrir, að eins mikil eftirspurn eftir vinnuafli skapaðist eins og raun varð á, og viðhalda hæfilegu atvinnuleysi. — Þá skulum við lítillega athuga, hvernig farið hefði, ef leið hagfræðinganna hefði verið fetuð. Hver var nú vilji einstaklinganna 1945 til þess að nota það fé, er þeir áttu í bönkum, til báta- og togarakaupa? Nýbyggingarráð átti á þessum tíma tal við togaraeigendur og spurðist fyrir um álit þeirra og vilja til togarakaupa. Þeirra álit var, að engri átt næði að vera að kaupa hingað togara þá. Enskir togaraútgerðarmenn ætluðu að bíða með að láta smiða nýja togara handa sér, því að þeir voru sannfærðir um, að verðið mundi lækka eftir eitt til tvö ár. Hið sama ætluðu hinir íslenzku aðilar einnig að gera. Engum blandast nú hugur um, að svo framarlega sem einstaklingarnir hefðu verið látnir sjálfráðir, hefðu þeir allflestir, samkv. stefnu hagfræðinganna, slegið öllu á frest og beðið þar til þeir hefðu verið búnir að sjá villu sina og verið komnir á þá skoðun, að því fyrr sem þeir gerðu kaupin, því betra. Það var því þáverandi ríkisstj., sem greip inn í og gerði ráðstafanir til kaupa á 30 togurum, án þess að einstaklingarnir vildu nota sitt sparifé til kaupanna. M.ö.o., ef jafnvægishagfræðingarnir hefðu fengið að ráða stefnu Íslands 1945, þá hefðu aðeins örfáir togarar verið keyptir. Hver mundi svo afleiðingin hafa orðið? Við höfum tvö nærtæk dæmi. Hv. 1. þm. S-M. var á móti togarakaupunum 1945, en þegar hann var tekinn við og kominn í ríkisstj., þá voru keyptir togarar, því að þá var það jafnvægisstefnan, sem réði, en ekki nýsköpunarstefnan frá 1945. Sem sagt, 10 togarar, jafnvægistogarar, voru keyptir 1948. Og hvað sýnir sig svo með þessa togara, sem keyptir voru af hinni miklu lýðræðisstjórn þríflokkanna og enginn bölvaður Sósíalistaflokkur var til að reka þar á eftir? Hvað kosta þeir svo nú? Áætlað kostnaðarverð þeirra mun vera eitthvað 41/2–5 millj. kr., og ef Framsókn og Sjálfstfl. samþ. þetta frv., sem hér er nú til umr., mun hver þeirra kosta um 8–81/2 millj. En það var einmitt hugmynd hagfræðinganna 1945, að Íslendingar ættu að bíða rólegir jafnvel til 1948, en þá hefðu kannske verið keyptir, eins og nú er búið að gera, 10 togarar, sem kosta 8–81/2 millj. En hvað sýnir svo þetta? Það sýnir, að hagfræðingarnir koma með sínar kenningar út frá og upp úr kennslubókum og segja að allt, sem raski jafnvægi í þjóðarbúskapnum, sé það illa. En lífið sýnir bara allt annað. 1945 eigum við mikinn erlendan gjaldeyri og náum samningum um kaup á 30 nýjum togurum, sem eiga að vera tilbúnir 1947. Við þykjumst sem sé sjá fram á, að eftir stríðið verði mikill markaður fyrir sjávarafurðir okkar hjá hinum sveltandi þjóðum Evrópu. Þess vegna rekum við á eftir smíði þeirra, því að við viljum fá þá í brúkið sem fyrst, hvað sem líður öllum jafnvægiskenningum.

Ég vil halda því fram, að það hafi verið gæfa Íslands, að við tókum ekki tillit til jafnvægisvitlausra hagfræðikenninga. Það, að við slógum til nógu snemma og notuðum tækifærin, varð til þess, að íslenzkir útgerðarmenn urðu á undan brezkum í fyrsta skipti hvað viðvíkur útbúnaði öllum, stærð og hagkvæmni togaraflotans. Undanfarið höfum við aftur á móti keypt togarana gamla af Bretum, sem hafa verið langt fyrir neðan það, sem tækni tímans hefur krafizt. Við sem sagt hagnýttum okkur tækifærið og möguleikana, sem okkur buðust, og hefur sú ráðsmennska gefið okkur í erlendum gjaldeyri yfir 100 millj. kr. árlega. Ef farið hefði verið eftir kenningum hagfræðinganna, hefðum við spilað þessu öllu út úr höndunum á okkur og Bretar orðið á undan með sinn nýja togaraflota, og við horft á þá öfundaraugum. Þetta er því alveg dæmi um það, hvernig farið hefði, ef hagfræðingunum hefði verið leyft að ráða 1945. Við værum þá mun fátækari, hefðum ekki atvinnutækin og hefðum farið á mis við þær tekjur, sem við höfum nú af þessum skipum okkar.

Mér finnst það vera hálfgerð kaldhæðni örlaganna, að Sjálfstfl. skuli gera þetta hagfræðingaálit að sínu og leggja þetta frv. fram byggt á því, og þykir mér mjög leitt, að hæstv. forsrh. skuli ekki geta verið viðstaddur umr., því að ég hefði sérstaka löngun til þess að ræða þetta mál við hann. Sjálfstfl. er með þessu frv. að lýsa því yfir, að það hafi ekki verið að hans ráði, að farið var út á nýsköpunarbrautina, og ekki einungis það, heldur er hann jafnframt að lýsa yfir iðrun sinni varðandi gerðir sínar 1945. Jafnframt skil ég vel, að hv. 1. þm. S-M. taki vel undir þetta frv. Ég held, að Sjálfstfl. ætti að endurskoða sína hagfræði, ef hann ætlar að túlka þessar till. sem sínar, því að með því er hann að fordæma nýsköpunarstefnuna frá 1945.

Mér finnst það og vera hálfgerð kaldhæðni, að í viðbót við allt annað skuli vera gert ráð fyrir því í 11. gr. að leggja sérstakan skatt á nýsköpunartogarana, sem aldrei hefðu verið keyptir, ef farið hefði verið að till. þeirra hagfræðinga, sem þetta frv. sömdu. Því ekki að leggja skatt á jafnvægistogarana, sem koma 1951? Hvers vegna forðast ráðh. fyrrv. ríkisstj. að ræða um þá. Í staðinn fyrir að þessir togarar voru ekki keyptir 1945, eins og við sósíalistar lögðum til, þá láta nú sömu menn og komu í veg fyrir það, þjóðina borga 25 millj. með þessum jafnvægistogurum. Ég held því, að þeir menn, sem aðhyllast jafnvægisstefnuna, ættu að athuga svolítið betur, hvernig hún kemur út í „praksís“.

