27.04.1950
Neðri deild: 89. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1555 í B-deild Alþingistíðinda. (70)
Afgreiðsla mála úr nefndum o.fl.
Áki Jakobsson:
Herra forseti. 18. málið, sem lagt var fyrir Alþ., er frv. til l. um breyt. á l. nr. 53 27. júní 1921, um hvíldartíma háseta á íslenzkum botnvörpuskipum, og á l. nr. 45 7. maí 1928, um breyt. á þeim l. Þessu máli var vísað til sjútvn. þ. 25. nóv. 1949, þ. e. mjög snemma á þinginu. Hafði n. frv. til ýtarlegrar athugunar, og var það afgr. í n. 21. marz s. l., eins og bókað er í gerðabók hennar, þannig að þrír nm. voru á móti því, en 2 með. Við tveir nm. höfum samið og skilað nefndarálitum. Ég skilaði mínu, sem er á þskj. 526, 13. apríl s. l., og fulltrúi Alþfl. í n. skilaði nál. sínu 17. apríl, á þskj. 538. Nú er sýnt, þegar svo langur tími sem raun er á er liðinn frá afgreiðslu málsins í n., að meiri hl. hennar ætlar ekki að skila nál. Í sjálfu sér er það ekki óeðlilegt, því að þeir hv. nm. hafa þegar áður skilað nál., á Alþ. 1947, og mun afstaða þeirra vera óbreytt. Leyfi ég mér því að fara þess á leit við hæstv. forseta, að hann taki málið á dagskrá nú þegar eða a. m. k. sem allra fyrst, því að sýnt þykir, að nál. komi ekki fram frá hv. meiri hl. n. En hún er, eins og ég tók fram, búin að afgreiða málið.