14.11.1949
Sameinað þing: 0. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 13 í B-deild Alþingistíðinda. (7)

Rannsókn kjörbréfa

Frsm. 2. kjördeildar (Gunnar Thoroddsen):

Herra forseti. 2. kjördeild hefur fengið til meðferðar kjörbréf 18 þm. Þeir eru þessir: Bernharð Stefánsson, 1. þm. Eyf., Einar Olgeirsson, 2. þm. Reykv., Emil Jónsson, þm. Hafnf., Eysteinn Jónsson, 1. þm. S-M., Gísli Jónsson, þm. Barð., Haraldur Guðmundsson, 4. þm. Reykv., Ingólfur Jónsson, 2. þm. Rang., Jón Gíslason, þm. V-Sk., Jón Pálmason, þm. A-Húnv., Jón Sigurðsson, 2. þm. Skagf., Jónas Árnason, 6. uppbótarþingsæti Sameiningarflokks alþýðu, Jörundur Brynjólfsson, 1. þm. Árn., Lárus Jóhannesson, þm. Seyðf., Páll Zóphóníasson, 1. þm. N-M., Sigurður Ágústsson, þm. Snæf., Sigurður Guðnason, 6. þm. Reykv., Steingrímur Aðalsteinsson, 3. uppbátarþingsæti Sameiningarflokks alþýðu, Þorsteinn Þorsteinsson, 2. uppbótarþingsæti Sjálfstfl.

Kærur hafa engar borizt út af neinu þessara kjörbréfa. 2. kjördeild leggur til, að kosning þessara 18 þm. sé tekin gild.