Þá mun ég nú á eftir ræða örlítið um fjárfestingu almennt. Það er eftirtektarvert atriði, að þessi hugsun, að fjárfestingin sé of mikil hér, er sprottin af pólitískum áróðri frá þeim hagfræðingunum Benjamín Eiríkssyni og Ólafi Björnssyni. Ég tel nú rétt að athuga dálítið nánar ástæðuna, sem hugmynd þeirra er sprottin af. Ég skal fúslega viðurkenna, að út frá þeim grundvelli, sem þeir hafa hugsað þetta frá, er mikið til í því. Grundvöllurinn, sem þeir hugsa út frá, eru hin þroskuðu iðnaðarþjóðfélög Bretlands og Bandaríkjanna, og undir slíkum kringumstæðum sem þar eru fyrir hendi og miðað við viðskiptalögmál kapítalismans er ekki óeðlilegt að ganga út frá jafnvægishugmyndinni, því að þar passar hún fyrir kapítalistana til kauplækkana og annarra slíkra aðgerða, svo og fyrir hringakerfið, sem skapar aðalauðinn. M.ö.o., arðrán auðstéttanna í slíkum þróuðum iðnaðarþjóðfélögum getur skapað blómlegan stóriðnað, ef kreppurnar grípa þar ekki inn í, þ.e. það, sem á hagfræðingamáli mundi verða kallað „accumulation“. Auðmannastéttin í slíkum löndum er það sterk, að hún getur náð frá verkalýðnum nægilega miklu til þess að geta haldið áfram að auka atvinnutæki sin, og hún er það fámenn, að óhugsandi er, að hún geti torgað nema litlu af því, sem hún tekur frá verkalýðnum. Hitt fer til að auka hin afkastamiklu atvinnutæki hennar. Fyrir auðmannastéttir slíkra landa, Bretlands og Bandaríkjanna, sem þurfa gífurlega mikla markaði, er mjög skynsamlegt að halda því fram, að iðnaðarvaldið í þessum löndum geti framleitt vörur til að selja til hinna landanna, að ekki sé þörf fyrir hin löndin að auka iðnað sinn eða fá fullkomnari atvinnutæki, og rétt sé að láta það lögmál ráða, sem gerir þau lönd að góðum markaðslöndum fyrir stóriðnaðarvöru iðnaðarlandanna. Til þess að menn geri sér ljóst viðhorf þessara mála, vil ég segja eftirfarandi: Þegar við berum saman England og Bandaríkin, sem eru tiltölulega háþroskuð, kapítalísk þjóðfélög, miðað við okkar íslenzka þjóðfélag, og þegar við athugum ekki aðeins tæki þeirra, byggingar og eignir, — en núlifandi kynslóð Englands hefur erft 4/5 hluta af öllum eignum landsins og uppbygging þess hefur staðið öldum saman, hvernig passa þá þessar hugmyndir fyrir okkar þjóðfélag? Hverju þurfum við á að halda hér í okkar þjóðfélagi? Við tökum við okkar landi til þess að byrja að stjórna því og erum að nokkru leyti stjórnarfarslega frjálsir um síðustu aldamót. Landið er svo að segja óhúsað, lítið er af vegum og hverfandi lítið af tækjum, svo að ekki sé talað um nýtízku tæki. Fyrir okkur Íslendingum liggur þá það verkefni að byggja þetta land upp. Ef við ætlum að byggja það upp á þeim grundvelli, að þjóðin geti lifað sem beztu lífi, þurfum við að veita henni nýtízku tæki til að vinna með, skapa nokkurs konar stóriðnað, hvort sem það er á sjó eða landi, hvort sem það eru fljótandi verksmiðjur, nýtízku togarar eða verksmiðjur byggðar á fossafli. Þetta þýðir m.ö.o., að við tökum hér við frumstæðu. bændaþjóðfélagi, fátæku og arðrændu gegnum aldir, og við þurfum á nokkrum áratugum að vinna upp allt, sem aðrar þjóðir hafa svipt okkur á undanförnum öldum. Við þurfum að skapa okkur tæki, byggja hús, sem ekki voru byggð, vegna þess að þjóðin var arðrænd. Í Kaupmannahöfn, en ekki á Íslandi, voru reistar hallir fyrir það fé, sem pínt var út úr íslenzkum bændum og sjómönnum. Hvað þýðir það? Það þýðir, að það, sem við þurftum, Íslendingar, að einbeita okkur að, út frá þörfum okkar íslenzka þjóðfélags, var fyrst og fremst fjárfesting. Þetta hlýtur öllum að vera ljóst, sem einhverja hugmynd hafa um hagfræði, svo framarlega sem menn hugsa um það, hvað íslenzku þjóðinni er fyrir beztu, svo framarlega sem um það er hugsað að skapa þjóðinni nóg og góð tæki til að vinna með. Fyrsta skilyrðið fyrir góðri lífsafkomu er að hafa góð og fullkomin framleiðslutæki. Það er ekki til neins fyrir sjómenn á róðrarbátum að stofna til vinnudeilna og heimta kaup eins og greitt er á togurum. En takið þið sjómennina, sem voru á róðrarbátunum um aldamótin, og setjið þá á nýsköpunartogara — og hafið þá heldur 50 en 30 — og sjáið, hvort þeir skapa ekki meiri auð fyrir þjóðfélagið og geri það mögulegt, að þeim sjálfum sé borgað meira kaup. Sama gildir um að hagnýta auðlindir eins og okkar fossa. Þjórsá ein getur gefið útflutningsverðmæti á ári eins og öll okkar útgerð, 400 millj. kr. Spurningin er sú, hvort við viljum einbeita okkur að því að hagnýta þessar auðlindir, eða hvort við viljum sætta okkur við róðrarbátana og gömlu togarana, orfið og hrífuna eða eitthvað ofurlítið hærra stig þar fyrir ofan. Með öðrum orðum: við tökum við okkar landi pólitískt og atvinnulega sem nýlendu, og við erum að reyna að vinna það upp úr því að vera nýlenda. Við erum búnir að því, a.m.k. að nokkru leyti pólitískt með því að gera það stjórnarfarslega sjálfstætt, að lýðveldi, en við áttum eftir að gera okkar þjóðfélag eins þroskað iðnaðarþjóðfélag og okkur var mögulegt að skapa. Með því að gera það að slíku þjóðfélagi sköpuðum við um leið þjóðinni raunhæfan, efnahagslegan grundvöll til þess að fólkinu liði vel, afkastaði mikilli vinnu og framleiddi miklar afurðir. Hvað er nú það, sem hagfræðingarnir leggja til í þessum efnum? Þeir segja við okkur, að þetta skulum við alveg láta vera komið undir einstaklingunum, hvað þeim þóknist að gera, hvort þeir vilji í þetta leggja. Á árunum milli 1930–40 fengum við dálitla reynslu af þessu. Hvernig gekk það? Það var ekki einn einasti nýr togari keyptur. Við vitum ósköp vel, hvað það kemur til með að þýða, svo framarlega sem þjóðin ekki einbeitir sér að þessu verkefni. Það þýðir það, að þessi verkefni verða ekki unnin. Svo framarlega sem þjóðin ætlar að skapa sér nýtízku, tæki, þá verður hún að einbeita öllum sínum kröftum að því, hún verður að taka valdið yfir fjármagni landsins í sínar hendur og stjórna því, hvernig það er notað, eins og hún gerði að nokkru leyti 1945, þegar hún ákvað að kaupa nýsköpunartogarana og þegar með l. frá Alþ. varð að brjóta Landsbankann að nokkru leyti á bak aftur, til að fá hann til að ganga inn á þetta. Þess vegna er það, að sú kenning, sem þessir góðu hagfræðingar hér eru með, er kenning, sem þeir yfirtaka á skólabekknum hjá há þroskuðum iðnaðarþjóðfélögum, Bretlandi og Bandaríkjunum, og ætla svo að láta hana passa fyrir það þróunarstig, sem íslenzka þjóðfélagið stendur á. En hún passar alls ekki fyrir það. Þeir eru eins og skólabörn, sem hafa lært eitthvað á skóla, en ætla svo að fara að nota það á alveg hringlandi vitlausum stað. Það er allt annað, sem við þurfum í því frumstæða bænda- og fiskimannaþjóðfélagi, sem við lifum í. Við höfum verið að umskapa grundvöll atvinnulífsins með þeirri tæknilegu byltingu, sem gerð var á árunum 1945 og þar á eftir. Það lá því ekki fyrir okkur að hugsa um jafnvægi, heldur nýsköpun atvinnulífsins, og að gera það sterkt, afkastamikið og voldugt. Það tókst að nokkru leyti. Ég vil þess vegna alvarlega vara við, einmitt með hliðsjón af því, sem ég nú hef sagt, að taka ómelta kenningu hagfræðinga frá skólabekknum, eins og hér er gert, sem taka háþroskað iðnaðarþjóðfélag, til þess að gera það að leiðarstjörnu um það, hvernig við eigum að stjórna okkar þjóðfélagi. Þeir, sem koma með þessa kenningu fyrir okkar litla þjóðfélag, hugsa eins og Englendingar og Bandaríkjamenn, en ekki sem Íslendingar. Ef við ætlum að halda áfram eins og undanfarin ár og gera þjóðfélag okkar þroskað iðnaðarþjóðfélag, megum við ekki taka tillit til þessa, heldur hagnýta til fulls alla möguleika í þá átt og einbeita okkur við nýsköpunarstefnuna eða fjárfestingarstefnuna, ef menn vilja heldur kalla það svo.

