10.03.1950
Neðri deild: 63. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 360 í B-deild Alþingistíðinda. (707)

125. mál, gengisskráning o.fl.

Forseti (SB):

Hv. þm. V-Húnv. hefur nú óskað þess, að meðferð máls þessa verði frestað, þar til nál. liggja fyrir frá þeim hlutum fjhn., sem n. skiptist í í þessu máli og ekki standa að fram komnu nál. Það hafði verið tilætlunin nú að taka málið fyrir til 2. umr. og að framsögu lyki af hálfu þess hluta fjhn., sem hefur skilað áliti. Ég vil spyrja hv. þm. V-Húnv., hvort hann sætti sig ekki við það, og málinu mundi þá sennilega verða frestað strax þar á eftir, ef hv. þm. heldur fast við kröfu sína.