17.03.1950
Neðri deild: 68. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 424 í B-deild Alþingistíðinda. (757)

125. mál, gengisskráning o.fl.

Viðskmrh. (Björn Ólafsson):

Herra forseti. Hv. þm. Ísaf. kvartaði undan því, að hann hefði fengið lítil svör við fyrirspurnum, sem hann hefði beint til ríkisstj. Ég verð að segja, að ég varð ekki mikið var við slíkar fyrirspurnir hér á þingfundi í gær. Það var að vísu rætt um það af hendi hv. andstæðinga frv., hvort hægt væri að fá upplýsingar um, hve miklu þessi skattur næmi, sem hér um ræðir. Ég skal fúslega viðurkenna, að það er ákaflega erfitt að gefa svar við því, eins og alltaf er, þegar slíkir skattar eru á lagðir. Það er yfirleitt ekki hægt að gefa nokkurn veginn réttar upplýsingar um það, fyrr en búið er að reikna skattinn út, því að það eru svo mörg atriði í því máli svo óviss, að það er ekki hægt með nokkurri vissu að telja þær ágizkanir, sem slíkar tölur hlytu að verða, réttar upplýsingar. Þess vegna hefur stj. leitt það hjá sér að vera að koma með slíkar ágizkanir.

Hins vegar skal ég koma að seinna atriðinu, sem hv. þm. talaði hér um, samanburðinum á milli þessara tveggja skatta. Hv. þm. Ísaf. sagði, að ríkisstj. hefði brugðizt skyldu sinni við það, að hún hefði ekki enn greitt 11/2 millj. kr. vegna sjóveða, sem hvíldu á ýmsum bátum enn þá og heimíld hafi verið gefin ríkisstj. til þess að greiða í sambandi við lög, sem sett voru um bráðabirgðaaðstoð til útvegsins. Þetta er alveg rétt. En það er ekki af neinni andúð í garð útvegsins, að þessi 11/2 millj. hefur ekki verið greidd. Það er blátt áfram af því, að ríkissjóður hefur ekki getað greitt þetta fé. Þingið getur samþykkt útgjöld. En það hljóta að vera fjárráð ríkisins, sem ákveða það, hvort hægt er að standa við slík útgjöld. Í þessu tilfelli hefur það ekki verið hægt, þann tíma, sem liðinn er síðan þessi heimíld var gefin. Og yfirdráttur ríkissjóðs hjá Landsbankanum hefur allan tímann verið í toppi, og ríkissjóður hefur ekki haft heimíld fyrir meiru, og Landsbankinn hefði getað stöðvað það, ef ríkissjóður hefði ætlað að yfirdraga fram yfir þetta hámark og með því greiða þessa heimíld, sem þarna er um að ræða. Hitt er og öllum hv. þm. kunnugt, að lánsmöguleikar ríkissjóðs eru þrotnir, bæði til þessa og annars. Ég get fullvissað hv. þm. um það, að ég og aðrir, sem voru í fyrrv. ríkisstj., hefðum haft mesta ánægju af því að geta greitt þetta fé út og losað þessa báta undan sjóveðum, sem nú standa uppi í vanda af þeim sökum.

Hv. þm. Ísaf. sagði, að það mundi fljótlega vera hægt að ljúka útreikningi eignaraukaskattsins. Eftir þeim upplýsingum, sem ég hef í því efni, er búið að reikna út tæplega helming einstaklinga. Öll félög eru óútreiknuð og engar upplýsingar liggja fyrir um þann hlutann. Hins vegar er vitað, að eignaraukaskatturinn kemur mjög lítið eða ekkert við útveginn, vegna þeirra fríðinda, sem útveginum voru veitt í þessum l. Mér hefur verið skýrt svo frá, að eftir bráðabirgðaathugun á nokkrum greinum í sjávarútvegsstétt, þá mundi vera hægt að ganga út frá því, að ekki mundu miklar tekjur koma frá þeirri hlið, og að líkindum ekki heldur frá sambandsfélögum. Það er ákaflega erfitt að segja til um það, hversu miklu þessi skattur nemur. En það er öllum ljóst, þegar það er athugað, að þessi skattur kemur ekki á neinar eignir, sem til voru í landinu fyrir 1940. Hins vegar kemur sá nýi skattur á allar eignir í landinu. Þetta er sá reginmunur, að ég, fyrir mitt leyti persónulega, er alveg sannfærður um, að þessi nýi skattur er miklu hærri, en eignaraukaskatturinn og kemur að mörgu leyti miklu þyngra niður. — Það er ekki rétt, sem hv. þm. Ísaf. vildi halda fram, að verk nefndarinnar væri ónýtt, þó að þessi skattur væri felldur niður. N. hefur haft margt annað að vinna, en útreikning á þessum skatti. Og ég hygg, að mikið af hennar starfi hafi farið í önnur störf. Hins vegar er því ekki að neita, að náttúrlega fellur ónýtt að nokkru leyti það starf, sem n. hefur í þetta lagt.

Út af því, sem hv. þm. Ísaf. sagði um hlutatryggingasjóðinn, þá vildi ég benda á það, að það er gert ráð fyrir því, um það leyti sem þessi l. eru sett, að ég ætla, að honum séu tryggðar 5 millj. kr. Og það var á þeim forsendum, sem núverandi ríkisstj. taldi, að með því að tryggja honum 5 millj. kr. af þessum skatti, þá væri honum séð fyrir þeim tekjum, sem gert hafði verið ráð fyrir, að hann mundi fá eða honum mundu verða tryggðar. Með þeim ákvæðum, sem hér eru í frv., þá er gert ráð fyrir því, að hlutatryggingasjóður fái það fyrsta fé, sem inn kemur. Það má vel vera, að þessar 5 milljónir komi ekki inn alveg um leið og þessi skattur er útreiknaður. En það hlýtur öllum að vera ljóst, að jafnmikill skattur og hér er um að ræða, hann ætti að færa hlutatryggingasjóði þessar 5 millj. kr. á tiltölulega skömmum tíma, svo að ég verð að segja fyrir mitt leyti, að ég, sem tel mig persónulega mjög vinveittan sjávarútveginum, vildi helzt þess óska, að þessi sjóður gæti orðið sem mestur og gert sem mest gagn. Ég tel hans hlut ekki fyrir borð borinn með þeim ákvæðum, sem sett hafa verið í þetta frv.