Það er líka komið inn á það í áliti hagfræðinganna, að ef til vill hefði það verið skynsamlegt að lækka gengi íslenzku krónunnar meira en þeir leggja til að gera. Það er náttúrlega gefið, að ef það hefði verið gert 1945–46, þá hefðu öll þau tæki, sem voru keypt til landsins, orðið miklu dýrari, jafnt til sjávarútvegsins og landbúnaðarins og annarra atvinnugreina. Það hefði þýtt það, að það hefði orðið miklu erfiðara fyrir okkur að veita okkur möguleika til fjárfestingar, sem við höfðum út frá okkar innlendu aðstöðu. Þess vegna er það líka ein af þeim afleiðingum, sem mundi verða af því, ef eftir till. hagfræðinganna væri farið, — að hækka svo gengi punds og dollars og annarrar útlendrar myntar, sem frv. gerir ráð fyrir, — að fjárfestingin mundi lamast og kannske að sumu leyti stöðvast, vegna þess að tækin, sem við þurfum að kaupa frá öðrum löndum, yrðu svo dýr. Ég hef nefnt dæmi um jafnvægistogarana 10, og við skulum taka dæmi af landbúnaðinum. Síðasta hálfa áratuginn höfum við alveg sérstaklega einbeitt kröftum þjóðarinnar að því að skapa tæknibyltingu í landbúnaðinum, með því að kaupa til landsins dráttarvélar og aðrar vélar til afnota fyrir hann. 74% hækkun á gengi punds og dollars mundi þýða það, að um leið yrði hækkun á öllum tækjum, sem landbúnaðurinn þarf. Það þýðir aftur, að það mundi gera bændum erfiðara fyrir að fá sér þessi tæki. Þegar svo líka fóðurmjöl og allt annað, sem þeir þurfa á að halda af útlendri vöru, hækkaði um leið, þá geta menn nokkurn veginn skilið, að þótt afkoma þeirra hafi kannske verið sæmileg undanfarið, þá fer ekki að verða mjög mikill afgangur fyrir þá til að kaupa hálfu dýrari tæki, en þeir hafa keypt undanfarið. En ef stefnan, sem gengur gegnum þetta frv., styrkjalaus atvinnurekstur, verður framkvæmd, er landbúnaðurinn — eins og rétt væri út frá sjónarmiði þessara jafnvægishagfræðinga, og ég vona sérstaklega, að hv. 1. þm. S-M. athugi vel, hvernig það verður í framkvæmdinni — sviptur öllum styrkjum, sem hann hefur í sambandi við almennar búnaðar- og raforkuframkvæmdir, og þá vil ég auglýsa eftir, hvað margir bændur á Íslandi treysta sér til að kaupa traktora og annað til að halda áfram vélbyltingunni í hinum íslenzka landbúnaði. Ég er hræddur um, að þeir yrðu ekki margir, sem gæfu sig fram. Nei, með þeim till., sem hér hafa komið fram, er verið að stöðva fjárfestinguna, sem hefur átt sér stað í íslenzkum atvinnugreinum. Það er verið að stöðva þá vélbyltingu, sem hefur átt sér stað í sjávarútveginum og landbúnaðinum. Það er verið að stöðva okkur á því nýlendustigi, sem við höfum staðið á, svo að við náum ekki fram til að verða iðnaðarþjóð, því að í raun og veru er það stóriðnaður, sem hér er hafinn, þar sem eru nýtízku togararnir, síldarverksmiðjurnar, hraðfrystihúsin og annað slíkt. Ég skal aðeins nefna hér eitt dæmi um það, hvaða þýðingu þessi gengislækkun hefur á þróun okkar uppbyggingar í atvinnulífi. Næstum því allir hv. alþm. hafa verið sammála um það, hver nauðsyn okkur er á því að efla raforkuframkvæmdir, hver nauðsyn okkur er á því að hagnýta okkur hin miklu vatnsföll og jafnvel að koma hér á stað stóriðju í sambandi við þau. Eitt af því, sem lýst var yfir fyrir nokkru að væri ákveðið af fyrrverandi ríkisstj., var viðbótarvirkjun Sogsins. Sú virkjun var áætluð 90 millj. kr., 48 millj. kr. í útlendu fé og 42 millj. kr. í innlendu fé. Með þeirri gengislækkun, sem hér er lagt til að gera, hækkar útlendi þátturinn í þessu um 35 millj. kr. M.ö.o. fer Sogsvirkjunin upp í 125 millj. kr. Þetta þýðir það, að allar raforkuframkvæmdir á Íslandi verða miklu dýrari en ella, fjárfesting í slík fyrirtæki verður miklu erfiðari fyrir okkar þjóð, miðað við lífsafkomuna, rafmagn og allt slíkt verður miklu dýrara. Nú sem stendur er meiri hlutinn af öllum raflögnum framkvæmdur með styrkjum, sem nema meir en helmingi af kostnaði. Ef þessi rekstur á að verða styrkjalaus og frjáls verzlun á að koma þar í viðbót á öllum sviðum, eftir að búið er að hækka verð á öllu, sem til raforku þarf, um 74%, þá getur sérstaklega Framsfl. útmálað það fyrir sér, hvernig ganga muni að reisa raforkuver í sveitum og koma rafmagni til bænda. Nei, við skulum gera okkur það ljóst, að till. þessara hagfræðinga, ef samþ. verða, þýða stöðvun iðnaðarins, og allt hjal um stöðvun fjárfestingar þýðir það að láta framfarirnar stranda á því stigi, sem þær nú eru á, og hindrar, að við getum haldið áfram á þeirri braut að skapa okkur öruggari efnahagsgrundvöll, bæta lífskjör almennings og auka framfarir þjóðarinnar. Þetta þýðir, jafnt hvað kaupgjald og fjárfestingu snertir, að það er verið að leiða fátæktina yfir þjóðina aftur, eins og við þekktum hana fyrir stríðið og lengst af, sára og beiska fátækt, sem okkur er gert illmögulegt að ráða við. Fjmrh. sagði í ræðu sinni, að það væri verið að binda endi á umfangsmikið tímabil. Það er rétt. Það er verið að binda endi á tímabil þeirra stærstu átaka, sem gerzt hafa í íslenzku atvinnulífi til þess að skapa raunhæfan efnahagslegan grundvöll fyrir þjóðina, svo að hún megi lifa við betri kjör en áður, og það er verið að innleiða stöðvunartímabil, af því að yfirstétt þessa lands getur ekki hugsað til þess að slaka á sínum lífskjörum gagnvart almenningi og fjárfestingarþörf þjóðarinnar. Það er verið að stöðva framfarir og þróun þessa þjóðfélags og hrinda alþýðunni út í fátækt, til þess að auðmenn landsins og voldugt skriffinnskuapparat geti hjarað áfram, svo að þessi þunga byrði geti hvílt á þ jóðinni, án þess að hún fái tækifæri til að halda áfram að veita sér betri lífskjör. Við verðum að gera okkur ljóst, hvað er að gerast og að þessi pólitík, að stöðva framfarir, skapa okkur fátækt og halda okkur á því nýlendustigi, sem við vorum á, passar í kramið hjá enska og ameríska auðvaldinu, sem veit ekki, hvað það á að gera við framleiðslu sína. Það er þægilegt fyrir þessar voldugu iðnaðarþjóðir að segja við önnur lönd: Verið þið á eftir, verið þið áfram frumstæðar bænda- og fiskimannaþjóðir, fáið ykkur ekki ný tæki, heldur verið markaður fyrir okkur, og við skulum láta ykkur fá vörur eftir sem áður, verið fátæk og notið ykkar litlu peninga fyrir rándýrar vörur frá okkur. Og þeir hindra okkur í því að nota, okkar auðlindir, eins og fossana, til að koma upp stóriðju.

