14.03.1950
Neðri deild: 66. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 374 í B-deild Alþingistíðinda. (724)

125. mál, gengisskráning o.fl.

Frsm,. 3. minni hl. (Gylfi Þ. Gíslason):

Herra forseti. Mér hefur skilizt, að stjórnarflokkarnir hafi gert samkomulag um að bera fram brtt. við þetta frv. Þess vegna óska ég þess, að ég fái að fresta framsöguræðu minni af hálfu 3. minni hl. fjhn. Ég vil ekki tefja málið, en tel hagkvæmara að flytja framsöguræðu mína þegar brtt. eru komnar fram.