17.03.1950
Neðri deild: 68. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 421 í B-deild Alþingistíðinda. (755)
125. mál, gengisskráning o.fl.
Forseti (SB):
Út af þessum tilmælum vil ég geta þess, að ég hef gert ráðstafanir til, að hæstv. atvmrh. viti um þessa ósk hans. Hann mun vera hér í húsinu, að því er ég bezt veit. — — — Hæstv. atvmrh. mun vera eitthvað vant við látinn, en þar sem nú eru í d. tveir hæstv. ráðh., vil ég spyrja hv. þm., hvort hann geti nú ekki flutt ræðu sína.