Þessi „teoría“ hagfræðinganna passar sem sagt í kramið fyrir Breta og Ameríkana, en hún hentar ekki gagnvart þjóð, sem er að brjótast upp úr fátækt og í það að verða háþroskað iðnaðarþjóðfélag. Ég held þess vegna, að þessar „teoríur“, sem hér er diskað upp með fyrir okkur Íslendinga, ættum við að senda til baka. Þeir geta „praktíserað“ þær þar, sem þær eru lærðar. Við erum færir um að finna það út sjálfir, hvað hentar okkar þjóðfélagi bezt, og ég held, að við höfum, gert það með góðum árangri undanfarin ár. Ég held okkar þjóðfélag sé miklu ríkara í dag en það væri, ef við 1945 hefðum farið eftir till. eins og till. þessara hagfræðinga. Það, sem við sósíallstar vorum að vinna að, þegar við beittum okkur fyrir nýsköpuninni og tókum þátt í nýsköpunarstj., var það, að gera þetta land ríkt, reyna að skapa því stór og voldug tæki til að vinna með, svo að þjóðin kæmist á bekk með þeim þjóðum, sem lengst eru komnar hvað tækni snertir. Þrátt fyrir það, þótt þetta næðist ekki, þá voru stigin nokkur spor fram á við, sem þýddi það, að okkar land var tiltölulega ríkt, móts við það, sem það var, og væri sá auður, sem í þessu landi er til, notaður áfram til þess að byggja upp okkar atvinnulíf, væru þær 500–600 millj. kr., sem 200 menn í Reykjavík eiga, ásamt öðru fé landsmanna, notaðar til að skapa grundvöll að stóriðju, gætum við með tímanum gert þetta litla þjóðfélag miklu ríkara, en það nú er. Við skulum gera okkur grein fyrir, á hvern hátt okkur hefur tekizt að gera þetta undanfarin ár. Á undanförnum árum hefur verið mikil vinna fyrir alla, eftirvinna og aukavinna. Menn hafa unnið hjá öðrum á daginn og byggt yfir sig á kvöldin. Það er þrælað mikið á þessum árum og það sér á hinum mikla þjóðarauði. Stórvirk atvinnutæki hafa verið tekin í notkun og ný fyrirtæki risið upp. En hver er svo grunnsteinninn í hugmyndum hagfræðinganna um notkun vinnuafls á næstu árum? Grunnsteinninn, sem framkvæmdin á öllum þessum „teoríum“ byggist á, er mátulegt atvinnuleysi, svo að hægt sé að nota það sem písk á verkalýðinn allan tímann, það mikið atvinnuleysi, að hægt sé að hræða hvern einasta mann, sem vinnur, því, að ef hann ekki beygi sig, þá verði hann atvinnulaus. Hvað þýðir þetta frá sjónarmiði þjóðarbúsins? Það þýðir, að fleiri hundruð eða þúsund manns eru látnir verða atvinnulausir. Það þýðir, að vinnuaflið, sem hægt er að nota til að skapa stórkostlega fjárfestingu, verður látið ónotað. Ég ætla að nefna eitt smádæmi um það, hvernig þetta verður í framkvæmd. Í nýju Sogsvirkjunina þarf 42 millj. kr. í innlendu fé. Það er vinnuaflið innanlands. Til þess að ljúka stækkuninni á þrem árum þarf ekki nema 200 verkamenn. Það þýðir m.ö.o., að þetta vinnuafl skapar innlenda hlutann af virkjuninni. Við gætum með nokkuð mörgum 200 manna hópum skapað nokkuð margar virkjanir, hvað innlenda hlutann af fjármagninu snertir. Hvað þýðir það, að 200–400–600 verkamenn séu látnir ganga atvinnulausir? Það þýðir, að við látum ónotað verðmæti, sem mundi skapa innlenda hlutann af kostnaði við 1–2–3 Sogsvirkjanir. Sú stund, sem verkamaðurinn er atvinnulaus, er eyddur auður, en atvinnuleysi er grundvöllur undir öllum hugmyndum hagfræðinganna og skilyrði til þess, að þær verði framkvæmdar. Íslenzka þjóðin, sem þarf á því að halda að nota allt sitt vinnuafl, á að byggja upp á skipulagi, sem grundvallast á notkun þess, en hún hefur ekki efni á að kasta vinnuaflinu í sjóinn. Hagfræðingarnir bjóða okkur upp á atvinnuleysi, en segja um leið, að við höfum ekki efni á að festa svona mikið fé. Það er sagt, að við höfum ekki efni á að byggja Sogsvirkjunina, en við höfum ekki efni á að kasta vinnuaflinu í sjóinn. „Teoría“ hagfræðinganna er að halda uppi atvinnuleysi, til þess að atvinnurekendastéttin geti dafnað. Það á að eyðileggja atvinnumöguleika landsmanna til þess að gefa milljónamæringunum hér í Rvík tækifæri til að semja niður kaup fólksins, og þetta er ekki gert vegna þess, að verkamannastéttin hafi ekki verið reiðubúin til að semja við atvinnurekendur. 1944, þegar nýsköpunarstj. er mynduð, bjóða verkalýðssamtökin upp á samning til tveggja ára um óbreytt kaup, til að tryggja vinnufriðinn í landinu. Atvinnurekendur vildu ekki semja upp á þetta.

Ef það verður ráðizt í nýjar og miklar framkvæmdir, þá mun ekki standa á verkalýðssamtökunum að tryggja vinnufrið og byggja þjóðfélagið upp, verkalýðsfélögin eru reiðubúin til slíks samstarfs. Hér er þess vegna verið að innleiða, íklædda í hagfræðikerfi, kúgunarstefnu gagnvart verkalýðnum, sem þýðir um leið stöðvunarstefnu fyrir íslenzkt atvinnulíf.

Ég hef nú eytt lengri tíma, en ég ætlaði mér í að ræða um þetta spursmál og fjárfestinguna, vegna þess að mér hefur blöskrað, hvernig áróðurinn gengur, ekki aðeins í blöðum, heldur líka í skrifum hagfræðinganna um þessi mál. Öll þessi skrif einkennast af því, að það er rætt út frá hugmyndinni um tiltölulega háþroskað iðnaðarþjóðfélag, — rætt án þess að nokkurt tillit sé tekið til þeirrar þjóðfélagsþróunar, sem Ísland stendur á, og að íslenzkt þjóðfélag sérstaklega á að hagnýta sér sínar auðlindir og sitt vinnuafl á annan hátt en háþroskað iðnaðarþjóðfélag getur gert. Í þessu plaggi, þar sem verið er að rökstyðja þær kenningar, sem hér er haldið fram, er sérstaklega vitnað í yfirlýsingu, sem gerð var, þegar nýsköpunarstjórnin var mynduð, og það prentað upp sem fylgiskjal með þessu, það að vera, að því er mér virðist, til þess að rökstyðja, að raunverulega séu það verkalýðsflokkarnir, sem séu að brjóta það, sem lofað hafi verið 1944, þegar nýsköpunarstjórnin og Ólafur Thors forsrh. gaf sínar yfirlýsingar. Þessi yfirlýsing hans er birt á blaðsíðu 26, það álit hljóðar á þessa leið, með leyfi hæstv. forseta:

„Hitt er svo auðvitað stjórninni og stuðningsmönnum hennar ljóst, eins og öllum öðrum, að ef dómur reynslunnar verður sá, að hin nýja tækni fær ekki risið undir óbreyttu kaupi, verður ekki hjá því komizt, að allir, ekki bara þeir lágt launuðu, heldur allir, er framfæri hafa af framleiðslunni, verða að lækka kröfur sínar, því að til langframa getur engin þjóð búið við hallarekstur. En þá og þá fyrst er frambærilegt að gera þessar kröfur. Og þá og þá fyrst, eftir að verkalýðurinn hefur séð, að í orði og á borði hefur allt verið gert, sem hugsanlegt er til þess að halda uppi lífskjörum hans, mun verkalýðurinn vera reiðubúinn til að hlusta á og fara eftir slíkum óskum. Þetta er jafnaugljós sannleikur sem hitt er augljós firra, að vera nú að hefja illvígar deilur um kauplækkanir, meðan enginn velt, hvort kaupið þarf að lækka, og þá enn síður, hversu mikil lækkunin þyrfti að vera.“

Þessi yfirlýsing, sem Ólafur Thors, núverandi forsrh., gaf, stendur enn þann dag í dag. Verkalýðurinn mun áreiðanlega enn þá, eftir að hafa séð að í orði og á borði hefur allt verið gert, sem hugsanlegt er til þess að halda uppi lífskjörum hans, vera reiðubúinn til að hlusta á till. En það er svo fjarri því, að allt hafi verið gert í orði og á borði, sem hugsanlegt er til þess að halda uppi lífskjörum hans, að þvert á móti hefur á þrem síðustu árum verið ráðizt á lífskjör verkalýðsins, án þess að nokkur hlutur hafi verið sparaður við yfirstéttirnar og skriffinnskubákn ríkisins. Á sömu þingunum sem samþ. hefur verið að skerða kaupið með því að binda vísitöluna í 300, hefur verið samþ. að hækka tollana og koma á nýjum embættum og skrifstofubáknum og séð um, að heildsalagróðinn haldi áfram. Verkalýðurinn hefur ekki séð, að þetta hafi verið gert, heldur þvert á móti, og í þessu áliti hagfræðinganna er ekki gerður nokkur skapaður hlutur til þess að skera niður við yfirstéttir þessa lands og spara í ríkisrekstrinum.

