10.03.1950
Neðri deild: 63. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 360 í B-deild Alþingistíðinda. (708)
125. mál, gengisskráning o.fl.
Forsrh. (Ólafur Thors):
Herra forseti. Ég vildi nú leggja mjög ríka áherzlu á það, að þessu máli yrði ekki frestað svo að neinu nemi. En málið er, eins og öllum er kunnugt, búið að liggja fyrir Alþ. nú nærri hálfan mánuð, en áður en það var lagt fram á Alþ., höfðu tveir af þingfl., Framsfl. og Alþfl., haft málið lengi til meðferðar, sjálft frv. frá því 6. febr. s.l. og með grg. frá 16. febr. s.l. Ég held því, að það sé ekki hægt með rökum að mæla því í gegn, að flokkarnir hafi haft langan tíma til þess að athuga þetta mál. Og enda þótt allir viðurkenni, að slíkt stórmál þurfi gaumgæfilegrar íhugunar með, þá finnst mér, samt sem áður, að þessi tími ætti að nægja. — Hin hlið málsins er svo sú, að það er eðli málsins, sem kallar á skjóta afgreiðslu þess. Og það er nú þegar vitað, að margvísleg vandkvæði eru að skapast í íslenzku verzlunar- og viðskiptalífi, vegna þess að málið fæst ekki afgreitt. — Ég vil að sjálfsögðu ekki stofna til þess, að illdeilur hefjist um þetta, hvort málið fær þinglega meðferð við 2. umr. hér í kvöld. Og ég vil ekki mælast til þess, einkum ekki eftir það, sem hæstv. forseti hefur sagt, að hann beiti sínu forsetavaldi í þeim efnum. En mér finnst mjög sanngjarnt, að borin sé fram ósk, og að við henni sé orðið, um það, að málið verði þá ekki tafið lengur en til morguns, ef nauður þykir reka til að halda ekki áfram umr. nú í eftirmiðdag. Og ég vil leyfa mér að vona, að hæstv. forseti geti orðið við þeim tilmælum. — Það er sagt, að hv. form. Framsfl. og ég séum ekki sammála um allt. Og það mun ekki ofmælt, þó að við séum oft sammála um margt, eins og margir vita. En ég held, að við höfum verið sammála um, að það væri hin mesta nauðsyn, að þingið afgr. þetta mál tafalítið, svo að ég segi ekki meira. Og ég vil þess vegna leyfa mér að vænta þess, að sá hv. nm., sem hér bað um frestinn og er einn af hv. þm. Framsfl., geri ekki neinn leik að því að tefja málið frekar, en þá til morguns, sem ég vil ekki setja mig gegn, ef hæstv. forseti — eins og mér nú heyrðist hefur tilhneigingu til að verða við þeirri ósk.