Ég þykist nú hafa fært að því nokkur rök, að það, sem hér er gert til þess að ráðast á kaupgjaldíð og stöðva fjárfestinguna, sé í fyrsta lagi ráðstafanir á móti hagsmunum íslenzkrar alþýðu, fyrst og fremst verkalýðnum, sem við framleiðslugreinarnar vinnur, og í öðru lagi gegn þörfum íslenzku þjóðarinnar til að efla og þroska sitt atvinnulíf. Hins vegar er þetta tvennt, of hátt kaupgjald og of mikil fjárfesting, það, sem hagfræðingarnir og ríkisstj. álítur vera aðalsjúkdóminn í núverandi þjóðfélagsástandi. Ég held, að þessir læknar, sem ætla sér að lækna sjúkdóminn í okkar þjóðfélagslíkama, hafi ratað á alveg skakkan stað í þjóðfélagslíkamanum, þegar þeir ætla að fara að gera sinn uppskurð. Ég held, að þeim fari svipað og t.d. lækni, sem færi að gera ráðstafanir út af t.d. sjúkdóm í lifrinni, þegar það væri sjóndepra, sem gengi að sjúklingnum, eða eitthvað álíka óskylt, sem fyrst og fremst þjáir hann. Það er röng skilgreining á því, hvað fyrst og fremst kreppir að í okkar þjóðfélagi, sem allar þessar kenningar hagfræðinganna byggjast á, og það að tvennu leyti. Þeir segja, að það þurfi að skera niður við alþýðuna, þegar þarf að byrja á að skera niður við auðmannastéttina. Þeir segja, að það þurfi að skera niður fjárfestinguna, hún sé aðalmeinsemdin, og framkvæma gengislækkun, þegar að mínu áliti sá sjúkdómur, sem fyrst og fremst þjáir okkar sjávarútveg og stendur honum fyrir þrifum, er markaðsvandræði. Ég held, að það, að ræða þetta mál, sem hér liggur fyrir, með því að ganga fram hjá því, sem er höfuðmeinsemdin fyrir þjóðfélagið sem heild, sé vísvitandi að blekkja sjálfan sig og þjóðina. Það, sem kreppir að í okkar sjávarútvegi nú, er markaðsvandræðin, það er hans viðfangsefni nr. 1. Það eru fleiri hlutir, sem hvíla þungt á honum, hvers konar braskþungi, skriffinnska og ýmislegt, sem þarf að lækna, en markaðserfiðleikarnir eru það, sem er nr. 1., og vegna þess að allt þetta frv. og allar fórnir, sem í því felast fyrir alþýðuna, eru heimtaðar út frá því sjónarmiði, að það sé til tryggingar atvinnurekstrinum og tryggingar sjávarútveginum, vil ég leyfa mér að beina fyrirspurnum til hæstv. ríkisstj. um það, hvaða tryggingu hún leggur fyrir Alþ. um það, að þessi uppskurður, sem hér á að gera, beri tilætlaðan árangur. Hvaða tryggingu hefur ríkisstj. fyrir því, að með þessari lækkun á genginu gangi sjávarútvegurinn af fullum krafti? Við skulum í fyrsta lagi taka þann útveg, sem fyrst og fremst er sagt að verið sé að gera þetta fyrir, það er smábátaútvegurinn og aðalframleiðsla hans, freðfiskurinn. Nú fullyrða bankarnir og þeir, sem bezt þekkja til í okkar markaðslöndum, að markaðurinn fyrir freðfisk muni vart meiri en 15 þús. tonn, þrátt fyrir þá gengislækkun, sem fyrirhuguð er í þessu frv. Nú vil ég spyrja: Er það meiningin, þegar búið væri að framleiða 15 þús. tonn af freðfiski, að þá ætti að stöðva framleiðslu freðfisksins og bankarnir að segja: við lánum ekki meira nema með ríkisábyrgð? Eða á að stöðva framleiðsluna og skapa atvinnuleysi og gera það að verkum að rekstur hraðfrystihúsanna og bátanna verði svo dýr, þegar þeir fá ekki að framleiða nema helming af því, sem þeir geta framleitt, að tap verði á öllum rekstrinum þrátt fyrir gengislækkunina? Ég vil þess vegna leyfa mér að spyrja hæstv. ríkisstj.: Hefur hún tryggingu fyrir því með þessari gengislækkun, sem hún nú leggur til, að hraðfrystihúsin megi framleiða 30 þús. tonn og bankarnir láni út á 30 þús. tonn og þessi 30 þús. tonn verði seld? Hvar eru hennar samningar um það? Eða er bara lofað upp í ermina? Er heimtað af okkur að hækka gengi pundsins um 74%, og við stöndum svo uppi eins og glópar eftir 2–3 mánuði, og ríkisstj. kemur og segir: Það var þrátt fyrir þessa gengislækkun ekki hægt að selja þennan freðfisk? Ég vil spyrja þá vísu menn, sem kalla til hagfræðinga í öðrum heimsálfum: Hvar er álit hagfræðinganna um þessa markaði, sem við eigum að fá með þessari gengislækkun? Hæstv. ríkisstj. hefur kinokað sér við að gefa upplýsingar um þetta. Á það að vera á huldu? Á Alþ. ekkert að fá að vita um þetta? Ætlar hæstv. ríkisstj. að koma sér hjá því að segja nokkuð um þetta mál, þetta mál, sem er nr. 1 fyrir sjávarútveginn? Ástandið er svona viðvíkjandi freðfiskinum, það vita útgerðarmenn, og ég vil leyfa mér að vonast eftir því, að þetta frv. verði ekki sett þannig í gegnum þingið, að útgerðarmenn fái ekki að segja sitt álit um það, hvað þessi ráðstöfun muni þýða. Ég held þess vegna, að það verði að vera skilyrði fyrir því, að hægt sé að ræða þessar aðgerðir, sem hér er lagt til, af einhverju viti, að ríkisstj. leggi fram svona upplýsingar um þessi mál, hvar þessir markaðir eru, fyrir freðfiskinn, fyrir saltfiskinn og fyrir ísfiskinn, og hvað er hægt að selja mikið. Við seldum í Þýzkalandi 65 þús. tonn í fyrra. Getum við selt þar 10 þús. tonn nú eða eitthvað meira? Og hvernig er þetta viðvíkjandi Englandi? Í þessu máli er ómögulegt að komast hjá því fyrir ríkisstj., ef hún ætlast til þess, að þetta mál sé yfirleitt rætt af einhverju viti í þinginu, að gefa upplýsingar um þetta. Megum við t.d. spyrja hana: Hvað þarf verðið á freðfiskinum að vera í Englandi í dag til þess að þessi framleiðsla seljist? Hvaða verð þarf að vera á ísfiskinum í Þýzkalandi til þess að hægt sé að selja 65 þús. tonn, eða er enginn möguleiki að selja hann fyrir hvaða verð sem er? Það er þessi trygging, sem Alþ. verður að heimta að ríkisstj. gefi, þegar hún er að gera svona kröfur til þjóðarinnar um fórnir eins og hér er á hana lagt. Hagfræðingarnir hafa sína kenningu um þetta mál, þeir hafa þá kenningu, að svo framarlega sem við séum samkeppnisfærir, Íslendingar, þá sé hægt að selja alla þessa hluti; ef við Íslendingar getum undirboðið Norðmenn og Færeyinga, þá sé allt í lagi, frjáls verzlun skapi alltaf næga markaði. Það er trúarsetning, sem allar þessar kennisetningar hagfræðinganna byggjast á. Forsendan er frjáls verðmyndun í markaðslöndunum, t.d. Englandi, forsendan hvað markaðsmálin snertir, sem hagfræðingarnir ganga út frá. Er nú þessi trú byggð á staðreyndum? Er frjáls verðmyndun á þessum mörkuðum, sem við þarna erum að eiga við?

Hv. 8. landsk. þm. kom nokkuð inn á það áðan í sinni ræðu, að ef til vill væri ekki svona mikið um þessa frjálsu verzlun hér heima eins og menn vildu vera láta, þrátt fyrir það að það væru engin innflutningshöft. Við skulum þá athuga markaðsmöguleikana í þeim löndum, sem við fyrst og fremst seljum til. Hvernig er það með frjálsa verzlun fyrst og fremst t.d. í Englandi, sem er það höfuðmarkaðsland, sem við eigum kost á? Þeir upplýsa okkur líka um það, hagfræðingarnir, og ég held, að það sé óhjákvæmilegt að upplýsa ofurlitið um það. Okkur er sagt, að við eigum að lækka verðið á freðfiskinum til þess að vera samkeppnisfærir. Hvernig er því háttað með kaupin á freðfiskinum t.d. í Bretlandi? Í Bretlandi er það einn aðili, sem kaupir allan okkar freðfisk, það er brezki auðhringurinn Unilever, sem er sterkasti og ríkasti auðhringur heimsins utan Bandaríkjanna. Þessi auðhringur á m.a. útgerð í Englandi. Hann keypti fyrir nokkrum árum stóra togaraútgerð, Mac Fisheries, mikil hraðfrysti,hús og stóra „organisation“, Smethurst og Bennett, til fisksölu, og sameinaði þetta allt í ein samtök undir nafninu Bemast. Þessi eini hringur hefur alla sölu á freðfiski í Englandi með höndum. Þessi voldugi hringur situr þarna í Bretlandi og er eigandi að öllum þeim tækjum, sem þarf til þess að selja fisk þar, allt frá frystihúsum og upp í stóran togaraflota. Þessi auðhringur kaupir alla hvalolíu og síldarlýsi í Bretlandi, hann ákveður verðið, sem fiskimenn hér úti á Íslandi, í Noregi og annars staðar fá fyrir sína vöru. Hann segir við Íslendinga í dag: Lækkið þið verðið á ykkar vörum. Þegar Íslendingar eru búnir að því, þá segja þeir við Norðmenn: Íslendingar eru búnir að lækka verðið á sinni vöru, nú verðið þið að lækka verðið á ykkar vöru. Svoleiðis pína þeir niður verðið hjá norskum fiskimönnum og íslenzkum fiskimönnum. Og fyrrv. ríkisstj. tók þátt í þessu. niðurboði. Það, sem hefði verið eðlilegt fyrir okkur, var að segja við Norðmenn: Eigum við ekki að standa saman um okkar framleiðslu og hagsmuni og segja við þennan hring: Gefið okkur gott verð fyrir okkar vöru? Þessi hringur samdi við Íslendinga um það fyrir tveimur árum, að Íslendingar ættu að fá sama verð og Norðmenn fyrir síldarolíuna, og Norðmenn stóðu fast á því að fá 105 sterlingspund fyrir tonnið. Það er eitt af þeim fáu skiptum, sem möguleikar hafa skapazt á síðustu árum fyrir íslendinga og Norðmenn að standa saman á móti þessum auðhring, sem hefur arðrænt þá um gott verð fyrir sína vöru. En fyrrv. stj. sendi þá nefnd til London til þess að semja um verðið, og þegar Norðmenn vildu fá 105 sterlingspund og Íslendingar sömdu um lægra verð en Norðmenn, þá var það sama sem að lækka verðið niður í 971/2 sterlingspund. Íslendingar lækkuðu verðið og afsöluðu sér samningsbundnum réttindum til þess að undirbjóða Norðmenn. Við erum notaðir til þess að undirbjóða Norðmenn, til að lækka hjá þeim, svo eru þeir notaðir næsta ár til að lækka olíuna enn þá meir. Þarna situr þessi auðhringur og þrýstir okkur niður á víxl, Íslendingum, Norðmönnum og Færeyingum, sem eru að vinna á hættusvæðunum á fiskimiðunum til þess að afla þess, sem þessi hringur notar til þess að búa til dýrar vörur úr og okra. Ég veit ekki, hvort þessum hagfræðingum, sem hafa undirbúið þetta allt, og ríkisstj., er ljóst, að þessi sami hringur sem ég hef verið að tala um á meiri hluta hlutafjárins í þýzka fyrirtækinu Margarin Union, sem á meiri hluta hlutabréfanna í stærsta togaraútgerðarfélagi Vestur-Þýzkalands, Norddeutsche Hochsee, og að þetta útgerðarfélag er nú gert sterkt og voldugt og gefnir nýir togarar til að auka sína útgerð og framleiðslu á Íslandsmiðum til að eyðileggja okkar markaði í Þýzkalandi. Þessi hringur kaupir af okkur fiskinn og á togara bæði í Bretlandi og Þýzkalandi, hann eflir þessa útgerð og gerir út til þess að geta þannig undirboðið okkur, ef á þarf að halda, og þegar hann er búinn að pína Norðmenn í gegnum Íslendinga, þá segir hann við brezka sjómenn og þýzka sjómenn: Nú verðið þið að lækka ykkar kaup, því að íslenzkir sjómenn eru langt fyrir neðan, þeir slá ykkur út. Svona situr þessi könguló í þessum vef til þess að veiða þessar flugur á víxl, sem eru nógu vitlausar til þess að láta ginnast. Hvernig stendur á því, að þessir hagfræðingar, sem skilja þetta allt, hvernig Ísland fær bezta markaði, segja ekki eitt orð um það, hvernig við erum þarna arðrændir? Haldið þið, að það sé af vankunnáttu þessara manna? Ef til vill eru þeir hagfræðingar bara í fáfræði? En ef þeir vita þetta, guð hjálpi þá þeirra heiðarleika, ef þeir ekki segja þjóðinni það. En má ég spyrja: Hvað haldið þið að hefði verið sagt um Íslending á 18. öld, sem hefði þagað um það við þjóðina, að t.d. Hörmangarafélagið einokaði hana og arðrændi? Ætli það hefði ekki þótt undarleg umhyggja fyrir hag Íslands á þeim tíma? En félag eins og Hörmangararnir er svo ákaflega smátækt hjá slíkum auðhringum, sem spenna yfir svo að segja alla veröldina. Ég veit ekki, hvort ég á að fara inn á það, til þess að upplýsa það kverkatak, sem þessi hringur hefur, að tala um það „patent“, sem notað er við frystingu hér á landi, og ég veit ekki, hvort Íslendingar hafa samið um not á því „patenti“ eða hvort það er stolið, eða hvort hringurinn hefur óttazt að það færi í mál, sem mundi þýða nokkrar milljónir í skaðabætur. Það er svo undarlegt, að það er eins langt frá því, að það sé upplýst af hálfu þeirra manna, sem ættu að upplýsa þjóðina, hvernig ástandið er, að það er þvert á móti verið að þegja yfir því, og svo á í krafti þessarar vanþekkingar að pína íslenzku þjóðina til að sætta sig við fórnir. Svona eiga þessi auðfélög að halda áfram að safna auði og hlúa að sér. Ég veit ekki hvort þm. trúa mér um þetta, en ég hef orðið var við, að þeir ráðh., sem hafa haft með utanríkisverzlunina að gera, virðast varla hafa haft hugmynd um, að þessi hringur sé til. Ég vil þess vegna benda þeim á, sem kæra sig um að fá einhverjar heimildir, sem þeir leggi betri trúnað á en það, sem ég segi, að leita til Ameríku. Ég vil benda þeim á bezta tímarit „businessmanna“ þar í landi, Fortune, sem flytur nákvæmar upplýsingar um verzlunarástand atvinnulífsins í heiminum að þeirra áliti. Þar var skrifað í des. 1947 og jan.—febr. 1948 stór og mikil grein um Unileverhringinn, þar sem m.a. eru rakin öll hans sambönd við hvert einasta land heimsins, þar sem hann hefur sambönd. Þar er enn fremur rakið, hvað mikið auðmagn hann á í hverju af þessum löndum, og þar er enn fremur rakið og sýnt á korti, hvernig hann á fyrirtæki í flestöllum löndum heims, þeim sem ekki eru sósíalistísk, og hvað hans umsetning og hvað hans gróði sé. Og umsetningin er einn milljarður og 364 milljón dollarar. Ég minnist aðeins á þetta vegna þess, að mér er ekki grunlaust um, að fjölmargir þeirra hv. þm., sem ættu, samvizku sinnar vegna, að grannskoða okkar atvinnulíf og fjármálaástand, viti ekki glögglega um þetta. En þeir ættu ekki að láta undir höfuð leggjast að rannsaka þessa hlið málsins og ættu ekki að taka ákvarðanir um mál eins og þetta, sem hér liggur fyrir, án þess að hafa hugmynd um slíkar staðreyndir, sem ég hef komið hér með, — og upplýsingar um þetta er hægt að fá jafnvel í amerískum tímaritum. Þetta segi ég vegna þess, að mér hefur oft blöskrað, hvernig þagað er yfir öllum þessum staðreyndum og hvernig reynt er af blöðunum að blekkja þjóðina, — af blöðum, sem ættu þó að upplýsa hana, — og reyna að fá þjóðina til að sætta sig við léleg lífskjör.

Ég sé, að ég fer að verða allt of langorður og hef talað lengur í þessu máli en ég ætlaði mér. — En viðvíkjandi þessum markaðsmálum vil ég taka fram, — en mun ekki fara eins langt út í það eins og ástæða hefði verið til, — að orsökin til þess, að svo er komið sem er í okkar markaðsmálum, þ.e. orsökin til markaðsvandræða hins íslenzka þjóðfélags er, að Marshallsamningurinn var gerður 1947 og 48 og okkar markaðir þar með þrengdir og við bundnir við þau lönd, sem nota okkur, meðan þau hafa þörf fyrir okkar fisk, og sparka okkur síðan. Unileverhringurinn gat notað okkur, meðan Breta og Þjóðverja vantaði fisk, en þegar hann hefur nógan flota, sparkar hann okkur. Og það er þetta spark, sem þessi hringur ætlar að gefa okkur. Ef við hefðum frjálsa verzlun hér á landi, væri hægt að skapa markað fyrir okkar vöru, en það er ekki hægt, meðan við erum bundnir við þennan hring. — Ég fyrir mitt leyti varaði við því, þegar þær ráðstafanir voru gerðar, sem leiddu okkur inn í kalda stríðið og gerðu okkur bundna auðhringunum í Bretlandi. Ég varaði við því, hvað af því mundi leiða tveim til þrem árum eftir að það væri gert. Nú eru þau ár liðin og afleiðingin að koma fram. Nú erum við að byrja að þjást undir þeirri kreppu auðvaldsskipulagsins, sem voldugir auðhringar í heiminum alltaf notfæra sér, til þess að lækka lífskjör smáþjóðanna og til að auka gróða sinn með því að féfletta aðra. — Og ef við tökum dæmið frá 1931 í sambandi við þann hring, sem ég hér hef minnzt á, þá var það svo, er Nýfundnaland glataði sínu efnahagslega sjálfstæði, þá var það fyrst og fremst af því, að það var arðrænt og féflett þannig, að þjóðin gat ekki haldið uppi efnahagslegu eða pólitísku sjálfstæði. Það eru auðhringarnir, sem eru „interesseraðir“ í að skapa slíkt ástand hjá smáþjóðunum, með áhrifum á pólitík. Og samningar, sem þeir gera, eins og Marshallsamningurinn, er aðferðin, sem þeir beita til þess að binda þessi smálönd við sig. Og kreppan, sem nú er að skella yfir, kreppa, sem þessir auðhringar fá fram, til þess að láta bitna með öllum sínum þunga á smáþjóðunum — hvað er það, sem gerist í þessum kreppum milli stóriðjuhringanna og hráefnaframleiðendanna? Það, að verðinu á hráefninu er þjappað niður, þannig að stóriðjuhringarnir, eins og þessi í Bretlandi, kaupa hráefni fyrir lágt verð, og síðan vinna þeir iðnaðarvörur úr þessum hlutum og selja fyrir hátt verð. Þeir hækka verðið á þeim vörum, sem hringarnir svo „mónópólisera“ fyrir sig. Nú er það svo, viðkomandi þjóðum, sem sérstaklega framleiða hráefni, frumstæðum þjóðum, að þær gerðu svo að segja uppreisn á efnahagssviðinu og heimtuðu hærra verð fyrir sínar afurðir, þ.e. fiskimanna- og bændaþjóðir, til þess að knýja þessa stóriðjuhringa til þess að veita sér betri kjör — og þeim tókst það, eins og okkur Íslendingum tókst það. — Nú eru þessir stóriðjuhringar að ná kverkatakinu aftur á þessum þjóðum. Þess vegna gerist það, að það lækkar verð á síldarolíu og fiski. En verð hækkar aftur á þeim vörum, sem hringarnir hafa alveg í sínum höndum verðlagningu á. T.d. amerísku hringarnir koma á með gengishækkun á dollarnum og lækkun kaups allsherjar verðhækkun á þessum vörum um allan heim. Þetta er aukið arðrán þeirra gagnvart þeim þjóðum, sem þetta bitnar á. Það er verið að ginna þjóðir eins og okkur, til þess að þessir hringar geti grætt því meira. Og þeir, sem ættu að skilja gang málanna í auðvaldsþjóðfélagi og segja þjóðinni sannleikann um þetta, hagfræðingarnir, þeir þegja um alla þessa hluti.

Að því að markaðsvandræðin eru höfuðmeinsemdin, sem við eigum við að etja, vegna þess, að arðrán þessara auðhringa hvílir þyngst á okkur, þá er líka sú leið, sem við verðum að reyna til þess að velta byrðum kreppunnar af alþýðunni, sú, að íslenzka auðmannastéttin sé látin taka fyrst fórnir á sig, áður en alþýðan gerir það, og í öðru lagi, að siglt sé fram hjá kreppu, að svo miklu leyti sem mögulegt er, með því að hafa viðskipti við þau lönd, þar sem markaðir eru miklir. Í sósíalistískum þjóðfélögum eru markaðir ótakmarkaðir, vegna þess að efnahagsfyrirkomulagið er þannig, að kaupgetan takmarkast ekki þar af því arðráni, sem hún gerir í þjóðfélögum auðhringanna.

Ég er reiðubúinn til þess við þessa umr. að ræða okkar leiðir í þessum efnum, og ræða allt það, sem „dispúterað“ hefur verið sérstaklega út frá þeim sjónarmiðum, við þá menn, sem vildu fara út í þá „discussion“, ef að einhverju leyti er efazt um möguleikana, sem þarna eru, og leggja fram mín rök í því máli.

— Hins vegar vil ég nú fara nokkrum orðum um örfá af þeim atriðum, sem komið hafa fram í þeim ræðum, sem hér hafa verið fluttar, og þá líka um leið koma ofurlítið inn á nokkur önnur atriði í frv. en þau, sem ég hef nú gert að umtalsefni.

Það var hæstv. fjmrh., sem minntist í sambandi við málið á verðhjöðnunarleiðina. Gera þeir menn, sem berjast fyrir gengislækkunarleiðinni, sér ljóst, að kauplækkunin kemur til með að gera lífskjör þeirra manna, sem hafa reynt að kaupa íbúðarhús, það miklu lakari, að þeir koma ekki til með að standa undir því að borga af þeim? Við sósíalistar erum tilbúnir með till., sem ættu að bæta úr þessu, með því að lengja lánstímann og lækka vexti. Ekki bólar á neinum slíkum till. hér í frv. Þessi lækkun á lífskjörum almennings þýðir allsherjar árás þeirra, sem hafa peningavaldið, gagnvart þeim stéttum, sem hafa reynt að eignast eitthvað á undanförnum árum. Þeir geta ekki haldið þeim, með þeim rýrðu lífskjörum, sem þeir eiga að fá, svo framarlega að þeim séu ekki tryggð betri lánskjör og lækkaðir vextir.

Hæstv. fjmrh. minntist á, að sparifjáreigendum væri tryggð uppbót, í staðinn fyrir það rán, sem á að framkvæma á þeim með þessari gengislækkun. Hvað reiknar hæstv. ríkisstj. með að þessar tíu milljónir verði mikil uppbót? Ég er hræddur um, að hún sé ekkert, nema til þess að sýnast. Og á því er vert að vekja athygli, að um leið og hæstv. fjmrh. og ríkisstj. er að veifa þessu framan í sparifjáreigendur, þá eru þeir með þessum lögum að tryggja sér að geta haldið áfram síðar gengislækkunum, og það án þess að þurfa að leita til þingsins, og auðvitað án þess að tryggja sparifjáreigendum þá neinar uppbætur vegna gengislækkunar.

Hv. 8. landsk. þm. kom áðan að því að tala um vísitöluna í þessu sambandi, svo að ég þarf ekki eins að ræða um það atriði og ég annars hefði gert. Ég býst við, að það verði greinilegt af þessum umr., að þeir, sem tala um, að launþegar elgi að fá uppbætur eftir ákvæðum frv. með hækkuðu kaupi vegna gengisfellingarinnar, þeir vilji taka aftur mikið af þeirri uppbót, með því að ákveða að taka húsaleiguna inn í vísitölugrundvöllinn með fullu verði á húsaleigu í þeim húsum, sem fullbyggð eru eftir 1945, þannig að útlendu vörurnar verða gerðar að svo miklu minni parti af þeim undirstöðuatriðum, sem vísitalan byggist á, heldur en þær eru gerðar nú og heldur en þær í raun og veru eru í afkomu manna hér. Þannig er verið að blekkja beinlínis með þessu. — Enn fremur er rétt fyrir menn að athuga, að þessi 5%, sem talað er um hér að verðlagið þurfi að hækka um, þegar vísitölugrundvöllurinn er orðinn 100 miðað við marz 1950, þá þýðir þetta það, að það yrði að verða 25 stiga breyt. á vísitölunni, eins og hún er nú, ef með núverandi útreikningi vísitölunnar væri tekin með í reikninginn háa húsaleigan, sem miða skal við nýja vísitölugrundvöllinn eftir frv., því að þá væri raunverulega vísitalan nú um 500 stig. Og 25 stíga breyt. á vísitölunni er allmikil breyting, svo að það mundi taka þó nokkurn tíma — og með þessum 6 mánaða fresti í viðbót — að fá fram eftir vísitölubreyt. kauphækkanir, þannig að halda mætti dýrtiðinni alllengi, áður en nokkur uppbót kæmi til greina.

Þá minntist hæstv. fjmrh. á þá eðlilegu niðurstöðu, að það ætti að leysa verzlunina úr viðjum hafta með þessu. Hvar er sú till.? Ég sé ekki betur en einokunarskipulagið á Íslandi sé gert harðvítugra og sterkara með ákvæðum frv. og atvinnu- og viðskiptalífið sett í þrælafjötra með þessum till., til ágóða fyrir nokkra, örfáa menn, meir en nokkru sinni fyrr. Atvinnulífið er hér gert með þessum till. fjötraðra við bankavaldið, en nokkurn tíma áður hefur verið. — Svo kemur einu sinni enn yfirlýsingin frá hæstv. fjmrh. um, að ef verkamenn fari fram á grunnkaupshækkanir, eftir að þetta frv. væri orðið að l., þá gengi það brjálæði næst. M.ö.o., það gengur ekki brjálæði næst, þó að gífurlegur gróði sé látinn haldast hjá t.d. heildsölum, sem grætt hafa milljónir kr. En ef verkamenn, sem ekki geta lifað sómasamlegu lífi, eftir að þetta frv. væri samþykkt, vildu hækka grunnkaup sitt, þá á það að ganga brjálæði næst. — Enn fremur er hæstv. fjmrh. að fræða þjóðina á því, að ef hún ekki sætti sig við þetta, verði hún að greiða fyrir það með skorti og þrengingum. Það er sem sagt verið að leiða yfir hana með þessu frv. skort og þrengingar; vöruskort og atvinnuskort, skort fátæktar og neyð. Þjóðin mundi bjarga sér betur, annaðhvort svo framarlega sem hún hefði stjórn, sem þyrði að vinna út frá sjónarmiðum almennings um að bæta hennar kjör og efnahagsframkvæmdir, eða meira að segja aðeins, ef hún fengi að vera laus við öll höft og alla yfirstjórn og öll kerfi í verzlunar- og atvinnulífinu.

Þá segir hæstv. fjmrh., að hvert þjóðfélag sé háð sínu eigin jafnvægi. Það er bókstaflega orðið svo með þessa jafnvægiskenningu þeirra, að hún er orðin þeim trúaratriði, eitthvað óskiljanlegt, sem þeir tyggja upp hver eftir öðrum, án þess að leggja meiningu í það. Hún er byggð á því, að okkar framleiðslutæki starfi eða strandi á því, hvernig tekjurnar skiptast innbyrðis á milli stéttanna í þjóðfélaginu.

Þá kom hv. 1. þm. S-M., sem var að mæla með þessu frv., nokkuð inn á gengislækkunina og ýmsar góðar afleiðingar, sem hún hefði. Hann minntist á frystihúsin og hækkunina, sem hefði orðið á þeirra framleiðslukostnaði upp á síðkastið, og var náttúrlega verkakaupið mikill liður í sambandi við það. — Af hverju hækkaði fiskábyrgðin í vetur um 10 aura? Hvað var það, sem eigendur frystihúsanna lögðu fram sem aðalrök fyrir þeirri hækkun? Það var gengislækkunin á íslenzku krónunni gagnvart dollarnum í haust. Hún var undirstaðan undir því, að heimtað var hærra verð fyrir hraðfrysta fiskinn. M.ö.o., með gengislækkun er verið að skapa auknar kröfur útgerðarinnar um hærra verð, vegna þess, að mikill hluti áhrifa þessarar gengislækkunar

kemur með fullum krafti á framleiðsluna aftur.

Þá fór hv. 1. þm. S-M. nokkrum orðum um þær till., sem Framsfl. mundi koma með. Mig furðaði ofurlítið á þeim till. Hann talaði um ráðstafanir til að lækka húsaleiguna, svo sem með því að byggja tveggja eða þriggja herbergja íbúðir, og ekki annað af íbúðarhúsum nú um tíma. Þessi hv. þm. er sjálfur nýskroppinn út úr ríkisstjórn, sem hann sat í þrjú ár. Og hvað gerði hann á þeim tíma til þess að láta byggja þessar tveggja eða þriggja herbergja íbúðir? Það, sem hann gerði í þessu, meðan hann var í ríkisstj., var að afnema lögin, sem áttu að útrýma heilsuspillandi íbúðum á Íslandi, og þar með gera mönnum erfiðara með að byggja og banna mönnum úti um land að byggja yfir sig. Það er rétt eins og hann hefði bara aldrei verið í ríkisstjórn á Íslandi, eftir orðum hans að dæma.

Hv. 1. þm. S-M. talaði enn fremur um það, að Framsfl. hefði mikinn áhuga á því, að það fengist aukið fjármagn til landbúnaðarins. Já, gaman þætti mér að heyra hann færa rök fyrir því, hvernig hann ætlar að auka atvinnutækin í landbúnaðinum með þessu hækkaða verði á öllum þeim vörum, sem bændur þurfa að kaupa inn í landið, fóðurvörum, áburði og öllu öðru slíku, og með hækkuðu verði á öllum tækjum, sem bændur þurfa að fá til búrekstrar síns, - og þetta náttúrlega allt á grundvelli þessarar frjálsu verzlunar og frjálsa atvinnulífs, sem hér er talað um, hins frjálsa framtaks og styrkjalausa atvinnurekstrar, sem er grundvöllurinn undir þeim till., sem hér liggja fyrir, þar sem fjármagnið á að fá að koma frjálst þangað, sem það borgar sig bezt, og engum atvinnufyrirtækjum er haldið uppi með neinum styrk. Mér þætti gaman að vita, hvernig hann ætlar að láta fjármagnið fara til landbúnaðarins. Ég veit ekki annað, en að það hafi þurft að grípa vægðarlaust inn í fjármálalífið í landinu, til þess að beina fjármagninu til landbúnaðarins, til þess með margvíslegum styrkjum að tryggja landbúnaðinum t.d. þá vélabyltingu, sem þarf á að halda.

Hins vegar var ég sammála þessum hv. þm. um, að ekki stæðist að miða við þær niðurstöður, sem koma fram í hagfræðingaálitinu, eins og þar er gert, þar sem í sambandi við þær mætti búast við áframhaldandi vöruskorti í landinu.

Ég held, að þetta frv., sem hér liggur fyrir, og það, hvernig það hefur hér verið flutt inn, sé byggt á fölskum forsendum, og að allar kenningar, sem mest er hampað í sambandi við það, þýði, að afkoma alþýðunnar á Íslandi verði verri, en áður. Ég held, að hér sé ekki aðeins verið að klæða í vísindalegan búning og gera sem allra flóknast ákaflega einfalt mál, heldur er það, sem fyrir okkur liggur, krafa frá íslenzka auðvaldinu um að fá vinnuaflið ódýrara, og tilraun til þess, að verkamenn landsins sætti sig við verri kjör, án þess að auðvaldið þurfi að fórna nokkru — ekki einu sinni skriffinnskunni, — og að í öðru lagi sé hér krafa frá auðhringunum erlendu um, að Íslendingar hætti við sitt brölt með að þroska sina stóriðju á sjó og landi og sætti sig við að láta þessa auðhringa arðræna sig, eins og áður, og að sitja á bekk með nýlenduþjóðum, eins og þeir einu sinni gerðu. Og það er þetta, arðræning þessa auðvalds, sem á að framkvæma á okkur með þessu móti. og flytja valdið yfir gengisskráningunni út úr þinginu, til þess að geta gert þessa hluti án þess að þurfa að standa í þeirri baráttu, sem þarf að gera í hvert skipti, ef valdið til gengisskráningar er í höndum þingsins.

Eins og þetta frv. hefur verið lagt fram, þá álít ég óforsvaranlegt að kasta því fram, eins og gert hefur verið. Ég álit, að þessi meðferð, sem höfð hefur verið á þessu, sé alls ekki heppileg til að ná neinum góðum árangri. Eina eðlilega meðferðin á þessu frv. tel ég að sé sú að fella það strax við 1. umr. Það liggur fyrir vantraust á ríkisstj., og búizt er við, að hún falli. Það er tækifæri hér til þess að skapa ríkisstj. og reyna að skapa samkomulag um, hvað gera skuli í fjárhags- og atvinnumálum þjóðarinnar. En þetta frv. á þá að vera komið út úr heiminum. Það er byggt á fölskum forsendum og blekkingum, og með þessari leið, sem í því er fram sett, mundu aukast vandræðin stöðugt, og alþýðan mundi fá verri lífskjör, ef það væri samþ. — Hvernig sem um það fer, vil ég vonast til þess, að þeir menn, sem með þessu standa, þori að ræða alla þætti þessa máls og sanna með rökum, að það, sem ég hef nú sagt í þessari ræðu, sé rangt. Og ég mundi, á hvaða vettvangi sem er, vera fús til að ræða við þessa hagfræðinga, sem samið hafa þetta frv., um málið. Og ég held, að ríkisstj. hefði gert rétt í því að gefa þjóðinni kost á að gagnrýna ráð þessara hagfræðinga, áður en frv. var lagt fram. En þeir sýna ekki það mikinn þroska, þessir menn, sem þjóðin hefur kostað til að læra hagfræði á skólabekkjum, að þeir hefðu ekki haft gott af því, að þeirra ráð hefðu verið gagnrýnd.

Ég er reiðubúinn til þess að ræða ýtarlegar þau atriði þessa máls, sem ég hef minnst farið í og ég hefði viljað taka alvarlegar, ef þess verður óskað.